15 júní 2026
/
Lóu nýsköpunarstyrkjum úthlutað til fjölbreyttra verkefna um allt land
Lóu-nýsköpunarstyrkjum fyrir árið 2026 hefur verið úthlutað til fjölbreyttra verkefna sem eiga það sameiginlegt að efla nýsköpun, verðmætasköpun og samfélagslega þróun á landsbyggðinni. Alls hlýtur 21 verkefni styrk í ár og nemur heildarstyrkupphæðin 100 milljónum króna.
Styrkirnir renna meðal annars til verkefna á sviði matvælanýsköpunar, orkumála, heilbrigðistækni, menntunar, stafrænnar miðlunar og sjálfbærrar nýtingar auðlinda. Meðal styrkþega eru verkefni á borð við samferðakerfið Góða ferð á Vestfjörðum, Bændabatterí fyrir íslenskan landbúnað, Fjarlækningar, Startup Landið og þróunarverkefni tengd nýtingu sjávarafurða, þörunga og endurnýjanlegrar orku.
Verkefnin endurspegla kraft og fjölbreytni nýsköpunar víða um land og sýna hvernig hugmyndir úr nærsamfélaginu geta orðið að lausnum sem styrkja atvinnulíf, bæta þjónustu og skapa ný tækifæri.
Lista yfir verkefnin og styrkupphæðir má nálgast hér að neðan.