05 júní 2026

/

Rúmlega 479 milljónum úthlutað úr Matvælasjóði

{image.Description}

Hanna Katrín Friðriksson atvinnuvegaráðherra hefur úthlutað rúmlega 479 milljónum króna úr Matvælasjóði. Alls hljóta 42 verkefni styrk en 131 umsókn upp á rúmlega tvo milljarða barst til sjóðsins. Hæstu styrkir nema 30 milljónum króna.

„Það er ánægjulegt að úthluta úr Matvælasjóði en þetta er í sjöunda sinn sem úthlutað er úr sjóðnum,“ segir Hanna Katrín Friðriksson, atvinnuvegaráðherra. „Líkt og fram kom í úttekt sem Rannsóknamiðstöð Háskólans á Akureyri gerði þá hefur sjóðurinn skapað umtalsverðan ávinning fyrir íslenska matvælageirann. Sjóðurinn hefur því svo sannarlega sannað gildi sitt og er afar mikilvægur fyrir nýsköpun, og þar með verðmætasköpun, í íslenskri matvælaframleiðslu.“

Hlutverk Matvælasjóðs er að styrkja þróun og nýsköpun við framleiðslu og vinnslu matvæla og hliðarafurða úr landbúnaðar- og sjávarafurðum. Áhersla er á nýsköpun, sjálfbærni, verðmætasköpun og samkeppnishæfni íslenskra matvæla. Sjóðnum er einnig heimilt að styðja við vöruþróun á erlendum mörkuðum. Sjóðurinn fylgir eftir heimsmarkmiðum Sameinuðu þjóðanna. Í þessum tilgangi styrkir sjóðurinn verkefni og rannsóknir einstaklinga og lögaðila. Frá 2020 hefur sjóðurinn veitt styrki til 365 verkefna samtals að upphæð 3.655 milljónir króna.

Svarbréf hafa þegar verið send umsækjendum í gegnum Ísland.is og eru aðgengileg umsækjendum í umsóknarkerfi.