23 júní 2026

/

Dómnefnd birtir umsögn um dómaraembætti við Hæstarétt

{image.Description}
Hari

Dómnefnd um hæfni umsækjenda hefur skilað umsögn um umsækjendur sem sóttu um dómaraembætti við Hæstarétt Íslands. Umsögnin er birt hér að neðan.

Embættið var auglýst laust til umsóknar 27. mars og umsóknarfrestur var til 13. apríl. Fjórir sóttu um embættið.

Niðurstaða nefndarinnar er að öll fjögur sem sóttu um; Aðalsteinn E. Jónasson landsréttardómari, Ásgerður Ragnarsdóttir landsréttardómari, Eiríkur Jónsson landsréttardómari og Eyvindur G. Gunnarsson landsréttardómari, séu jafnsett til að hljóta skipun í embætti dómara við Hæstarétt Íslands.

Dómnefndina skipuðu Ása Ólafsdóttir formaður, Helga Melkorka Óttarsdóttir, Jóhannes Sigurðsson, Reimar Pétursson og Þorgeir Örlygsson.

Umsögnina má lesa hér.