24 júní 2026

/

Rýmri fjárfestingarheimildir lífeyrissjóða samþykktar á Alþingi

{image.Description}
Haraldur Jónasson / Hari

Alþingi hefur samþykkt breytingar á lögum um skyldutryggingu lífeyrisréttinda og starfsemi lífeyrissjóða, sem fela í sér rýmri fjárfestingarheimildir lífeyrissjóða.

Markmið laganna er að gera lífeyrissjóðum betur kleift að beita skynsemisreglu við stýringu eigna sjóðfélaga þannig að taka megi með sem bestum hætti tillit til aðstæðna og samsetningar hvers lífeyrissjóðs fyrir sig. Með því móti eru taldar auknar líkur á að eignir lífeyrissjóðs geti betur staðið undir greiðslu lífeyris.

Með breytingunum er ýmsum hindrunum fækkað sem hafa dregið úr ávöxtunarmöguleikum sjóðanna. Meðal breytinga eru rýmri heimildir til fjárfestinga í óskráðum eignum. Áfram er lögð áhersla á skýran lagaramma og virkt eftirlit með starfsemi lífeyrissjóða. Lögin taka gildi 1. júlí nk.