09 júní 2026

/

Haldið upp á Heimsdag hafsins í Hörpu

{image.Description}
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra með nemendum úr 10. bekk Árbæjarskóla.

Utanríkisráðuneytið og Sjálfbærnistofnun Háskóla Íslands stóðu fyrir málþingi í Björtuloftum Hörpu í tilefni af heimsdegi hafsins (e. World Oceans Day) í gær. 

Sameinuðu þjóðirnar samþykktu árið 2008 að tilnefna 8. júní ár hvert sem Heimsdag hafsins til að minna á mikilvægi hafsins fyrir þjóðir heims og hvetja til aukinnar vitundar um nauðsyn verndunar þess. Var þetta í fyrsta sinn sem haldið er upp á heimsdag hafsins hér á landi. Dagsetningin hafði sérstaka skírskotun að þessu sinni þar sem hún féll nærri íslenska sjómannadeginum. 

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra opnaði málþingið og flutti Jóhann Páll Jóhannsson umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra lokaorð. 

Málþinginu var skipt upp í tvö meginþemu sem voru málefni hafsins á alþjóðavettvangi annars vegar og mikilvægi verndunar hafsins og sjálfbærrar nýtingar þess fyrir Ísland sem hafríki hins vegar. Meðal þeirra sem fluttu erindi á málþinginu voru fulltrúar frá Hafrannsóknarstofnun, Sjávarklasanum, Samtökum fyrirtækja í sjávarútvegi, Sjávarútvegsskóla GRÓ, Náttúruminjasafni Íslands og Biodice, og utanríkisráðuneytinu, atvinnuvegaráðuneytinu og umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytinu. Stefán Jón Hafstein var fundarstjóri.

Meðal viðfangsefna voru ábyrg nýting og alþjóðlegt samstarf í sjávarútvegi, veltihringrás Atlantshafsins (AMOC) og viðbrögð við loftslagstengdum vendipunktum í stjórnkerfinu og alþjóðamál hafsins. 

Fulltrúar yngri kynslóðarinnar gegndu einnig veigamiklu hlutverki á málþinginu en nemendur í 10. bekk Árbæjarskóla kynntu lokaverkefni sem þau höfðu unnið um hafið og tvö þeirra kynntu sýn sína á málaflokkinn og það sem betur mætti fara. Þá gafst gestum á málþinginu færi á að ganga á milli og skoða verkefnin. Sæunn Júlía Sigurjónsdóttir, verndunarlíffræðingur hjá Náttúruminjasafni Íslands og Biodice, hélt jafnframt erindi um ungt fólk og fræðslu um hafið en ungir umhverfissinnar gáfu nýlega út handbók um hafið, fræðslubók ætlaða ungu fólki á aldrinum 13-30 ára. Þá gafst einnig tækifæri á að skoða Súlu, nýtt ómannað hátæknihafrannsóknafar frá  sjávarrrannsóknasetrinu Röst.