12 júní 2026
/
Utanríkisráðherra tók þátt í alþjóðlegum fundi um frið í Mið-Austurlöndum
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra tók í dag þátt í alþjóðlegri ráðstefnu í París um leiðir til að stuðla að friði, öryggi og réttlæti fyrir Ísraela og Palestínumenn. Ráðherrar og fulltrúar frjálsra félagasamtaka tóku þátt í ráðstefnunni sem haldin var að frumkvæði franskra stjórnvalda. Þorgerður Katrín tók einnig þátt í ráðherrafundi sem Jean-Noël Barrot, utanríkisráðherra Frakklands, stóð fyrir. Þar voru rædd málefni Palestínu og Ísraels auk stöðunnar í Líbanon, Íran og á Hormússundi. Á fundinum lagði ráðherra áherslu á að nauðsynlegt væri að ná fram heildstæðri samningsbundinni lausn á átökum á svæðinu og að Ísland myndi áfram kalla eftir friðsamlegri lausn deilna.
Í ávarpi sínu lagði ráðherra áherslu á að tveggja ríkja lausnin væri enn eina raunhæfa leiðin til varanlegs friðar og öryggis í Mið-Austurlöndum. Hún minnti á að Ísland hefði viðurkennt Palestínu árið 2011 og stutt með skýrum hætti rétt Palestínumanna til sjálfsákvörðunar samhliða rétti Ísraela til að búa við öryggi og frið.
„Þótt aðstæður á vettvangi geri framtíðarsýn um tveggja ríkja lausn erfiða um þessar mundir, er hún enn eina raunhæfa leiðin til sjálfbærs friðar og öryggis,“ sagði ráðherra.
„Mér þótti sérlega áhugavert að heyra mál fulltrúa frjálsra félagasamtaka sem starfa á vettvangi. Þau lögðu áherslu á mikilvægi þess að fólkið í framlínunni, sem dag hvern mætir afleiðingum þeirra áskorana sem við er að eiga, þyrfti að vera með í samtalinu um mögulegar úrlausnir. Staðreyndin væri sú að beggja vegna sé fólk sem er ötullega að berjast fyrir frið,” segir Þorgerður Katrín.
Ástandið í Líbanon og á Hormússundi einnig í brennidepli
Þorgerður Katrín undirstrikaði í erindi sínu á ráðstefnunni mikilvægi virðingar fyrir alþjóðalögum og fordæmdi áframhaldandi hernaðaraðgerðir á Gaza og ítrekaði fordæmingu Íslands á hryðjuverkaárás Hamas í október 2023. Jafnframt lagði hún áherslu á að Hamas gæti ekki gegnt hlutverki í framtíðarstjórn Gaza.
Ráðherra lýsti yfir áhyggjum af versnandi stöðu á svæðinu og sagði nýlega þróun hafa dregið úr líkum á því að hægt verði að sporna við stigmögnun eða koma á uppbyggilegu samtali. Hún áréttaði mikilvægi siglingafrelsis um Hormússund ogítrekaði stuðning Íslands við fullveldi og landamæri Líbanon. Hún hvatti alla aðila til að stöðva hernaðaraðgerðir og ítrekaði þar með efni sameiginlegrar yfirlýsingar sem hún átti hlut að með ellefu öðrum leiðtogum í sl. viku. Jafnframt lagði hún áherslu á mikilvægi þess að tryggja öruggan og óhindraðan aðgang þurfandi að mannúðaraðstoð.
Ráðstefnan í París er hluti af áframhaldandi alþjóðlegu átaki til að efla stuðning við tveggja ríkja lausnina og virkja borgarasamfélagið í þágu friðar, öryggis og sátta milli Ísraela og Palestínumanna.