29 maí 2026

/

Uppbygging verknámsaðstöðu Fjölbrautaskóla Norðurlands vestra

{image.Description}

Verknámsaðstaða Fjölbrautaskóla Norðurlands vestra verður reist í tveimur áföngum og framkvæmdir á fyrri áfanga hefjast næsta vetur. Sveitarfélagið Skagafjörður mun hafa umsjón með framkvæmdum á grundvelli frumathugunar Framkvæmdasýslu ríkisins. Viljayfirlýsing mennta- og barnamálaráðuneytisins, sveitarfélagsins og skólans þess efnis var undirrituð í dag.

Unnið verður að áætlanagerð og hönnun á grundvelli fyrirliggjandi frumathugunar Framkvæmdasýslunnar og hugmyndum verkfræðistofunnar Stoðar ehf. Ríkissjóður greiðir 60% kostnaðar við framkvæmdina en sveitarfélögin á Norðurlandi vestra 40%.

Uppbygging við Fjölbrautaskóla Norðurlands vestra er hluti af eflingu verknáms á landsbyggðinni. Samhliða verður ráðist í framkvæmdir við þrjá aðra verknámsskóla: Verkmenntaskólann á Akureyri, Fjölbrautaskóla Suðurnesja og Menntaskólann á Ísafirði.

Til staðar eru uppsafnaðar fjárheimildir sem nýtast við fjármögnun verkefnanna fjögurra. Fráteknar fjárheimildir fyrri ára og fjárheimildir í gildandi fjármálaáætlun fyrir árin 2026–2030 í uppbyggingu verknámsskóla eru tæpir fimm milljarðar (4.967 m.kr.). Þær nýtast í uppbyggingu verknámsskólanna fjögurra og uppbyggingu verknámsaðstöðu Fjölbrautaskólans í Breiðholti sem er langt komin.