23 júní 2026
/
Styrkir meðferðarúrræðið Kúnstpásu við Landspítala
Alma D. Möller hefur veitt 5 milljóna króna styrk til Kúnstpásu, sem er verkefni innan geðþjónustu Landspítala á sviði endurhæfingar. Byggt er á því að tengja endurhæfingu við skapandi greinar með þátttöku í list- og menningarstarfi og er markmiðið að efla virkni þátttakenda og styrkja færni þeirra og getu til þátttöku í samfélaginu og á vinnumarkaði.
Verkefnið Kúnstpása hófst haustið 2024. Umsjónarmaður þess er Hlynur Jónasson, verkefnastjóri á geðsviði Landspítala. Hann segir reynsluna af starfinu vera góða og þátttakendum mikils virði að fá tækifæri til að skapa og njóta í umhverfi utan spítalans, í stað þess að hugsa og tala um veikindi sín í því valdaójafnvægi sem þar óhjákvæmilega ríkir. Styrkurinn komi að góðum notum til að halda starfinu áfram og efla samstarfið við notendur og fagaðila.
Á meðfylgjandi mynd eru einstaklingar sem koma að verkefninu, meðal annars frá Borgarleikhúsinu, Listaháskóla Íslands, Landspítala, auglýsingastofunni Brandenburg og heilbrigðisráðuneytinu.