04 júní 2026
/
Kallað eftir mati kennara á stöðu námsgagna í stærðfræði
Mennta- og barnamálaráðuneytið hefur sett af stað tvær kannanir um stöðu námsgagna í stærðfræði fyrir kennara sem kenna stærðfræði, annars vegar í grunnskólum og hins vegar í framhaldsskólum. Á undanförnum misserum hefur verið bent á að skortur sé á nýju og heildstæðu námsefni, að kennarar þurfi að útbúa eigið efni og að samfella í stærðfræðinámi frá grunnskóla yfir í framhaldsskóla sé ekki alltaf nægilega skýr.
Markmiðið er að fá fram mat kennara á stöðu stærðfræðinámsefnis, hvað hafi reynst vel og hvers konar stuðning þeir telji mikilvægastan við kennslu. Niðurstöðurnar verða nýttar við áframhaldandi vinnu ráðuneytisins við eflingu námsgagnaútgáfu, útgáfu og innleiðingu kennsluleiðbeininga og aukna samfellu í stærðfræðinámi.
Könnunin er liður í því að bæta yfirsýn yfir stöðu menntakerfisins og bregðast við ábendingum úr skólasamfélaginu um stöðu námsgagna í stærðfræði.
Mennta- og barnamálaráðuneytið sendi erindi í dag til allra skólastjórnenda grunnskóla og skólameistara framhaldsskóla og þeir beðnir um að áframsenda könnunina til sinna kennara. Spurt er um reynslu kennara af núverandi námsgögnum í stærðfræði, samfellu milli skólastiga og hvaða stuðning kennarar og nemendur þurfa svo hægt sé að bæta gæði stærðfræðináms. Kannað er hvaða námsefni kennarar nota, hvort það styðji nægilega vel við markmið aðalnámskrár, hvort efni vanti fyrir tiltekin aldursstig og hversu mikið efni kennarar telji sig þurfa að útbúa sjálfir. Þá er spurt um kennsluleiðbeiningar, stafrænar lausnir, þrepaskiptingu náms, stuðning við nemendur með ólíkar þarfir og undirbúning nemenda við upphaf framhaldsskóla.
Ráðuneytið hvetur alla kennara í grunn- og framhaldsskólum sem kenna stærðfræði til að taka þátt, óháð því hvort stærðfræði sé þeirra aðalkennslugrein eða ekki.
Uppfært 9.5.26 kl. 11:07.