10 júní 2026

/

Ný aðgerðaáætlun um bætta talmeinaþjónustu við börn

{image.Description}
Börn að leik

Heilbrigðisráðuneytið og mennta- og barnamálaráðuneytið hafa birt sameiginlega aðgerðaáætlun um bætta talmeinaþjónustu við börn til ársins 2028. Markmið áætlunarinnar er að tryggja börnum hraðari, einfaldari og markvissari aðgang að talmeinaþjónustu sem miðast við þarfir hvers barns og er veitt sem mest í nærumhverfi þess.

Í áætluninni er lögð áhersla á snemmtækan stuðning, samþættingu þjónustu og skýrara þjónustuferli fyrir börn og fjölskyldur þeirra. Meðal aðgerða er að fjölga talmeinafræðingum í heilsugæsluþjónustu til að styðja við ung- og smábarnavernd, efla þjónustu í nærumhverfi barna og tryggja að sérfræðiþjónusta sé aðgengileg þegar hennar er þörf.

Jafnframt er gert ráð fyrir innleiðingu á miðlægum biðlista eftir sérfræðiþjónustu talmeinafræðinga til að bæta yfirsýn yfir raunverulega þjónustuþörf og stytta biðtíma. Þá verður krafa um læknatilvísanir afnumin þannig að aðrir sérfræðingar sem koma að þjónustu barns geti sótt um sérfræðiþjónustu fyrir þess hönd.

Áætlunin tekur einnig á mönnunarvanda í faginu með því að leggja grunn að nýrri námsleið fyrir aðstoðarfólk talmeinafræðinga sem getur stutt við snemmtæka íhlutun og þjónustu í leik- og grunnskólum undir handleiðslu talmeinafræðinga.

„Stytting biðlista barna er áherslumál ríkisstjórnarinnar. Börn eiga ekki að þurfa að bíða eftir viðeigandi stuðningi. Með þessari áætlun er stigið mikilvægt skref í átt að aðgengilegri, samræmdari og skilvirkari talmeinaþjónustu sem byggir á hagsmunum barnsins og farsæld þess,“ segir Alma D. Möller, heilbrigðisráðherra.

Aðgerðaáætlunin nær til áranna 2026–2028 og verður framkvæmd í samstarfi ríkis, sveitarfélaga og helstu hagsmunaaðila á sviði talmeinaþjónustu og farsældar barna.