22 júní 2026

/

Fyrsta brautskráning úr meistaranámi í ráðgjöf í málefnum fólks með heilabilun

{image.Description}
Mynd: Háskólinn á Akureyri

Þann 19. júní sl. útskrifuðust 9 stúdentar frá hjúkrunardeild Háskólans á Akureyri (HA) með meistaragráðu í ráðgjöf í málefnum fólks með heilabilun. Þetta er fyrsti hópurinn sem útskrifast af þessari nýju námsbraut sem er samstarfsverkefni HA og Háskóla Íslands og var stofnuð að frumkvæði heilbrigðisráðuneytisins, í samræmi við stefnu og aðgerðaáætlun stjórnvalda í þjónustu við fólk með heilabilun. Megininntak námsins er sérhæfing á sviði heilabilunar með áherslu á persónumiðaða ráðgjöf og þjónustu við fólk með heilabilun og aðstandendur þeirra, auk ráðgjafar og fræðslu til faghópa, almennings og stofnana.

„Ég er þakklát háskólunum fyrir að hafa komið þessari mikilvægu námsbraut á fót, því þörf fyrir fólk með þessa menntun er mikil og vaxandi. Síðast en ekki síst óska ég útskriftarhópnum innilega til hamingju með áfangann og óska þeim velfarnaðar í mikilvægum störfum framundan“ segir Alma D. Möller heilbrigðisráðherra.