15 júní 2026
/
Mál nr. 169/2026-Úrskurður
Úrskurðarnefnd velferðarmála
Mál nr. 169/2026
Mánudaginn 15. júní 2026
A
gegn
Vinnumálastofnun
Ú R S K U R Ð U R
Mál þetta úrskurða Hólmfríður Birna Guðmundsdóttir lögfræðingur, Agnar Bragi Bragason lögfræðingur og Arnar Kristinsson lögfræðingur.
Með kæru, dags. 27. febrúar 2026, kærði A, til úrskurðarnefndar velferðarmála ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 26. febrúar 2026, um að setja greiðslur atvinnuleysisbóta til hans á bið.
I. Málsatvik og málsmeðferð
Kærandi sótti um greiðslur atvinnuleysisbóta hjá Vinnumálastofnun 31. janúar 2026. Með bréfi Vinnumálastofnunar, dags. 26. febrúar 2026, var kæranda tilkynnt að umsókn hans hefði verið samþykkt en með vísan til þess að hann ætti ótekinn biðtíma frá fyrri umsókn yrðu bætur ekki greiddar fyrr en sá tími væri liðinn.
Kæra barst úrskurðarnefnd velferðarmála 27. febrúar 2026. Með bréfi, dags. 10. mars 2026, óskaði úrskurðarnefndin eftir greinargerð Vinnumálastofnunar ásamt gögnum málsins. Greinargerð Vinnumálastofnunar barst 8. apríl 2026 og var hún kynnt kæranda með bréfi úrskurðarnefndar, dags. 9. apríl 2026. Athugasemdir bárust ekki.
II. Sjónarmið kæranda
Í kæru til úrskurðarnefndar kemur fram að kærandi skilji ekki hvers vegna hann þurfi að bíða í tvo mánuði eftir atvinnuleysisbótum vegna vinnu sem hann hafi hafnað 22. apríl 2025. Kærandi hafi þá verið búinn að skrifa undir ráðningarsamning hjá B og hafi sú vinna hafist þann 21. maí 2025. Kæranda finnist þetta óskiljanlegt. Hann hafi hafnað vinnunni í apríl því hann hafi verið kominn með vinnu sem hafi byrjað mánuði síðar.
Kærandi óski þess að nefndin taki kæru hans til efnislegrar meðferðar og tryggi að hann fái þær atvinnuleysisbætur sem hann eigi rétt á. Kærandi óski þess að biðtíminn verði felldur niður þar sem hann hafi verið með staðfesta vinnu hjá B sem hafi hafist 21. maí 2025. Þá fari kærandi fram á að atvinnuleysisbætur verði greiddar sem fyrst fyrir þann tíma sem sé liðinn frá virkjun bótaréttar hans. Til vara fari kærandi fram á að biðtíminn verði styttur verulega með hliðsjón af sérstökum aðstæðum í hans máli.
Kærandi haldi því fram að ákvörðun Vinnumálastofnunar um biðtíma hafi í hans tilfelli ekki þjónað markmiðum laga um atvinnuleysistryggingar. Kærandi hafi hafnað þátttöku í vinnumarkaðsúrræði 22. apríl 2025 ekki til að forðast vinnu eða halda áfram á bótum heldur vegna þess að hann hafi þegar undirritað ráðningarsamning við B. Ásetningur kæranda hafi verið skýr um að hefja starf sem hafi hafist skömmu síðar.
Að mati kæranda sé beiting biðtíma í hans tilviki ósanngjarnt og óþarft þar sem hann hafi verið á leiðinni út af atvinnuleysisskrá og hafi þegar tryggt sér starf. Með vísan til alls framangreinds telji kærandi að sérstakar aðstæður í hans máli réttlæti að biðtíminn verði felldur niður og bætur greiddar strax. Kærandi leggi ríka áherslu á að kæran verði tekin til efnislegrar meðferðar og að bætur sem hann eigi rétt á verði greiddar án frekari tafa.
III. Sjónarmið Vinnumálastofnunar
Í greinargerð Vinnumálastofnunar kemur fram að upphaf málsins megi rekja til ákvarðana Vinnumálastofnunar frá 28. febrúar 2025 og 22. apríl 2025. Með ákvörðunum stofnunarinnar hafi kæranda verið gert að sæta viðurlögum á grundvelli 1. mgr. 55. gr. laga um atvinnuleysistryggingar og síðar á grundvelli 1. mgr. 58. gr. sömu laga. Bótaréttur kæranda hafi með framangreindum ákvörðunum verið felldur niður í tvo mánuði og svo þrjá mánuði, sbr. 1. mgr. 61. gr. laganna.
Kærandi hafi verið afskráður í kerfum stofnunarinnar frá og með 21. maí 2025. Eftirstöðvar viðurlaga hans á þeim tímapunkti hafi verið 2,05 mánuðir.
Kærandi hafi sótt að nýju um greiðslu atvinnuleysisbóta með umsókn, dags. 31. janúar 2025. Með erindi, dags. 26. febrúar 2026, hafi kæranda verið tilkynnt að umsókn hans væri samþykkt en með vísan til ótekinna viðurlaga hans yrðu bætur hins vegar ekki greiddar fyrr en að 2,05 mánuðum liðnum.
Framangreind ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 26. febrúar 2026, hafi verið kærð til úrskurðarnefndar velferðarmála þann 27. febrúar 2026. Í kæru greini kærandi frá því að hann skilji ekki af hverju hann þurfi að bíða eftir greiðslum atvinnuleysisbóta í tvo mánuði vegna höfnunar á atvinnutilboði í apríl 2025. Hann hafi hafnað fyrirliggjandi atvinnutilboði sökum þess að hann hafi þegar verið kominn með vinnu sem myndi hefjast í lok maí 2025.
Lög nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar gildi um atvinnuleysistryggingar launamanna eða sjálfstætt starfandi einstaklinga á innlendum vinnumarkaði þegar þeir verði atvinnulausir, sbr. 1. gr. laganna.
Mál þetta varði þá ákvörðun Vinnumálastofnunar að kærandi skuli sæta eftirstöðvum viðurlaga sinna þegar hann hafi sótt um greiðslu atvinnuleysisbóta þann 31. janúar 2026.
Þann 28. febrúar 2025 hafi umsókn kæranda, dags. 8. janúar 2025, verið samþykkt. Með vísan til námsloka kæranda hafi réttur kæranda til greiðslna atvinnuleysisbóta verið felldur niður í tvo mánuði á grundvelli 1. mgr. 55. gr. laga um atvinnuleysistryggingar. Þá hafi kæranda þann 22. apríl 2025 verið gert að sæta viðurlögum á grundvelli 1. mgr. 58. gr. laga um atvinnuleysistryggingar í þrjá mánuði, sbr. 1. mgr. 61. gr. sömu laga, því hann hafi ekki mætt á boðaðan kynningarfund sem hafi átt að fara fram á þjónustuskrifstofu Vinnumálastofnunar. Kærufrestur vegna þeirra ákvarðana sé nú liðinn, sbr. 5. gr. laga nr. 85/2015 um úrskurðarnefnd velferðarmála.
Eftir standi þá ákvörðun Vinnumálastofnunar um að kærandi skuli sæta eftirstöðvum viðurlaga sinna þegar hann hafi sótt um greiðslu atvinnuleysisbóta þann 31. janúar 2026.
Í 1. mgr. 61. gr. laga um atvinnuleysistryggingar sé meðal annars kveðið á um að sá sem hafi sætt viðurlögum samkvæmt 57.-59. gr. eða biðtíma samkvæmt 54. og 55. gr. og eitthvert þeirra tilvika sem þar greini eigi sér stað að nýju á sama tímabili samkvæmt 29. gr. skuli ekki eiga rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta samkvæmt VII. kafla fyrr en að þremur mánuðum liðnum. Ákvörðun um viðurlög á grundvelli 1. mgr. 58. gr. laga um atvinnuleysistryggingar hafi því leitt til ítrekunaráhrifa fyrri viðurlaga hans samkvæmt 1. mgr. 61. gr. þar sem hann hafi ekki unnið sér inn rétt til nýs bótatímabils samkvæmt 29. gr. laganna. Heildarviðurlagatími kæranda hafi því verið fimm mánuðir.
Í lögum um atvinnuleysistryggingar sé kveðið á um hvernig ítrekuð viðurlög samkvæmt lögunum falli niður eða frestist. Þannig sé meðal annars kveðið á um í 3. mgr. 58. gr. að taki hinn tryggði starfi sem hafi ekki verið hluti af vinnumarkaðsaðgerðum meðan á viðurlagatíma skv. 1. mgr. standi falli viðurlögin niður eftir að hinn tryggði hafi starfað í a.m.k. hálfan mánuð áður enn hann sæki aftur um atvinnuleysisbætur.
Ekki sé fyrir heimild í lögunum til að fella niður biðtíma vegna starfa atvinnuleitanda í þeim tilfellum sem viðkomandi hafi þurft að sæta ítrekuðum viðurlögum. Í 4. mgr. 61. gr. sé hins vegar kveðið á um að ítrekunaráhrif samkvæmt ákvæðinu falli niður þegar nýtt tímabil skv. 29. gr. hefjist, sbr. 30. eða 31. gr. laganna. Þá hafi kærandi ekki unnið sér inn réttindi til nýs bótatímabils. Til að öðlast rétt á nýju bótatímabili þurfi atvinnuleitandi að hafa starfað samfellt á innlendum vinnumarkaði í a.m.k. 24 mánuði frá því að hann hafi síðast fengið greiddar atvinnuleysisbætur. Í samræmi við 4. mgr. 29. gr. laga um atvinnuleysistryggingar hafi tímabilið því haldið áfram að líða þegar kærandi hafi sótt um atvinnuleysisbætur að nýju.
Með vísan til alls framangreinds sé það niðurstaða Vinnumálastofnunar að rétt hafi verið staðið að ákvörðun í máli kæranda og að eftirstöðvar biðtíma hans samtals 2,05 mánuðir skuli halda áfram líða frá síðasta umsóknardegi kæranda, dags. 31. janúar 2026.
IV. Niðurstaða
Kærð er ákvörðun Vinnumálastofnunar um að setja greiðslur atvinnuleysisbóta til kæranda á bið.
Með ákvörðunum Vinnumálastofnunar frá 28. febrúar 2025 og 22. apríl 2025 var réttur kæranda til atvinnuleysisbóta felldur niður í tvo og þrjá mánuði á grundvelli 1. mgr. 55. gr. og 1. mgr. 58. gr., sbr. 1. mgr. 61. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar.
Kærandi sótti á ný um atvinnuleysisbætur hjá Vinnumálastofnun 31. janúar 2026. Umsókn kæranda var samþykkt 26. febrúar 2026 en tekið var fram að bætur yrðu ekki greiddar fyrr en ótekinn biðtími frá fyrri umsókn væri liðinn. Enn væru 2,05 mánuðir eftir af biðtíma vegna ákvörðunar stofnunarinnar frá 22. apríl 2025. Í kæru til úrskurðarnefndar gerði kærandi athugasemd við þá ákvörðun Vinnumálastofnunar og óskaði eftir niðurfellingu viðurlaganna.
Samkvæmt 5. gr. laga nr. 85/2015 um úrskurðarnefnd velferðarmála skal stjórnsýslukæra berast úrskurðarnefnd velferðarmála skriflega innan þriggja mánaða frá því að aðila máls var tilkynnt um ákvörðun, nema á annan veg sé mælt í lögum sem hin kærða ákvörðun byggist á. Ljóst er að sá frestur var liðinn hvað varðar ákvörðun Vinnumálastofnunar frá 22. apríl 2025 þegar kærandi lagði fram kæru hjá nefndinni.
Í 5. mgr. 7. gr. laga nr. 85/2015 er vísað til þess að um málsmeðferð, sem ekki er kveðið á um í lögunum, fari samkvæmt ákvæðum stjórnsýslulaga og ákvæðum laga sem málskotsréttur til nefndarinnar byggist á hverju sinni. Í 28. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993 segir:
„Hafi kæra borist að liðnum kærufresti skal vísa henni frá nema:
1. afsakanlegt verði talið að kæran hafi ekki borist fyrr, eða
2. veigamiklar ástæður mæla með því að kæran verði tekin til meðferðar.
Kæru skal þó ekki sinnt ef meira en ár er liðið frá því að ákvörðun var tilkynnt aðila.“
Með vísan til þessa er nauðsynlegt að taka til skoðunar hvort fyrir hendi séu atriði sem hafa þýðingu við mat á því hvort afsakanlegt verði talið að kæran hafi borist að liðnum kærufresti eða hvort veigamiklar ástæður mæli með því að kæran verði tekin til meðferðar, sbr. 1. mgr. 28. gr. stjórnsýslulaga, en ákvæðið mælir fyrir um skyldubundið mat stjórnvalds á því hvort atvik séu með þeim hætti að rétt sé að taka stjórnsýslukæru til efnislegrar meðferðar, þrátt fyrir að lögbundinn kærufrestur sé liðinn.
Fyrir liggur að kæranda var í ákvörðun Vinnumálastofnunar frá 22. apríl 2025 leiðbeint um kæruheimild til úrskurðarnefndar velferðarmála og um tímalengd kærufrests. Að mati úrskurðarnefndar velferðarmála er ekkert í gögnum málsins sem bendir til þess að afsakanlegt verði talið að kæra hafi borist að liðnum kærufresti. Þá verður heldur ekki séð að veigamiklar ástæður mæli með því að kæran verði tekin til meðferðar. Í því sambandi er meðal annars haft í huga að gögn málsins benda ekki til þess að ákvörðunin hafi verið efnislega röng. Með hliðsjón af framangreindu er þeim þætti málsins er lýtur að ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 22. apríl 2025, vísað frá úrskurðarnefnd velferðarmála, sbr. 1. mgr. 28. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993.
Kemur þá til skoðunar ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 26. febrúar 2026, um að setja greiðslur atvinnuleysisbóta á bið vegna ótekins biðtíma frá fyrri umsókn.
Í 5. mgr. 61. gr. laga nr. 54/2006 kemur fram að ítrekunaráhrif samkvæmt ákvæðinu falli niður þegar nýtt tímabil samkvæmt 29. gr. hefjist, sbr. 30. eða 31. gr. laganna. Í 29. gr. laga nr. 54/2006 er kveðið á um að sá sem telst tryggður samkvæmt lögunum geti átt rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta samfellt í 30 mánuði frá þeim degi er Vinnumálastofnun tók við umsókn hans um atvinnuleysisbætur nema annað leiði af lögunum. Biðtími eftir greiðslu atvinnuleysisbóta samkvæmt X. kafla telst hluti tímabilsins sem og sá tími er viðurlög samkvæmt XI. kafla standi yfir. Í 4. mgr. 29. gr. laganna kemur fram að tímabilið samkvæmt 1. mgr. haldi áfram að líða þegar hinn tryggði sækir að nýju um atvinnuleysisbætur til Vinnumálastofnunar eftir að hafa starfað í skemmri tíma en 24 mánuði á innlendum vinnumarkaði frá því að hann fékk síðast greiddar atvinnuleysisbætur. Þá segir í 31. gr. laga nr. 54/2006 að nýtt tímabil samkvæmt 29. gr. hefjist þegar hinn tryggði sæki að nýju um atvinnuleysisbætur til Vinnumálastofnunar eftir að hafa starfað samfellt á innlendum vinnumarkaði í að minnsta kosti 24 mánuði frá því að hann fékk síðast greiddar atvinnuleysisbætur.
Samkvæmt gögnum málsins hafði kærandi ekki, þegar umsókn hans barst Vinnumálastofnun þann 31. janúar 2026, starfað í a.m.k. 24 mánuði á innlendum vinnumarkaði frá því að hann fékk síðast greiddar atvinnuleysisbætur. Kærandi hafði því ekki áunnið sér rétt til nýs bótatímabils samkvæmt 31. gr. laga nr. 54/2006 og því hélt allur ótekinn biðtími vegna eldri viðurlaga samkvæmt ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 22. apríl 2025, áfram að líða þegar hann skráði sig atvinnulausa að nýju 31. janúar 2026.
Með vísan til framangreinds er ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 26. febrúar 2026, staðfest.
Ú R S K U R Ð A R O R Ð
Ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 26. febrúar 2026, um að setja greiðslur atvinnuleysisbóta til A, á bið, er staðfest. Þeim þætti málsins er snýr að ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 22. apríl 2025, er vísað frá úrskurðarnefnd velferðarmála.
F.h. úrskurðarnefndar velferðarmála
Hólmfríður Birna Guðmundsdóttir