11 júní 2026

/

Tveimur málum gegn Íslandi vísað frá hjá MDE

{image.Description}
iStock

Mannréttindadómstóll Evrópu vísaði í morgun frá tveimur málum gegn Íslandi.
Í öðru málinu var því haldið fram að íslenska ríkið hefði brugðist skyldum sínum með því að gefa ekki út ákæru í kynferðisbrotamáli og ekki verndað viðkomandi gegn kynbundnu ofbeldi. Mannréttindadómstóllinn vísaði málinu frá á grundvelli a-liðar 3. mgr. 35.gr. MSE.

Í hinu málinu var fjallað um félagafrelsi. Lyfjafræðingur hjá Landspítalanum taldi brotið gegn félagafrelsi sínu þegar Félagsdómur gerði henni að sæta aðild að Lyfjafræðingafélagi Íslands. Lyfjafræðingurinn sagði sig úr lyfjafræðingafélaginu og gekk í Félag náttúrufræðinga Íslands, FÍN. 

Hún fór þess síðan á leit við Landspítalann að kjarasamningur FÍN gilti um starfskjör hennar hjá spítalanum. Landspítalinn hafnaði því og höfðaði FÍN mál fyrir Félagsdómi sem hafnaði kröfum félagsins.  Mannréttindadómstóllinn taldi að viðkomandi hefði ekki tæmt innlend réttarúrræði og því var málinu vísað frá.