11 júní 2026

/

Mál nr. 338/2026-Úrskurður

Úrskurðarnefnd velferðarmála

Mál nr. 338/2026

Fimmtudaginn 11. júní 2026

A

gegn

Sjúkratryggingum Íslands

Ú R S K U R Ð U R

Mál þetta úrskurða Kári Gunndórsson lögfræðingur, Eva Dís Pálmadóttir lögfræðingur og Kristinn Tómasson læknir.

Með kæru, sem barst 12. maí 2026, kærði A, til úrskurðarnefndar velferðarmála ákvörðun Sjúkratrygginga Íslands frá 19. mars 2026, um greiðsluþátttöku í tannlækningum.

I. Málsatvik og málsmeðferð

Kærandi sótti um greiðsluþátttöku í tannlækningum erlendis til Sjúkratrygginga Íslands. Með ákvörðun Sjúkratrygginga Íslands, dags. 19. mars 2026, var umsókn samþykkt að hluta.

Kæra barst úrskurðarnefnd velferðarmála 12. maí 2026. Með bréfi, dags. 13. maí 2026, óskaði úrskurðarnefnd eftir greinargerð Sjúkratrygginga Íslands í málinu. Með tölvupósti 28. maí 2026 tilkynntu Sjúkratryggingar Íslands að áður en kæra hafi borist hefði stofnuninni borist beiðni um endurupptöku á ákvörðun stofnunarinnar og þar sem endanleg afstaða liggi ekki fyrir beri að vísa málinu frá.

II.  Sjónarmið kæranda

Kærandi óskar eftir að úrskurðarnefndin endurskoði ákvörðun Sjúkratrygginga Íslands, krefji stofnunina um fullnægjandi sundurliðun útreiknings, leggi mat á hvort rétt hafi verið staðið að beitingu hámarksstyrks samkvæmt 8. gr. reglugerðar nr. 766/2024 og að greiðsluþátttaka verði endurreiknuð og leiðrétt komist nefndin að þeirri niðurstöðu að fjárhæð greiðslunnar hafi verið ranglega ákvörðuð.

 

III.  Sjónarmið Sjúkratrygginga Íslands

Í tölvupósti Sjúkratrygginga Íslands segir að þann 28. apríl 2026, áður en kæra hafi borist, hafi stofnuninni borist beiðni um endurupptöku á ákvörðun stofnunarinnar, dags. 19. mars 2026. Beiðni um endurupptöku sé enn til skoðunar hjá Sjúkratryggingum Íslands og liggi afstaða stofnunarinnar til endurupptöku ekki fyrir. Í ljósi þess að beiðni um endurupptöku hafi borist áður en kæra hafi borist telji Sjúkratryggingar Íslands að vísa beri málinu frá þar sem endanleg afstaða stofnunarinnar liggi ekki fyrir í málinu, sbr. umfjöllun um 24. gr. í greinargerð með frumvarpi til stjórnsýslulaga nr. 37/1993.

IV.  Niðurstaða

Mál þetta varðar afgreiðslu Sjúkratrygginga Íslands á umsókn kæranda um greiðsluþátttöku í kostnaði við tannlækningar.

Áður en kærandi kærði ákvörðun Sjúkratrygginga Íslands til úrskurðarnefndar velferðarmála óskaði hún eftir endurupptöku málsins hjá Sjúkratryggingum Íslands. Það er meginregla í stjórnsýslurétti að ekki skuli fjalla efnislega um mál á tveimur stjórnsýslustigum á sama tíma og ber æðra stjórnvaldi almennt að vísa máli frá ef óskað er eftir endurupptöku málsins hjá lægra settu stjórnvaldi áður en mál er kært. Með vísan til framangreinds er kæru því vísað frá úrskurðarnefndinni en kæranda bent á að þegar ný ákvörðun liggur fyrir hjá Sjúkratryggingum Íslands getur hún kært þá ákvörðun til nefndarinnar.

 

 


 

Ú R S K U R Ð A R O R Ð

Kæru A, er vísað frá úrskurðarnefnd velferðarmála.

F.h. úrskurðarnefndar velferðarmála

Kári Gunndórsson