16 júní 2026
/
Mál nr. 299/2026-Úrskurður
Úrskurðarnefnd velferðarmála
Mál nr. 299/2026
Þriðjudaginn 16. júní 2026
A
gegn
Hafnarfjarðarbæ
Ú R S K U R Ð U R
Mál þetta úrskurða Hólmfríður Birna Guðmundsdóttir lögfræðingur, Agnar Bragi Bragason lögfræðingur og Eva Dís Pálmadóttir lögfræðingur.
Með kæru, dags. 22. apríl 2026, kærði A, til úrskurðarnefndar velferðarmála ákvörðun Hafnarfjarðarbæjar, dags. 29. október 2025, um að synja umsókn hans um félagslegt leiguhúsnæði.
I. Málsatvik og málsmeðferð
Með umsókn, dags. 4. ágúst 2025, sótti kærandi um félagslegt leiguhúsnæði hjá Hafnarfjarðarbæ. Með bréfi, dags. 4. september 2025, var kæranda tilkynnt að umsókn hans hefði verið synjað þar sem lágmarksstigafjölda hefði ekki verið náð. Sú ákvörðun var staðfest af fjölskylduráði Hafnarfjarðar 29. október 2025.
Kærandi lagði fram kæru hjá úrskurðarnefnd velferðarmála 22. apríl 2026. Með bréfi, dags. 5. maí 2026, óskaði úrskurðarnefndin eftir öllum gögnum frá Hafnarfjarðarbæ vegna hinnar kærðu ákvörðun. Umbeðin gögn bárust 19. maí 2026.
II. Sjónarmið kæranda
Kærandi greinir frá aðstæðum sínum og heilsufari. Hin kærða ákvörðun hafi verið byggð á stigamati sem kærandi telji verulega rangt og ekki endurspegla raunverulegar og alvarlegar aðstæður hans. Kærandi hafi áður reynt að kæra ákvörðunina en kæran hafi verið send á rangan aðila í góðri trú. Kærandi óski eftir því að tekið verði tillit til þess við mat á kærufresti, enda hafi vilji kæranda til að fá ákvörðunina endurskoðaða verið skýr frá upphafi. Kærandi tekur fram að hann hafi jafnframt sent inn nýja umsókn til Hafnarfjarðarbæjar með uppfærðum upplýsingum um aðstæður hans.
III. Niðurstaða
Kærð er ákvörðun Hafnarfjarðarbæjar, dags. 29. október 2025, um að synja umsókn kæranda um félagslegt leiguhúsnæði.
Samkvæmt 5. gr. laga nr. 85/2015 um úrskurðarnefnd velferðarmála skal stjórnsýslukæra berast úrskurðarnefnd velferðarmála skriflega innan þriggja mánaða frá því að aðila máls var tilkynnt um ákvörðun, nema á annan veg sé mælt í lögum sem hin kærða ákvörðun byggist á. Kærandi lagði fram kæru hjá úrskurðarnefnd velferðarmála 22. apríl 2026 vegna framangreindrar ákvörðunar Hafnarfjarðarbæjar. Kærufrestur samkvæmt 5. gr. laga nr. 85/2015 var því liðinn þegar kæra barst nefndinni.
Í 5. mgr. 7. gr. laga nr. 85/2015 er vísað til þess að um málsmeðferð, sem ekki er kveðið á um í lögunum, fari samkvæmt ákvæðum stjórnsýslulaga og ákvæðum laga sem málskotsréttur til nefndarinnar byggist á hverju sinni. Í 28. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993 segir:
„Hafi kæra borist að liðnum kærufresti skal vísa henni frá nema:
1. afsakanlegt verði talið að kæran hafi ekki borist fyrr, eða
2. veigamiklar ástæður mæla með því að kæran verði tekin til meðferðar.
Kæru skal þó ekki sinnt ef meira en ár er liðið frá því að ákvörðun var tilkynnt aðila.“
Með vísan til þessa er nauðsynlegt að taka til skoðunar hvort fyrir hendi séu atriði sem hafa þýðingu við mat á því hvort afsakanlegt verði talið að kæran hafi borist að liðnum kærufresti eða hvort veigamiklar ástæður mæli með því að kæran verði tekin til meðferðar, sbr. 1. mgr. 28. gr. stjórnsýslulaga, en ákvæðið mælir fyrir um skyldubundið mat stjórnvalds á því hvort atvik séu með þeim hætti að rétt sé að taka stjórnsýslukæru til efnislegrar meðferðar, þrátt fyrir að lögbundinn kærufrestur sé liðinn.
Fyrir liggur að kæranda var í ákvörðun frá 29. október 2025 leiðbeint um kæruheimild til úrskurðarnefndar velferðarmála og um tímalengd kærufrests.
Að mati úrskurðarnefndar velferðarmála er ekkert í gögnum málsins sem bendir til þess að afsakanlegt verði talið að kæra hafi borist að liðnum kærufresti. Þá verður heldur ekki séð að veigamiklar ástæður mæli með því að kæran verði tekin til meðferðar. Í því sambandi er meðal annars haft í huga að gögn málsins benda ekki til þess að hin kærða ákvörðun hafi verið efnislega röng og að kærandi hefur þegar lagt inn nýja umsókn hjá sveitarfélaginu. Með hliðsjón af framangreindu er kærunni vísað frá úrskurðarnefnd velferðarmála, sbr. 1. mgr. 28. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993.
Ú R S K U R Ð A R O R Ð
Kæru A, er vísað frá úrskurðarnefnd velferðarmála.
F.h. úrskurðarnefndar velferðarmála
Hólmfríður Birna Guðmundsdóttir