18 júní 2026

/

Reykjavík vettvangur stefnumótunar WHO um heilbrigðismál í Evrópu

{image.Description}
Frá vinstri: Ásta Valdimarsdóttir, Alma D. Möller og Hans Kluge framkvæmdastjóri Evrópuskrifstofu WHO

Fastanefnd Alþjóðaheilbrigðisnefndar Evrópu (WHO) fundaði í Reykjavík dagana 16. og 17. júní. Á fundinum komu saman fulltrúar aðildarríkja Evrópuskrifstofu WHO til að fjalla um helstu stefnumál sem verða til umfjöllunar á næsta fundi svæðisnefndar WHO í Evrópu. Það eru m.a. ný stefna til ársins 2030 um heilbrigða öldrun í Evrópu, vegvísir um ábyrga innleiðingu gervigreindar í heilbrigðisþjónustu og undirbúningur nýrrar áætlunar um heilsueflingu og forvarnir gegn langvinnum sjúkdómum.

Í upphafi fundarins var heilbrigðiskerfi Íslands kynnt fyrir þátttakendum og rætt um sameiginlegar áskoranir evrópskra heilbrigðiskerfa og hvaða tækifæri eru fyrir hendi til að mæta þeim.

Alma D. Möller heilbrigðisráðherra lagði á fundinum áherslu á mikilvægi alþjóðlegs samstarfs í heilbrigðismálum á tímum örra samfélagsbreytinga og vaxandi lýðheilsuáskorana.

Fundurinn í Reykjavík undirstrikar mikilvægt hlutverk Íslands í samstarfi aðildarríkja WHO í Evrópu og við mótun sameiginlegra lausna til að efla heilbrigði og velferð í álfunni.

Formaður fastanefndar WHO í Evrópu er Ásta Valdimarsdóttir ráðuneytisstjóri í heilbrigðisráðuneytinu. Hún er jafnframt fulltrúi Íslands í framboði til framkvæmdastjórnar WHO fyrir tímabilið 2027-2030.