19 júní 2026

/

Fundað með TikTok um aldurstakmark að samfélagsmiðlum

{image.Description}
Inga Sæland, mennta- og barnamálaráðherra, ásamt f. v. Kjartani Sverdrup, stjórnanda samskipta við stjórnvöld og stefnumótunar hjá TikTok í Noregi og á Íslandi, og Richard Collard, yfirmanni stefnumótunar í öryggismálum barna og ungmenna hjá TikTok í Evrópu

Inga Sæland, mennta- og barnamálaráðherra, átti í gær fund með fulltrúum TikTok um hækkun aldurstakmarks fyrir notkun samfélagsmiðla á Íslandi. Samtalið er liður í vinnu ráðuneytisins við að setja í lög aldurstakmörk fyrir notkun barna á samfélagsmiðlum.

Á fundinum voru ræddar þær hættur sem börn og ungmenni standa frammi fyrir í stafrænum heimi og hvernig hægt sé að verja þau gegn neikvæðum áhrifum samfélagsmiðla.

Fulltrúar TikTok sögðu á fundinum að TikTok legðist ekki gegn slíkum hugmyndum og væri tilbúið að vinna með íslenskum stjórnvöldum þegar kæmi að hugsanlegri hækkun aldurstakmarka fyrir notkun barna á samfélagsmiðlum.

Ráðherra hélt vinnustofu með börnum og ungmennum í apríl í því skyni að móta með þeim reglur um notkun samfélagsmiðla hérlendis. Á þeirri vinnustofu var einnig haft samráð við börn og ungmenni um samræmdar reglur um símafrí í skólum, en nýverið var reglugerð um slíkt send til umsagnar.

Mennta- og barnamálaráðherra mun á næstunni kynna frekari útfærslu á hækkun aldurstakmarka fyrir notkun samfélagsmiðla.