24 júní 2026

/

Drög að reglugerð heilbrigðisráðherra um fjarheilbrigðisþjónustu til umsagnar

{image.Description}
Frá heimsókn heilbrigðisráðherra í starfsstöð Stafrænnar heilsu í febrúar síðastliðnum.

Fjarheilbrigðisþjónusta er orðin fastur hluti af íslensku heilbrigðiskerfi og fer ört vaxandi. Núgildandi umgjörð byggir á fyrirmælum landlæknis frá árinu 2019 sem endurspegla ekki lengur það tækni- og öryggisumhverfi sem þjónustan starfar í. Nýju reglugerðinni er ætlað að leysa þau fyrirmæli af hólmi og tryggja að öryggi, persónuvernd og gæði haldist í hendur við tækniþróun. Drög að reglugerðinni hafa verið birt til umsagnar í samráðsgátt stjórnvalda. Umsagnarfrestur er til 22. júlí næstkomandi.

Reglugerðinni er ætlað að skapa ramma um þær tæknilegu- og skipulagslegu kröfur sem gerðar eru til veitingar fjarheilbrigðisþjónustu. Í dag eru slíkar kröfur einna helst í fyrirmælum embættis landlæknis um upplýsingaöryggi við veitingu fjarheilbrigðisþjónustu frá 2019. Í reglugerðinni eru settar fram meginreglur um öryggi, persónuvernd, auðkenningu notenda, áhættumat, öryggisúttektir og eftirlit. Gert er ráð fyrir að nánari tæknilegar og skipulagslegar kröfur verði útfærðar í fyrirmælum landlæknis þannig að unnt sé að bregðast hraðar við tæknibreytingum og þróun alþjóðlegra viðmiða.

Reglugerðardrögin eru unnin af Stafrænni heilsu í samvinnu við embætti landlæknis. Stafræn heilsa er starfseining innan heilbrigðisráðuneytisins og tók til starfa í janúar síðastliðnum. Hlutverk hennar er að sameina og leiða nýsköpun í heilbrigðisþjónustu á einum stað, forgangsraða verkefnum og tryggja að lausnir nýtist heilbrigðiskerfinu um allt land.