24 júní 2026

/

630 milljónum veitt í neytendamarkaðssetningu á Íslandi sem áfangastað

{image.Description}
Pétur Þ. Óskarsson framkvæmdastjóri Íslandsstofu og Hanna Katrín Friðriksson atvinnuvegaráðherra undirrituðu samninginn við Reykjavíkurhöfn.

Hanna Katrín Friðriksson atvinnuvegaráðherra og Pétur Þ. Óskarsson framkvæmdastjóri Íslandsstofu, undirrituðu í dag, 24. júní, samning til eins árs um markaðssetningu á Íslandi sem áfangastað.

Samkvæmt samningnum leggja stjórnvöld til 630 milljónir króna í verkefnið. Fulltrúar atvinnuvegaráðherra, Íslandsstofu, Samtaka ferðaþjónustunnar og áfangastaðastofa landshlutanna skipa verkefnisstjórn um framkvæmd samningsins.

Í nýrri aðgerðaáætlun atvinnustefnu Íslands kemur fram að innan atvinnuvegaráðuneytisins verði unnið að heildarendurskoðun á skipulagi, hlutverkaskiptingu og samningum um opinbera markaðssetningu Íslands sem áfangastaðar. Markmiðið er að skýra ábyrgð, auka samhæfingu og bæta nýtingu fjármuna. Niðurstaða þeirrar vinnu verður kynnt næsta vetur sem fyrsti liður þess að gera langtímaáætlun fyrir viðvarandi neytendamarkaðssetningu á Íslandi sem áfangastað.

„Ferðaþjónustan hefur lengi kallað eftir því að farið sé í viðvarandi markaðssetningu á Íslandi sem áfangastað í stað þess að vera í tímabundnum markaðsátökum. Þessi samningur er fyrsta skrefið á þeirri vegferð,“ segir Hanna Katrín Friðriksson, atvinnuvegaráðherra.

Hanna Katrín segir það skipta miklu máli fyrir íslenska ferðaþjónustu að gera þetta með þessum hætti.

„Þetta styður auðvitað við þá öflugu markaðssetningu sem ferðaþjónustufyrirtækin sjálf standa fyrir. Markmiðið með viðvarandi markaðssetningu er ekki síst að draga úr árstíðasveiflum í íslenskri ferðaþjónustu og stuðla að betri dreifingu ferðamanna um landið.“

Pétur Þ. Óskarsson, framkvæmdastjóri Íslandsstofu, segir útflutningstekjur af ferðaþjónustu skipta miklu máli fyrir íslenskt hagkerfi.

„Samkeppnin um ferðamenn hefur sjaldan verið meiri en í dag. Við viljum hafa áhrif á þróun greinarinnar, sækja fram gagnvart réttum markhópum á okkar verðmætustu mörkuðum og vinna gegn árstíðasveiflu. Þannig náum við að hámarka þann ávinning sem íslenskt samfélag í heild hefur af þessari mikilvægu atvinnugrein,“ segir Pétur Þ. Óskarsson.