12 júní 2026

/

Vegna Þjóðaratkvæðagreiðslu

{image.Description}

Alþingi samþykkti nýverið þingsályktun um að efna til þjóðaratkvæðagreiðslu um framhald aðildarviðræðna Íslands við Evrópusambandið. Atkvæðagreiðslan fer fram laugardaginn 29. ágúst 2026, en utankjörfundaratkvæðagreiðsla verður opin frá 27. júlí 2026.

Hægt verður að kjósa í sendiráðinu og hjá ræðismönnum þar sem það á við. Nánari upplýsingar um staðsetningar, opnunartíma og fyrirkomulag verða kynntar þegar nær dregur.

Af þessu tilefni hefur utanríkisráðuneytið opnað sérstaka upplýsingasíðu á íslensku og ensku sem verður uppfærð reglulega eftir því sem nýjar upplýsingar berast. Sendiráðið mun sömuleiðis veita frekari upplýsingar þegar þær liggja fyrir, en í millitíðinni hvetjum við öll til að skoða upplýsingarsíðurnar, sem eru í athugasemdum hér að neðan.

Stjórnarráðið | Þjóðaratkvæðagreiðsla um framhald aðildarviðræðna við Evrópusambandið

Government of Iceland | 29 August 2026 - Referendum on the resumption of EU accession negotiations