09 júní 2026

/

Ríkisstjórnin samþykkir áframhaldandi vinnu við skýrari umgjörð um skóla á mörkum skólastiga

{image.Description}

Ríkisstjórnin ræddi á fundi sínum síðastliðinn föstudag um tillögur starfshóps sem fjallaði um einkarekið nám sem er á mörkum framhalds- og háskólastigs. Samþykkt var að fela hlutaðeigandi ráðuneytum að vinna áfram að útfærslu og eftirfylgni tillagnanna. 

Starfshópurinn var skipaður af forsætisráðherra í nóvember 2025 í samráði við mennta- og barnamálaráðherra, menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra og innviðaráðherra. Verkefni hans var að greina stöðu einkarekinna skóla sem starfa á mörkum framhalds- og háskólastigs og leggja fram tillögur um skýrari stefnu og lagaumgjörð. 

Í skýrslu starfshópsins kemur fram að núverandi umgjörð einkaskóla á framhaldsskólastigi einkennist meðal annars af takmarkaðri samhæfingu milli málaflokka, óskýrri tengingu milli viðurkenningar skóla, samningsgerðar og opinbers stuðnings og skorti á samræmdri stefnu um nám á mörkum skólastiga. Greiningin bendir jafnframt til þess að styrkja þurfi fyrirsjáanleika og jafnræði nemenda óháð rekstrarformi skóla. 

Starfshópurinn leggur fram fjórar tillögur sem miða að því að skapa skýrari og samræmdari umgjörð: 

  • Endurskoðun laga um framhaldsskóla með áherslu á að skýra tengsl viðurkenningar, samninga og fjármögnunar sjálfstætt rekinna framhaldsskóla og tryggja fyrirsjáanlega umgjörð um starfsemi þeirra, 
  • Skýrari afmörkun náms á 4. hæfniþrepi og náms á mörkum skólastiga með það að markmiði  að styðja við samfellu náms á milli skólastiga og auka fyrirsjáanleika fyrir nemendur, 
  • Mótun heildstæðrar stefnu um listnám á framhaldsskólastigi og á mörkum skólastiga, 
  • Skýrari umgjörð um flugnám og nám í flugtengdum greinum. 

Markmið tillagnanna er að stuðla að auknu jafnræði nemenda, skýrari ábyrgð hins opinbera og betri samfellu milli skólastiga. Með samþykkt ríkisstjórnarinnar verður unnið áfram að útfærslu tillagnanna í samstarfi hlutaðeigandi ráðuneyta. Fjárhagsleg áhrif verða metin við nánari útfærslu. 

Málefni einkaskóla á framhaldsskólastigi og á mörkum skólastiga - Tillögur starfshóps