19 júní 2026

/

Strangari reglur um vindorku samþykktar á Alþingi

{image.Description}
Jóhann Páll Jóhannsson, umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra.

Frumvarp umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra um takmörkun vindorkunýtingar og styrkingu verndarflokks rammaáætlunar var samþykkt á Alþingi í dag.

Með lögunum eru í fyrsta sinn settar heildstæðar reglur um vindorkunýtingu á Íslandi í þeim tilgangi að stuðla að umhverfisvernd, hlusta á vilja nærsamfélagsins og tryggja hagkvæma uppbyggingu raforkuflutningskerfisins. Í frumvarpinu felst m.a. eftirfarandi:

  • Vindorkunýting verður útilokuð á svæðum sem hafa verið friðlýst eða njóta sérstakrar verndar, svo sem á Ramsar-svæðum, svæðum á heimsminjaskrá UNESCO og B-hluta náttúruminjaskrár.
  • Fallið er frá hugmyndum fyrri ára um flýtimeðferð vindorkugarða fram hjá rammaáætlun. Í staðinn er vindorkan felld kyrfilega undir rammaáætlunarferlið.
  • Afstaða sveitarfélaga verður grundvallarbreyta við mat verkefnisstjórnar rammaáætlunar á vindorkukostum.
  • Horft verður sérstaklega til áhrifa á fuglalíf og óbyggð víðerni, en jafnframt hvort vindorkukostur sé til þess fallinn að styðja við atvinnu- og byggðaþróun á viðkvæmum svæðum og uppbyggingu raforkuflutningskerfisins.

Við afgreiðslu málsins á Alþingi kom fram í máli umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra að framundan væru reglugerðarbreytingar til þess að skýra kröfur um gagnaskil vegna vindorkukosta og tryggja skilvirkari meðferð þeirra í rammaáætlunarferlinu.

„Markmið ríkisstjórnarinnar er skýrt: að standa vörð um náttúru Íslands og tryggja að vindorkunýting fari einvörðungu fram á örfáum afmörkuðum svæðum í sátt við nærsamfélagið, þar sem hún er til þess fallin að styðja við atvinnu- og byggðaþróun og hagkvæma uppbyggingu raforkuflutningskerfisins,“ segir Jóhann Páll Jóhannsson, umhverfis-, orku- og loftlagsráðherra.  

Með lögunum er jafnframt gerð grundvallarbreyting á verndarflokki rammaáætlunar. Hingað til hefur verndarflokkur eingöngu tekið til banns við orkuvinnslu. Með breytingunum nú er verndarflokkurinn útvíkkaður og munu þeir kostir sem Alþingi samþykkir í verndarflokk verða sendir Náttúruverndarstofnun. Markmiðið er að tryggja að þau svæði sem talin eru svo verðmæt í eðli sínu að rétt sé að flokka þau í verndarflokk áætlunarinnar séu friðlýst á grundvelli almennra friðlýsingarflokka VIII. kafla laga um náttúruvernd, nr. 60/2013, frekar en einungis gegn orkuvinnslu.

„Með þessum breytingum lyftum við verndarflokknum og gerum hann að raunverulegu verndartæki sem snýst ekki aðeins um bann við orkuvinnslu heldur um að friðlýsa, á grundvelli viðeigandi friðlýsingarflokka, þau náttúruverðmæti sem talin er ástæða til að vernda.“