12 júní 2026
/
Dómnefnd birtir umsögn um tvö dómaraembætti við Landsrétt
Dómnefnd um hæfni umsækjenda um embætti dómara hefur skilað umsögn um umsækjendur um tvö dómaraembætti við Landsrétt. Umsagnirnar eru tvær og eru báðar birtar hér að neðan.
Annað embættið var auglýst laust til umsóknar 27. mars og er með skipunartíma frá 5. október. Hitt embættið var auglýst 1. apríl og er með skipunartíma frá 1. september.
Niðurstaða nefndarinnar er að Eiríkur Elís Þorláksson sé hæfastur umsækjenda og að Berglind Svavarsdóttir, Halldóra Þorsteinsdóttir, Hildur Briem, Hulda Árnadóttir og Ragnheiður Snorradóttir séu jafn hæfar.
Dómnefndina skipuðu Ása Ólafsdóttir, formaður, Helga Melkorka Óttarsdóttir, Arnfríður Einarsdóttir, Reimar Pétursson og Þorgeir Örlygsson.
Umsögn um embætti sem auglýst var 27.mars.
Umsögn um embætti sem auglýst var 1.apríl.