29 maí 2026
/
Starfshópur skoðar skilyrði fyrir veitingu ríkisborgararéttar
Dómsmálaráðherra hefur skipað þriggja manna starfshóp til að greina gildandi lög og skilyrði fyrir veitingu íslensks ríkisborgararéttar. Markmiðið er að fá heildstæða yfirsýn yfir þróun umsókna, framkvæmd við veitingu ríkisborgararéttar og hvort ástæða sé til breytinga á lagaumhverfi eða verklagi.
„Að fá ríkisborgararétt eru forréttindi. Að fá íslenskan ríkisborgararétt er, og á að vera, stór stund í lífi þeirrar manneskju sem hann fær. Við sjáum mikla aukningu umsókna, bæði hjá stjórnvöldum og Alþingi. Það er tímabært að rýna reglur og verklag um veitingu ríkisborgararéttar“ segir dómsmálaráðherra Þorbjörg S. Gunnlaugsdóttir.
Starfshópinn skipa Ásta Sóllilja Sigurbjörnsdóttir, Vigdís Ósk Häsler Sveinsdóttir og Vilhjálmur Hilmarsson sem jafnframt er formaður starfshópsins. Tveir starfsmenn ráðuneytisins verða hópnum innan handar.
Mikil fjölgun umsókna um ríkisborgararétt
Umsóknum um íslenskan ríkisborgararétt til Útlendingastofnunar hefur fjölgað um 290 prósent á síðustu fimm árum. Á sama tíma hefur þeim einnig fjölgað sem sækja um ríkisborgararétt til Alþingis.
Hópurinn mun leggja áherslu á að greina gildandi skilyrði fyrir veitingu ríkisborgararéttar og bera þau saman við sambærileg skilyrði á hinum Norðurlöndunum. Dæmi eru um að íslensk löggjöf og framkvæmd víki að einhverju leyti frá því sem tíðkast í nágrannaríkjunum.
Við vinnu hópsins verður höfð hliðsjón af þeim markmiðum sem nefnd eru í stefnuyfirlýsingu ríkisstjórnarinnar um að gæta skuli samræmis við reglur nágrannaríkja á sviði útlendingamála, eftir því sem við á, og tryggja að lagaumhverfi og framkvæmd séu skýr, skilvirk og í samræmi við þær kröfur sem ber að gera til veitingar ríkisborgararéttar.
Tillögur að úrbótum
Starfshópnum er jafnframt falið að meta hvort ástæða er til breytinga og þá að hvaða leyti, greina helstu áskoranir í málaflokknum og koma með tillögur að úrbótum á lagaumhverfi og stjórnsýslu.
Starfshópurinn á að skila ráðherra tillögum sínum eigi síðar en 1. október.