16 júní 2026

/

Breytingar á leiðakerfi landsbyggðastrætó hafa áhrif á fimm leiðir af tuttugu og fimm

{image.Description}

Gerðar verða breytingar á fimm leiðum landsbyggðarvagna af 25 leiðum sem starfræktar eru í leiðakerfi landsbyggðastrætó á vegum Vegagerðarinnar um land allt. Breytingar á fjórum leiðum taka gildi í haust en ein snýr að sumaráætlun. Engar breytingar eru gerðar á tuttugu leiðum. Breytingarnar eru gerðar til að halda kostnaði vegna reksturs landsbyggðavagna innan áætlana á fjárlögum.

Við mat á breytingum var einkum horft til nýtingar og farþegafjölda á einstökum leiðum. Breytingar beinast einkum að ferðum eða ferðatíma þar sem nýting er lág. Dregið verður úr ferðatíðni á þremur leiðum en þar beinast breytingar að ferðum utan álagstíma í því skyni að draga sem mest úr áhrifum á farþega.

Breytingar 

  • Leið 50 (Vestur- og Norðvesturland) – 11 ferðir á dag á virkum dögum í stað 12 ferða á Akranes. Fækkun um eina ferð í hvora átt á virkum dögum utan álagstíma.
  • Leið 51 (Suðurland) – 14 ferðir á dag á virkum dögum í stað 16 ferða. Eftir fjölgun ferða í upphafi árs var nýting ekki næg til að halda uppi meiri tíðni.
  • Leið 71 (Suðurland) – 4 ferðir á dag á virkum dögum í stað 5 ferða.
  • Leið 73 (uppsveitir Suðurlands) – Leiðin leggst af en nýting hefur verið mjög lítil.
  • Leið 61 (Vestfirðir) – Ekki verður ekið í sumar. 

Allar breytingar taka gildi í haust að undanskilinni þeirri síðastnefndu. 

Óbreytt áætlun á tuttugu leiðum

Breytingar sem taka gildi í haust hafa ekki áhrif á eftirtaldar tuttugu leiðir:

  • Leið 52 (Suðurland)
  • Leið 53 (Suðurland)
  • Leið 72 (Suðurland)
  • Leið 55 (Suðurnes)
  • Leið 56 (Norður og Norðausturland)
  • Leið 57 (Vestur- og Norðvesturland)
  • Leið 58 (Vestur- og Norðvesturland)
  • Leið 59 (Vestur- og Norðvesturland)
  • Leið 62 (Vestfirðir)
  • Leið 78 (Norður og Norðausturland)
  • Leið 79 (Norður og Norðausturland)
  • Leið 82 (Vestur- og Norðvesturland)
  • Leið 84 (Vestur- og Norðvesturland)
  • Leið 87 (Suðurnes)
  • Leið 89 (Suðurnes)
  • Leið 91 (Austurland)
  • Leið 92 (Austurland)
  • Leið 93 (Austurland)
  • Leið 94 (Austurland)
  • Leið 96 (Austurland)