15 júní 2026

/

Tvær bandarískar þingnefndir heimsækja Ísland

{image.Description}
Fyrir miðju: Martin Eyjólfsson ráðuneytisstjóri utanríkisráðuneytisins og Rick Crawford, formaður fastanefndar bandarísku fulltrúadeildarinnar um öryggis- og greiningarmál, ásamt þeim French Hill, Ann Wagner og Pat Fallon, auk fulltrum frá utanríkisráðuneytinu.
Tíu þingmenn úr tveimur lykilnefndum Bandaríkjaþings, þ.e. undirnefnd fjárveitinganefndar fulltrúadeildar um varnarmál (e. House Appropriations Subcommittee on Defence) og fastanefnd fulltrúadeildarinnar um öryggis- og greiningarmál (e. House Permanent Select Committee on Intelligence) heimsóttu Ísland dagana 12. – 15. júní. 

Sex þingmannanna voru úr fjárveitinganefndinni og fjórir úr öryggis- og greiningarmálanefndinni og áttu þeir fundi með ráðuneytisstjóra utanríkisráðuneytisins og embættismönnum á sviði öryggis- og varnarmála. Á fundunum var meðal annars fjallað um nýja varnarstefnu fyrir Ísland, málefni tengd upplýsingaskiptum og greiningargetu, öryggismál á norðurslóðum og mikilvægi Íslands og GIUK-hliðsins, hafsvæðisins milli Grænlands, Íslands og Bretlandseyja, fyrir öryggi Norður-Atlantshafsins og heimavarnir Bandaríkjanna.

„Þessi heimsókn endurspeglar náið öryggis- og varnarsamstarf okkar og Bandaríkjanna og undirstrikar vaxandi mikilvægi Íslands í breyttu öryggisumhverfi á norðurslóðum og Norður-Atlantshafi,“ segir Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra. „Við eigum í nánu og virku samráði við Bandaríkin um þessi mál sem og önnur sameiginleg hagsmunamál ríkjanna, sem byggir á nánu samstarfi til áratuga.“

Þá heimsóttu nefndirnar öryggissvæðið á Keflavíkurflugvelli, þar sem þingmennirnir fengu kynningu á aðstæðum, starfsemi og uppbyggingu varnartengdra innviða.

Meðlimir fjárveitinganefndarinnar sem heimsóttu Ísland voru Ken Calvert, formaður, Betty McCollum, Ronny Jackson, Jefferson Shreve, Ed Case og Steve Womack. Fulltrúar nefndarinnar um öryggis- og greiningarmál voru Rick Crawford, formaður, Ann Wagner, French Hill og Pat Fallon.