02 júní 2026

/

Beint streymi frá ráðstefnu um valkosti Íslands í gjaldmiðlamálum

{image.Description}

Fjármála- og efnahagsráðherra efnir til ráðstefnu í Hörpu í dag kl. 14-17 í Silfurbergi í Hörpu í tilefni af útgáfu skýrslu um valkosti Íslands í gjaldmiðlamálum. Skýrslan var unnin af hópi erlendra sérfræðinga og er henni ætlað að leggja grunn að upplýstri umræðu um framtíðarfyrirkomulag gjaldmiðlamála á Íslandi.

Streymt verður beint frá ráðstefnunni.
 



Dagskrá ráðstefnunnar:

o      Opnunarávarp: Daði Már Kristófersson fjármála- og efnhagsráðherra.

o      Catherine L. Mann kynnir niðurstöðu skýrslu sérfræðingahóps um valkosti Íslands í gjaldmiðlamálum*.

o      Boris Vujcic varabankastjóri evrópska seðlabankans *

o      Ásgeir Jónsson seðlabankastjóri.

o      Pallborð – Krónan, evran og framtíð gjaldmiðlamála á Íslandi*

      • Daði Már Kristófersson fjármála- og efnahagsráðherra
      • Catherine L. Mann, einn skýrsluhöfunda og fyrrum aðalhafræðingur OECD.
      • Þórarinn G. Pétursson varaseðlabankastjóri
      • Sigríður Benediktsdóttir lektor við Columbia-háskóla

o      Pallborð – Vinnumarkaður og samkeppnishæfni í breyttu gjaldmiðlaumhverfi  

      • Sigurður Hannesson framkvæmdastjóri Samtaka iðnaðarins
      • Finnbjörn A. Hermannsson forseti Alþýðusambands Íslands
      • Gylfi Zoega prófessor við hagfræðideild Háskóla Íslands
      • Una Jónsdóttir forstöðumaður Greiningardeildar Landsbankans

* Stjörnumerktir dagskrárliðir fara fram á ensku. Ráðstefnan verður tekin upp, textuð á íslensku og birt fljótlega á vef ráðuneytisins.