11 júní 2026
/
Regluverk um jarðboranir, markmið um mengunarvarnir og skilvirkt eftirlit
Með nýsamþykktum breytingum á lögum um hollustuhætti og mengunarvarnir, sbr. lög nr. 30/2026, voru m.a. gerðar breytingar hvað varðar færanlega starfsemi, þar á meðal jarðbora. Lögin tóku gildi 27. mars sl., og taka því til leyfisveitinga og starfsemi sem fram fer eftir þann tíma. Í dag undirritaði umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra tvær reglugerðarbreytingar sem tengjast þessum lagabreytingum.
Með lagabreytingunum varð færanleg starfsemi, þar á meðal jarðborar, starfsleyfisskyld hjá Umhverfis- og orkustofnun. Áður var einstök framkvæmd jarðborunar starfsleyfisskyld og því var hver og einn jarðbor ekki háður starfsleyfi. Breytingarnar fela einnig í sér að hver einstök framkvæmd jarðborunar er nú tilkynningarskyld til Umhverfis- og orkustofnunar, til viðbótar starfsleyfinu. Starfsleyfishafar jarðbors þurfa því að uppfylla kröfur tilkynningarskyldunnar áður en hver einasta framkvæmd hefst.
Breytt fyrirkomulag tryggir því að Umhverfis- og orkustofnun hafi skýrari upplýsingar um hver ber ábyrgð á starfseminni þar sem hver einasti jarðbor er nú háður starfsleyfi. Áður var ekki samræmt hver sótti um starfsleyfi vegna einstakra framkvæmda og þá hvort verktaki eða t.d. undirverktaki stóð fyrir framkvæmdinni. Því var ábyrgð á borun óljós. Í ofanálag er nú tryggt að hver einasta framkvæmd er tilkynnt til stofnunarinnar, og er óheimilt að hefja framkvæmdir nema tilkynningarskylda sé uppfyllt. Með breytingunum fæst því betri yfirsýn yfir framkvæmdir og eftirlit með jarðborunum verður markvissara.
Jarðboranir eru áfram undirorpnar regluverki um mat á umhverfisáhrifum og háðar regluverki um framkvæmdaleyfi sveitarfélaga. Á því var ekki gerð nein breyting. Í framkvæmdaleyfum sveitarfélaga eru því sérstakar kröfur til jarðborana sem eiga áfram við um starfsemina.
Uppfylli tilkynningaskyldu fyrir hverja framkvæmd
Drög að reglugerðum sem ráðherra undirritaði í dag höfðu verið í samráðsgátt stjórnvalda í apríl og maí. Önnur þeirra kveður á um fyrrnefnda tilkynningarskyldu og þær kröfur sem er að finna til starfsleyfishafa um efni til tilkynninga til Umhverfis- og orkustofnunar vegna fyrirhugaðrar færanlegrar starfsemi auk tilkynningarfrests. Hin kveður á um skráningarskyldu minni jarðbora.
Ráðuneytið vann úr umsögnum um reglugerðirnar. Meðal breytinga sem gerðar voru frá því í samráðsgátt, er að til þess að starfsleyfishafi uppfylli tilkynningarskyldu fyrir hverja framkvæmd, ber honum að standa skil á áætlun um meðhöndlun úrgangs vegna framkvæmdarinnar.
Með breytingunum á regluverki vegna starfsemi jarðborana er ábyrgð stjórnvalda samkvæmt mismunandi leyfum skýrari og verkaskipting betur afmörkuð. Fyrir breytinguna skaraðist ábyrgð milli heilbrigðiseftirlita og sveitarfélaga við leyfisveitinguna en úr því hefur nú verið greitt.
Umhverfisvernd verði höfð að leiðarljósi
Markmið breytinganna er að tryggja að framkvæmdir fari fram með fullnægjandi umhverfisvernd að leiðarljósi og að eftirlit og viðbrögð séu þannig úr garði gerð að draga megi úr hættu á umhverfistjóni og bregðast hratt við ef frávik verða. Framkvæmdaaðilar bera jafnframt ábyrgð á því að starfsemi þeirra sé í samræmi við lög og leyfi og á þeim umhverfisáhrifum sem af henni kunna að leiða.
Umhverfis- og orkustofnun annast framkvæmd regluverksins og veitir hagsmunaaðilum nánari leiðbeiningar eftir þörfum. Ráðuneytið mun áfram fylgjast með framkvæmd leyfisveitinga og eftirliti með jarðborunum til að tryggja að fyrirkomulagið sé skilvirkt og stuðli að vernd umhverfis og náttúru. Breytingarnar eru í innleiðingu og ekki eru allir framkvæmdaaðilar búnir að sækja um starfsleyfi fyrir jarðbor og því hafa verið gefin út einhverjar bráðabirgðaheimildir.