24 júní 2026

/

Mál nr. 287/2026-Úrskurður

Úrskurðarnefnd velferðarmála

Mál nr. 287/2026

Miðvikudaginn 24. júní 2026

A

gegn

Tryggingastofnun ríkisins

Ú R S K U R Ð U R

Mál þetta úrskurða Rakel Þorsteinsdóttir lögfræðingur, Eva Dís Pálmadóttir lögfræðingur og Unnþór Jónsson lögfræðingur.

Með kæru, móttekinni 17. apríl 2026, kærði A, til úrskurðarnefndar velferðarmála ákvörðun Tryggingastofnunar ríkisins frá 14. apríl 2026 um að samþykkja umsókn barnsföður hennar um milligöngu um meðlagsgreiðslur frá 1. ágúst 2025.

I.  Málsatvik og málsmeðferð

Með rafrænni umsókn, móttekinni 30. mars 2026, sótti barnsfaðir kæranda um milligöngu Tryggingastofnunar ríkisins um meðlagsgreiðslur með dóttur þeirra frá 1. ágúst 2025. Með bréfi Tryggingastofnunar ríkisins, dags. 14. apríl 2026, var kæranda tilkynnt um milligöngu stofnunarinnar á meðlagsgreiðslum til barnsföður hennar hans frá 1. ágúst 2025.

Kæra barst úrskurðarnefnd velferðarmála 17. apríl 2026. Með bréfi, dags. 20. apríl 2026, óskaði úrskurðarnefndin eftir greinargerð Tryggingastofnunar ríkisins ásamt gögnum málsins. Greinargerð Tryggingastofnunar ríkisins barst með bréfi, dags. 11. maí 2026, og var hún kynnt kæranda með bréfi úrskurðarnefndar, dags. 12. maí 2026. Athugasemdir bárust ekki.

II.  Sjónarmið kæranda

Í kæru kemur fram að kærð sé ákvörðun Tryggingastofnunar ríkisins um meðlagsgreiðslur. Kærandi sé ósammála ákvörðuninni og telji hana ekki taka nægjanlegt mið af raunverulegum aðstæðum barnsins.

Barnið búi að jafnaði til jafns hjá báðum foreldrum og telji kærandi að sú staðreynd hafi ekki verið metin með fullnægjandi hætti við ákvörðun meðlags. Barnsfaðir hennar sé reiður vegna þess að hún hafi tilkynnt hann til barnaverndar og því séu þetta hefndaraðgerðir hjá honum að sækja um meðlag. Auk þess búi eldri börn þeirra sem séu eldri en 18 ára hjá kæranda og hafi alltaf gert og hafi hún alfarið aðstoðað þau með greiðslu skólagjalda og fleira sem faðir hafi aldrei gert.

Kærandi hafi verulegar áhyggjur af aðstæðum barnsins hjá föður þess. Barnavernd hafi haft afskipti af málinu og þar liggi fyrir upplýsingar um að fíkniefni hafi fundist á heimilinu. Jafnframt hafi faðir hafnað því að gangast undir fíkniefnapróf.

Það sé mat kæranda að þessi atriði hafi verulega þýðingu við mat á hagsmunum barnsins og við ákvörðun um fyrirkomulag og fjárhagslega ábyrgð foreldra.

Ákvörðunin sé byggð á ófullnægjandi upplýsingum og nauðsynlegt sé að endurmeta málið með hliðsjón af framangreindu.

Kærandi áskilji sé rétt til að leggja fram frekari gögn og upplýsingar eftir því sem málið þróist.

Með vísan til framangreinds sé farið fram á að ákvörðunin verði endurskoðuð.

III.  Sjónarmið Tryggingastofnunar ríkisins

Í greinargerð Tryggingastofnunar ríkisins kemur fram að kærð sé ákvörðun um að verða við beiðni barnsföður kæranda um að hafa milligöngu um meðlag til hans með barni þeirra.

Í 42. gr. laga nr. 100/2007 um almannatryggingar sé kveðið á um að hver sá sem fái úrskurð stjórnvalds um meðlag með barni sem hann hafi á framfæri sínu, eða um aðrar greiðslur samkvæmt IX. kafla barnalaga nr. 76/2003, geti snúið sér til Tryggingastofnunar og fengið fyrirframgreiðslu meðlags eða annarra framfærsluframlaga samkvæmt úrskurðinum. Sama skuli gilda þegar lagt sé fram staðfest samkomulag um meðlagsgreiðslur og aðrar greiðslur samkvæmt IX. kafla barnalaga.

Í 4. mgr. 42. gr. laga um almannatryggingar komi fram að Tryggingastofnun sé heimilt að greiða meðlag aftur í tímann allt að 12 mánuði, talið frá byrjun þess mánaðar sem stjórnvaldsúrskurður, staðfestur samningur eða vottorð sýslumanns um að hann hafi veitt viðtöku ósk um öflun faðernisviðurkenningar berist stofnuninni, enda eigi þá 4. mgr. 40. gr. ekki við.

Samkvæmt 67. gr. barnalaga sé Tryggingastofnun skylt að greiða rétthafa greiðslna samkvæmt IV. og IX. kafla, sem búsettur sé hér á landi, samkvæmt dómi, dómsátt, úrskurði sýslumanns um meðlag eða samningi foreldra um meðlag staðfestum af sýslumanni, þó aldrei hærri fjárhæð en sem nemi einföldu meðlagi.

Tryggingastofnun hafi tilkynnt kæranda með bréfi, dags. 14. apríl 2026, að stofnunin hefði samþykkt að hafa milligöngu um greiðslu meðlags til barnsföður kæranda frá 1. ágúst 2025 með dóttur þeirra. Tryggingastofnun hafi borist umsókn frá barnsföður kæranda um meðlag 30. mars 2026, en þegar hafi legið fyrir meðlagsákvörðun, dags. 17. febrúar 2022. Í leyfi til lögskilnaðar segi að kærandi skuli greiða meðlag með dóttur aðila frá 1. desember 2020 til 18 ára aldurs hennar.

Hlutverk Tryggingastofnunar sé að hafa milligöngu um greiðslu meðlags þegar ákvörðun hafi verið tekin með lögmætum hætti. Ef foreldri leggi fram löggilda meðlagsákvörðun beri Tryggingastofnun samkvæmt 42. gr. laga um almannatryggingar og 67. gr. barnalaga að hafa milligöngu um greiðslu meðlags, allt að 12 mánuði aftur í tímann. Lög veiti Tryggingastofnun ekki heimild til að taka önnur gögn en talin séu upp í framangreindum ákvæðum til greina við milligöngu um greiðslu meðlags.

Hjá Tryggingastofnun liggi fyrir löggild meðlagsákvörðun, þ.e. ákvörðun sýslumanns um leyfi til lögskilnaðar, dags. 17. febrúar 2022, þar sem kveðið sé á um meðlagsgreiðslu kæranda til barnsföður hennar. Þá liggi fyrir umsókn barnsföður um greiðslur.

Með vísan til framangreinds beri Tryggingastofnun skylda til að hafa milligöngu um meðlag samkvæmt lögformlegri meðlagsákvörðun sé þess farið á leit við stofnunina allt að 12 mánuði aftur í tímann. Tryggingastofnun hafi engar heimildir til að virða að vettugi lögbundna skyldu sína til að greiða meðlag samkvæmt hinni lögformlegu meðlagsákvörðun. Tryggingastofnun hafi því borið að hafa milligöngu á meðlagi til barnsmóður kæranda frá 1. ágúst 2025 eins og óskað hafi verið eftir.

Úrskurðarnefnd velferðarmála hafi margsinnis í úrskurðum sínum staðfest þetta hlutverk Tryggingastofnunar og að ekki sé heimilt að horfa til annarra atriða við ákvörðun um milligöngu meðlagsgreiðslna. Í því samhengi skipti ekki máli hvort barn hafi jafna búsetu hjá báðum foreldrum sínum eða hvort greiðsla meðlags hafi farið fram fyrir það tímabil sem Tryggingastofnun hafi samþykkt milligöngu meðlags. Þá hafi nefndin sagt að ekki sé heimilt að setja viðbótarskilyrði í reglugerð sem takmarki lögbundinn rétt meðlagsmóttakanda til milligöngu meðlagsgreiðslna frá stofnuninni, eins og t.d. að gefa greiðanda kost á að sýna fram á að meðlag hafi verið greitt fyrir sama tímabil. Meðal úrskurða nefndarinnar varðandi þessi atriði megi nefna úrskurði í málum nr. 312/2017, 333/2018, 17/2019, 215/2019, 407/2019, 408/2019, 59/2020 og 76/2021.

Tryggingastofnun telji að miðað við fyrirliggjandi gögn sé ljóst að afgreiðsla málsins hafi að fullu og öllu verið í samræmi við lög, reglur og úrskurði úrskurðarnefndar. Fari stofnunin því fram á að kærð ákvörðun verði staðfest.

IV.  Niðurstaða

Mál þetta varðar ákvörðun Tryggingastofnunar ríkisins frá 14. apríl 2026 um að hafa milligöngu um meðlagsgreiðslur til barnsföður kæranda frá 1. ágúst 2025.

Kveðið er á um greiðsluskyldu Tryggingastofnunar ríkisins í 67. gr. barnalaga nr. 76/2003. Þar segir að Tryggingastofnun ríkisins sé skylt að greiða rétthafa greiðslna samkvæmt IV. og IX. kafla laganna, sem búsettur sé hér á landi, samkvæmt dómi, dómsátt, úrskurði sýslumanns eða samningi staðfestum af honum, þó innan þeirra marka sem lög um almannatryggingar setji.

Samkvæmt 1. mgr. 42. gr. laga nr. 100/2007 um almannatryggingar getur hver sá sem fær úrskurð um meðlag með barni, sem hann hefur á framfæri sínu, snúið sér til Tryggingastofnunar ríkisins og fengið fyrirframgreiðslu meðlags og annarra framfærsluframlaga samkvæmt úrskurðinum. Sama gildir þegar lagt er fram staðfest samkomulag um meðlagsgreiðslur og aðrar greiðslur samkvæmt IX. kafla barnalaga. Heimilt er að greiða meðlag aftur í tímann allt að 12 mánuði, talið frá byrjun þess mánaðar sem stjórnvaldsúrskurður, staðfestur samningur eða vottorð sýslumanns um að hann hafi veitt viðtöku ósk móður um öflun faðernisviðurkenningar berst stofnuninni, sbr. 4. mgr. 42. gr. laganna.

Samkvæmt framangreindu ber Tryggingastofnun ríkisins að hafa milligöngu um meðlagsgreiðslur, berist beiðni þar um frá meðlagsmóttakanda á grundvelli lögformlegrar meðlagsákvörðunar. Fyrir liggur að barnsfaðir kæranda, sem er meðlagsmóttakandi með yngsta barni þeirra, sótti um milligöngu Tryggingastofnunar um meðlagsgreiðslur með dóttur þeirra frá 1. ágúst 2025 með umsókn 30. mars 2026. Stofnunin samþykkti umsóknina frá 1. ágúst 2025 á grundvelli leyfis Sýslumannsins á höfuðborgarsvæðinu til lögskilnaðar, dags. 17. febrúar 2022. Samkvæmt því ber kæranda að greiða barnsföður sínum meðlag með yngri dóttur þeirra frá 1. nóvember 2020 til 18 ára aldurs hennar.

Hlutverk Tryggingastofnunar í tengslum við meðlagsgreiðslur markast af ákvæðum viðeigandi laga. Samkvæmt 1. mgr. 42. gr. laga um almannatryggingar er stofnuninni falið að hafa milligöngu um meðlagsgreiðslur allt að tólf mánuði aftur í tímann, sé þess farið á leit við stofnunina, í þeim tilvikum þar sem lögformleg meðlagsákvörðun liggur fyrir.

Í kæru greinir kærandi frá því að hún mótmæli þessari kröfu, barnið búi að jafnaði til jafns hjá báðum foreldrum og að taka verði tillit til þess. Þá greinir kærandi frá því að beiðni barnsföður hennar sé byggð á reiði í garð hennar vegna þess að hún hafi tilkynnt hann til barnaverndar. Kærandi greinir frá því að börn þeirra sem séu eldri en 18 ára búi hjá henni og að barnsfaðir hennar hafi ekki aðstoðað þau með greiðslu skólagjalda og fleira. Auk þess greinir kærandi frá því að hún hafi verulegar áhyggjur af aðstæðum heima hjá barnsföður sínum. Með vísan til 1. mgr. 42. gr. laga um almannatryggingar er það mat úrskurðarnefndar að ekki sé heimilt að synja meðlagsmóttakanda um milligöngu meðlagsgreiðslna á grundvelli framangreindra málsástæðna þar sem fyrir liggur löggild meðlagsákvörðun sem kveður á um greiðsluskyldu kæranda.

Að öllu framangreindu virtu er það niðurstaða úrskurðarnefndar velferðarmála að staðfesta ákvörðun Tryggingastofnunar ríkisins frá 14. apríl 2026 um að hafa milligöngu um meðlagsgreiðslur til barnsföður kæranda frá 1. ágúst 2025. 

Kæranda er bent á hún geti freistað þess að leita til sýslumanns óski hún eftir að fá meðlagsákvörðun breytt.

Ú R S K U R Ð A R O R Ð

Ákvörðun Tryggingastofnunar ríkisins um að hafa milligöngu um meðlagsgreiðslur til barnsföður A, frá 1. ágúst 2025, er staðfest.

F.h. úrskurðarnefndar velferðarmála

 

Rakel Þorsteinsdóttir