16 júní 2026

/

Þrjár virkjanir samþykktar í orkunýtingarflokk rammaáætlunar

{image.Description}

Alþingi hefur samþykkt þingsályktunartillögu um breytingu á áætlun um vernd og orkunýtingu landsvæða, svonefndri  rammaáætlun. Með ákvörðun Alþingis nú bætast þrír nýir virkjunarkostir í orkunýtingarflokk og tveir í biðflokk. Virkjunarkostirnir sem Alþingi staðfesti í orkunýtingarflokk í dag geta samanlagt skilað nærri einni terawattstund af endurnýjanlegri raforku á ári verði þeir fullnýttir.

Virkjunarkostirnir eru Tröllárvirkjun og Skúfnavatnavirkjun á Vestfjörðum ásamt jarðvarmakostinum Bolaöldu á Hellisheiðarsvæðinu, en með ályktun sinni staðfestir Alþingi að virkjunarkostirnir geti farið áfram í leyfisveitingarferli samkvæmt gildandi lögum, að undangengnum frekari rannsóknum og mati eftir því sem við á. Með þingsályktuninni voru jafnframt Hvanneyrardalsvirkjun á Vestfjörðum og Hamarsvirkjun á Austurlandi settar í biðflokk.

Þessir virkjunarkostir koma til viðbótar þeim sem samþykktir voru í orkunýtingarflokk rammaáætlunar fyrr á árinu, þ.e. Skrokköldu, sem er með orkugetu um 392 GWst/ári, og Holtavirkjun, með orkugetu um 450 GWst/ári. Alls geta orkukostirnir fimm skilað tæpum tveimur terawattstundum  af endurnýjanlegri orku á ári. 

Þingsályktunin sem samþykkt var í dag byggir á vinnu verkefnisstjórnar 5. áfanga verndar- og orkunýtingaráætlunar sem lagði mat á fimm virkjunarkosti í vatnsafli og jarðvarma, en rammaáætlun er ætlað að skapa fyrirsjáanleika um nýtingu orkuauðlinda landsins með heildstæðu frummati sem tekur bæði til umhverfissjónarmiða og samfélagslegra þátta.