03 júní 2026
/
Hermálanefnd Atlantshafsbandalagsins í heimsókn á Íslandi
Hermálanefnd Atlantshafsbandalagsins heimsótti Ísland í vikunni til að kynnast aðstæðum og framlagi Íslands til sameiginlegra varna bandalagsins. Varaformaður nefndarinnar, Bandaríkjamaðurinn Winston P. Brooks, fylgdi nefndinni til landsins ásamt Litháanum Remigijus Baltrėnas, yfirmanni alþjóðahermálastarfsliðs bandalagsins.
„Heimsókn þessarar mikilvægu nefndar til Íslands er einstakt tækifæri til þess að koma framlagi Íslands til sameiginlegra varna á framfæri innan bandalagsins og vekja athygli á mikilvægi landsins fyrir öryggi og varnir á Norður-Atlantshafi og norðurslóðum. Svo leggjum við líka áherslu á nýta tækifærið til þess að styðja við íslensk nýsköpunarfyrirtæki sem framleiða tæknibúnað með tvíþætt notagildi, en þau hafa margt til málanna að leggja,“ sagði Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra um heimsókn hermálanefndarinnar en nefndin ferðast reglulega til aðildarríkja bandalagsins til að kynna sér aðstæður á hverjum stað.
Í heimsókn sinni til Íslands fékk hermálanefndin ítarlega kynningu á varnarmálum Íslands og innlendu samstarfi á sviði öryggis- og varnarmála, rekstri íslenska loftvarnarkerfsins og framkvæmd varnartengdra verkefna á öryggissvæðinu í Keflavík. Nefndin heimsótt ekki aðeins öryggissvæðið í Keflavík heldur fór jafnframt til Ísafjarðar og Bolungarvíkur þar sem ratsjárstöðin á Bolafjalli var skoðuð og farið í heimsókn í fyrirtækið Kerecis. Þá kynntu Rafnarbátar, Hefring Maritime, og Teledyne Gavia starfsemi sína og framleiðslu. Loks heimsótti hermálanefndin Grindavík og fékk að kynnast viðbrögðum Íslands við jarðhræringunum á Reykjanesskaga.
Winston P. Brooks, varaformaður hermálanefndarinnar, sagði Atlantshafsbandalagið standa frammi fyrir áskorunum í tengslum við örar breytingar á öryggisumhverfinu. „Í heimsókn okkar til Íslands hefur hermálanefndin fengið að sjá hvernig Ísland er að auka og efla sitt framlag til verkefna bandalagsins á Norður-Atlantshafi og norðurslóðum, hér í hjarta GIUK-hliðsins og sem augu og eyru NATO í norðinu. Heimsókn hefur einnig gefið okkur góða innsýn í starfsemi íslenskra fyrirtækja sem standa framarlega í framleiðslu tækja með marghliða getu sem einmitt skiptir sköpum fyrir bandalagið á tæknilegu hliðinni.“
Helsta hlutverk hermálanefndarinnar er að veita fastaráði Atlantshafsbandalagsins varnartengda ráðgjöf til að upplýsa ákvarðanatöku bandalagsins. Nefndin veitir svo æðsta yfirmanni herafla bandalagsins (SACEUR) og yfirmanni breytingaherstjórnar bandalagsins (SACT) leiðsögn í sínum verkefnum. Þannig gegnir nefndin lykilhlutverki í ákvarðanatökuferli bandalagsins, en hún samanstendur af hermálafulltrúum allra bandalagsríkja auk borgaralegs fulltrúa Íslands. Nefndin hefur aðeins einu sinni áður heimsótt Ísland, en það var árið 2007.