08 júní 2026

/

Forsýning kvikmyndarinnar Eldarnir í París

{image.Description}

Kvikmyndin Eldarnir eftir Uglu Hauksdóttur verður forsýnd í kvikmyndahúsinu Le Grand Action í hjarta Parísarborgar þriðjudaginn 16. júní nk.  Sýningin er hluti að samstarfsverkefni norrænu sendiráðanna og menningarstofnananna í París, Ciné-club nordique.

Leikstjóri Eldanna, Ugla Hauksdóttir, og aðalleikona kvikmyndarinnar, Vigdís Hrefna Pálsdóttir, verða viðstaddar forsýninguna og taka þátt í léttu spjalli fyrir og eftir sýninguna.

Söguþráður: Anna Arnardóttir, einn helsti eldfjallafræðingur Íslands, stendur frammi fyrir tvennum hamförum: eldgosi sem ógnar öryggi höfuðborgarbúa og ástarsambandi sem gæti eyðilagt hjónaband hennar.

Norræni kvikmyndaklúbburinn Ciné-club nordique var settur á laggirnar í kjölfar velgengni norrænu kvikmyndahátíðarinnar Visions nordiques sem haldin var París í fyrra.  Í hverjum mánuði er ein sérvalin norræn kvikmynd sýnd í kvikmyndahúsinu Le Grand Action í París.  Að sýningu lokinni gefst viðstöddum færi á að hlýða á og taka þátt í umræðum með aðstandendum kvikmyndarinnar eða öðrum sérfræðingum.