16 júní 2026

/

Mál nr. 79/2026-Endurupptökubeiðni

 

Úrskurðarnefnd velferðarmála

Beiðni um endurupptöku máls nr. 79/2026

Þriðjudaginn 16. júní 2026

A

gegn

Vestmannaeyjabæ

Ú R S K U R Ð U R

Mál þetta úrskurða Hólmfríður Birna Guðmundsdóttir lögfræðingur, Agnar Bragi Bragason lögfræðingur og Eva Dís Pálmadóttir lögfræðingur.

Með erindi, dags. 19. maí 2026, óskaði A, eftir endurupptöku úrskurðar úrskurðarnefndar velferðarmála í máli nr. 79/2026 þar sem felld var úr gildi ákvörðun Vestmannaeyjabæjar, dags. 30. október 2025, um að synja umsókn hennar um fjárhagsaðstoð.

I.  Málsatvik og málsmeðferð

Með umsókn, dags. 31. maí 2023, sótti kærandi um fjárhagsaðstoð til framfærslu fyrir þann mánuð hjá Vestmannaeyjabæ. Kærandi lagði fram kæru hjá úrskurðarnefnd velferðarmála 20. mars 2025 og vísaði til þess að umsókn hennar um fjárhagsaðstoð frá 31. maí 2023 hefði ekki verið afgreidd. Með úrskurði úrskurðarnefndar velferðarmála 19. júní 2025 í máli nr. 183/2025 var lagt fyrir sveitarfélagið að taka umsóknina til efnislegrar afgreiðslu. Með bréfi fjölskyldu- og fræðslusviðs Vestmannaeyja, dags. 23. september 2025, var kæranda tilkynnt að umsókn hennar hefði verið tekin til afgreiðslu og henni synjað. Fjölskyldu- og tómstundaráð Vestmannaeyja staðfesti þá ákvörðun með bréfi, dags. 30. október 2025.

Kærandi lagði fram kæru hjá úrskurðarnefnd velferðarmála 29. janúar 2026 vegna framangreindrar ákvörðunar Vestmannaeyjabæjar. Að lokinni gagnaöflun úrskurðaði nefndin í málinu, eða þann 7. maí 2026. Með úrskurðinum var ákvörðun Vestmannaeyjabæjar felld úr gildi og máli kæranda vísað til nýrrar meðferðar sveitarfélagsins. 

 

II.  Sjónarmið kæranda

Kærandi óskar þess að mál hennar hjá úrskurðarnefnd velferðarmála verði tekið upp að nýju í samræmi við 24. gr. stjórnsýslulaga af eftirtöldum ástæðum.

Af þeim gögnum sem kærandi hafi lagt fram sé skýrt að kvörtun hennar hafi lotið að tveimur aðskildum atriðum. Annars vegar vanhæfi þeirra starfsmanna sem hafi farið með mál hennar og hins vegar synjun á umsókn hennar um fjárhagsaðstoð. Kærandi hafi óskað skýrt eftir því að úrskurðarnefndin tæki afstöðu til vanhæfis starfsmanna og kveddi upp úrskurð um þann þátt. Sveitarfélagið hafi tekið tvær ólíkar ákvarðanir á mismunandi tímum, sem báðar liggi fyrir í málinu. Í annarri þeirra hafi starfsmennirnir lýst því yfir að þeir væru hæfir til að fara með mál kæranda og þannig hafnað rökum lögmanns hennar. Síðar hafi starfsmennirnir tekið aðra ákvörðun og synjað umsókn kæranda um fjárhagsaðstoð.

Þessi tvö atriði séu algjörlega aðgreind lagaleg viðfangsefni sem úrskurðarnefndinni hafi borið að taka afstöðu til á grundvelli kvörtunar kæranda. Úrskurðarnefndin hafi hins vegar ekki tekið neina ákvörðun um fyrri þátt kvörtunar kæranda.

Ef þessir starfsmenn séu vanhæfir hefðu þeir ekki átt að vinna með mál kæranda né taka nokkrar ákvarðanir í því. Engu að síður hafi þeir gert það og muni gera það aftur nú þegar málið hafi verið sent aftur til sveitarfélagsins.

Að fella úr gildi ákvörðun um að synja umsókn kæranda vegna þess að hún hafi ekki mætt í viðtal hafi ekkert að gera með kvörtun hennar um vanhæfi starfsmanna.

Kærandi óski þess að úrskurðarnefndin taki málið upp að nýju og kveði upp nýjan úrskurð um kvörtun hennar varðandi vanhæfi starfsmanna.

III.  Niðurstaða

Óskað er eftir endurupptöku á úrskurði úrskurðarnefndar velferðarmála, dags. 7. maí 2026. Með úrskurðinum var felld úr gildi ákvörðun Vestmannaeyjabæjar um að synja umsókn kæranda um fjárhagsaðstoð og málinu vísað til nýrrar meðferðar sveitarfélagsins.

Samkvæmt 1. mgr. 24. gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993 á aðili máls rétt á því að mál sé tekið til meðferðar á ný ef ákvörðun stjórnvalds hefur byggst á ófullnægjandi eða röngum upplýsingum um málsatvik eða íþyngjandi ákvörðun um boð eða bann hefur byggst á atvikum sem breyst hafa verulega frá því að ákvörðun var tekin.

Aðili máls getur einnig átt rétt á endurupptöku máls á grundvelli annarra ólögfestra reglna stjórnsýsluréttar, til að mynda ef ákvörðun stjórnvalds hefur byggst á röngum lagagrundvelli og/eða rangri túlkun lagaákvæða.

Beiðni um endurupptöku er byggð á því að úrskurðarnefnd velferðarmála hafi ekki fjallað um þann þátt kærunnar er laut að vanhæfi tiltekinna starfsmanna Vestmannaeyjabæjar.

Úrskurðarnefnd velferðarmála hefur yfirfarið úrskurð nefndarinnar með tilliti til framangreindra athugasemda. Í úrskurðinum var vísað til þeirra réttarreglna sem niðurstaðan var byggð á og greint frá þeim meginsjónarmiðum sem ráðandi voru við matið, sbr. 1. mgr. 22. gr. stjórnsýslulaga. Að mati úrskurðarnefndar verður ekki ráðið að niðurstaða nefndarinnar hafi byggst á ófullnægjandi eða röngum upplýsingum um málsatvik eða að íþyngjandi ákvörðun um boð eða bann hafi byggst á atvikum sem hafi breyst verulega frá því að ákvörðun var tekin, sbr. 1. mgr. 24. gr. laga nr. 37/1993. Þá verður ekki séð að kærandi eigi rétt á endurupptöku málsins á grundvelli ólögfestra reglna stjórnsýsluréttar. Að endingu telur úrskurðarnefndin rétt að ítreka að ákvörðun í máli kæranda var felld úr gildi og vísað til nýrrar meðferðar sveitarfélagsins. Er því ljóst að ný ákvörðun verður tekin í máli kæranda sem hún getur kært til nefndarinnar ef svo ber undir.

Með hliðsjón af framangreindu er beiðni kæranda um endurupptöku máls úrskurðarnefndar velferðarmála nr. 79/2026 synjað.


 

Ú R S K U R Ð A R O R Ð

Beiðni A, um endurupptöku máls nr. 79/2026 hjá úrskurðarnefnd velferðarmála, er synjað.

F.h. úrskurðarnefndar velferðarmála

 

Hólmfríður Birna Guðmundsdóttir