24 júní 2026

/

Samstarfsráðherrar Norðurlanda funda í Færeyjum

{image.Description}
Ráðherrar og aðrir þátttakendur á sumarfundi samstarfsráðherra Norðurlanda í Færeyjum í júní 2026, um borð í færeyska eftirlitsskipinu Brimil, þar sem m.a. var fylgst með björgunaræfingu þyrlusveitar.

Logi Einarsson, menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra og samstarfsráðherra Norðurlanda, sótti nýverið sumarfund samstarfsráðherra Norðurlanda í Þórshöfn í Færeyjum.

Á fundinum var meðal annars fjallað um aukið samstarf á sviði samfélagsöryggis sem er þverlægt verkefni sem snertir nær öll starfssvið ráðherranefndarinnar. Ákveðið var að efla samstarfið enn frekar með áætlun sem tekur til samfélagsöryggis og viðbúnaðar á vettvangi ráðherranefndarinnar.

Einnig ræddu ráðherrarnir innri málefni samstarfsins, þar á meðal áframhaldandi nútímavæðingu þess og undirbúning fjárhagsáætlunar fyrir árið 2027.

Samstarfsráðherrarnir funduðu með stjórnsýsluhindranaráði um frjálsa för fólks á Norðurlöndum og ræddu aðgang að stafrænni þjónustu yfir landamæri, skattatengdar stjórnsýsluhindranir og áskoranir sem tengjast lífeyrismálum einstaklinga sem flytjast milli Norðurlanda.

Í tengslum við fundinn fengu ráðherrarnir kynningu á viðbúnaðar- og menningarmálum í Færeyjum. Þeir kynntu sér meðal annars notkun dróna við leit og björgun, sigldu með færeyska eftirlitsskipinu Brimil og fylgdust með björgunaræfingu þyrlusveitar.

Norðurlandahúsið í Færeyjum var heimsótt en það gegnir lykilhlutverki í menningarlífi Færeyja og norrænu menningarsamstarfi og hefur það hlutverk að miðla listum og menningu frá Norðurlöndum. Þá heimsóttu ráðherrarnir Kirkjubæ, sem var biskupssetur á miðöldum og telst einn merkasti sögustaður Færeyja.

Um Norrænu ráðherranefndina

Danmörk og Færeyjar gegna formennsku í Norrænu ráðherranefndinni árið 2026 undir yfirskriftinni Norðurlönd 2026 – Traust tengsl í hverfulum heimi.

Samstarfsráðherrar Norðurlanda fara í umboði forsætisráðherra landanna með samræmingu norræns ríkisstjórnarsamstarfs á vettvangi Norrænu ráðherranefndarinnar. Starfið fer fram í tólf ráðherranefndum ásamt fjölmörgum nefndum embættismanna og starfshópum.

Markmið samstarfsins er að þróa sameiginlegar lausnir á þeim sviðum þar sem Norðurlöndin ná betri árangri með samstilltu átaki. Starfið byggir á stefnumótuninni Framtíðarsýn okkar 2030, sem hefur það að markmiði að Norðurlöndin verði samþættasta og sjálfbærasta svæði heims árið 2030. Áhersla er lögð á græn, samkeppnishæf og félagslega sjálfbær Norðurlönd, en fjórtán samstarfsáætlanir á mismunandi málefnasviðum marka pólitískar áherslur starfsins á tímabilinu 2025–2030.