10 júní 2026
/
Til umsagnar: Aðgerðaáætlun um þjónustu við einstaklinga með heilabilun
Alþjóða heilbrigðismálastofnunin hefur hvatt þjóðir heims til að setja fram aðgerðaáætlanir um þjónustu við einstaklinga með heilabilun, ekki síst í ljósi mikillar fjölgunar þeirra sem vænta má að greinist með heilabilun á næstu árum og áratugum. Heilbrigðisráðuneytið hefur birt drög að slíkri áætlun til umsagnar í samráðsgátt stjórnvalda. Umsagnarfrestur er til 30. júní næstkomandi.
Fyrsta íslenska aðgerðaáætlunin um þjónustu við einstaklinga með heilabilun var sett fram árið 2019 og gilti til ársins 2025. Sú áætlun byggði á stefnu í málefnum einstaklinga með heilabilun sem unnin var af Jóni Snædal öldrunarlækni, í kjölfar þingsályktunar og erindisbréfs þáverandi heilbrigðisráðherra. Settar voru fram 48 aðgerðir, allar með mælanleg markmið sem unnið hefur verið eftir. Meiri hluti þeirra hefur náðst fram þó að sumum hafi verið unnið á annan hátt eða af öðrum aðilum en upphaflega var ráðgert.
Vinna við uppfærslu gildandi aðgerðaáætlunar hófst síðla ár 2025, í samvinnu sérfræðings heilbrigðisráðuneytisins, Jóns Snædals öldrunarlæknis og Guðlaugs Eyjólfssonar, framkvæmdastjóra Azheimersamtakanna.
Sú aðgerðaáætlun sem hér er sett fram byggir á fyrri áætlun en tekur þó ekki síður mið af þeim áherslubreytingum sem orðið hafa síðustu fimm árin í málefnum og þjónustu við einstaklinga með heilabilun. Sérstök áhersla er á forvarnir og snemmtæka íhlutun. Settar eru fram 27 tímasettar aðgerðir og ábyrgðaraðilar um framkvæmd skilgreindir fyrir hverja aðgerð.