05 júní 2026

/

Mál nr. 145/2025 - Álit

ÁLIT

KÆRUNEFNDAR HÚSAMÁLA

í máli nr. 145/2025

 

Frávísun: Litis pendis.

I. Málsmeðferð kærunefndar

Með álitsbeiðni, dags 23. október 2025, beindi A, hér eftir nefnt álitsbeiðandi, til nefndarinnar erindi vegna ágreinings við B, hér eftir nefndur gagnaðili.

Auk álitsbeiðni var greinargerð gagnaðila, dags. 28. nóvember 2025, athugasemdir álitsbeiðanda, mótteknar 9. desember 2025, og athugasemdir gagnaðila, dags. 22. desember 2025, lagðar fyrir nefndina.

Málið var tekið til úrlausnar á fundi nefndarinnar 27. maí 2026.

II. Helstu málsatvik og ágreiningsefni

Um er að ræða fjöleignarhúsið C í Reykjavík, alls 71 eignarhluta. Álitsbeiðandi er húsfélagið en gagnaðili er eigandi íbúðar á fimmtu hæð í húshluta nr. 8.

Kröfur álitsbeiðanda eru:

  1. Að viðurkennt verði að inn- og útsogsventlar í íbúð gagnaðila tilheyri séreign hans.
  2. Að viðurkennt verði að álitsbeiðandi beri ekki ábyrgð á þrifum og/eða stillingum á inn- og útsogsventlum í íbúð álitsbeiðanda.
  3. Að viðurkennt verði að forræði á stillingum inn- og útsogsventla í íbúð gagnaðila séu á ábyrgð gagnaðila.

Kröfur gagnaðila eru:

  1. Að málinu verði vísað frá kærunefnd.
  2. Að kröfum álitsbeiðanda verði hafnað.

Sjónarmið álitsbeiðanda

Álitsbeiðandi segir meðal annars að ágreiningslaust sé að sjálft loftræsikerfi hússins sé í sameign og að það sé á ábyrgð álitsbeiðanda að sjá um viðhald þess. Aftur á móti sé ágreiningur um hvort inn- og útsogsventlar, sem staðsettir séu inni í íbúð gagnaðila og séu auk þess stillanlegir, séu hluti af séreign hans. Hverjum eigenda/íbúa sé heimilt og frjálst að stilla tilvísaða inn- og útsogsventla eftir eigin geðþótta og vilja, þannig að þeir geti stjórnað loftflæði um íbúð sína. Verulegum vandkvæðum sé bundið fyrir álitsbeiðanda að hafa eftirlit með, stjórna stillingum og sjá um þrif á umþrættum loftventlum í íbúðum almennt, sem telji alls 71 eignarhluta í alls fjórum stigagöngum.

Sjónarmið gagnaðila

Gagnaðili byggir kröfu sína um frávísun málsins meðal annars á því ágreiningur aðila hafi þegar verið borinn undir dómstóla.

III. Forsendur

Kröfur álitsbeiðanda lúta að viðurkenningu þess að inn- og útsogsventlar innan íbúðar gagnaðila séu í séreign hans og að hann beri þannig ábyrgð á þrifum og stillingum á þeim. Þá er gerð til viðbótar krafa um viðurkenningu þess að gagnaðili hafi forræði og beri ábyrgð á stillingum á téðum inn- og útsogsventlum. Með athugasemdum sínum í máli þessu lagði gagnaðili fram stefnu í máli sem hann hefur höfðað á hendur álitsbeiðanda og þingfest var í Héraðsdómi Reykjavíkur 15. janúar 2026. Krafa gagnaðila fyrir dómstólum varðar það að álitsbeiðanda beri að greiða kostnað vegna stillingar og hreinsunar á loftræsikerfi hússins í samræmi við matsgerð dómkvadds matsmanns, þá er bæði átt við þann hluta kerfisins sem er utan íbúðar álitsbeiðanda og innan. Kröfuna rökstyður gagnaðili meðal annars á því að loftræsikerfið tilheyri sameign hússins, þar á meðal þeir hlutar þess sem eru innan séreignar hans. Er þannig ljóst að sá ágreiningur sem álitsbeiðandi hefur borið undir nefndina hefur nú verið lagður fyrir dómstóla. Þessu hefur ekki verið mótmælt af hálfu álitsbeiðanda. Kærunefnd brestur heimild til að fjalla um mál sem einnig er rekið fyrir dómstólum, sbr. til hliðsjónar 116. gr. laga nr. 91/1991 um meðferð einkamála og með vísan til litis pendis reglu stjórnsýsluréttar, þ.e. að ekki skuli fjalla efnislega um mál fyrir tveimur handhöfum ríkisvalds á sama tíma. Verður því að fallast á frávísunarkröfu gagnaðila.

Álit nefndarinnar hindrar ekki aðila í að leggja ágreining sinn fyrir dómstóla með venjulegum hætti, sbr. 6. mgr. 80. gr. laga um fjöleignarhús.


IV. Niðurstaða

Það er álit kærunefndar að vísa beri kröfum álitsbeiðanda frá kærunefnd.

 

Reykjavík, 27. maí 2026

 

 

Auður Björg Jónsdóttir

 

 

Þorvaldur Hauksson                                                              Eyþór Rafn Þórhallsson