03 júní 2026
/
Utanríkisráðherra fundaði með Juraj Blanár, utanríkis- og Evrópumálaráðherra Slóvakíu
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra átti í gær fund með Juraj Blanár, utanríkis- og Evrópumálaráðherra Slóvakíu, en hann er hér á landi í heimsókn til þess að styrkja tengsl Íslands og Slóvakíu.
Efst á baugi í samtali ráðherranna voru tvíhliða samskipti Íslands og Slóvakíu, Evrópumál, málefni Úkraínu og tækifæri til aukins samstarfs við Ísland t.a.m. í nýtingu jarðvarma og aukins samstarfs á háskólastigi, en fjölmargir íslenskir nemendur hafa um árabil sótt sér heilbrigðismenntun í Slóvakíu.
„Það var ánægjulegt að taka á móti Blanár og sjá áhuga hans og stjórnvalda í Slóvakíu á nánara samstarfi við Ísland. Það er margt sem við eigum sameiginlegt með Slóvökum, við erum tvö stórhuga smáríki, við erum bandamenn í Atlantshafsbandalaginu og njótum bæði góðs af Evrópusamstarfi og hinum sameiginlega innri markaði Evrópu. Fjölmargir íslenskir háskólanemar hafa sótt sér heilbrigðismenntun í Slóvakíu og í dag eru yfir 200 nemendur þar í landi. Það er mikill vilji fyrir því að styrkja samstarfið á sviði heilbrigðismála frekar,” sagði Þorgerður Katrín. „Mér þótti það sérstaklega áhugavert að ræða augljós tækifæri til þess að miðla íslenskri sérþekkingu í nýtingu jarðvarma í Slóvakíu. Mér skilst að jarðvarma má finna á um þriðjung landsvæðis þeirra en að ekki sé verið að nýta þannig góða kost til orkuframleiðslu. Þannig að það eru fjölmörg tækifæri til þess að rækta viðskiptasambandið okkar frekar.”
Í heimsókn sinni fundaði Blanár einnig með forseta Íslands, Höllu Tómasdóttur, og utanríkismálanefnd Alþingis.