25 júní 2026
/
Fimm umsækjendur um embætti forstjóra Heilbrigðisstofnunar Austurlands
Frestur til að sækja um embætti forstjóra Heilbrigðisstofnunar Austurlands rann út 22. júní sl. Umsækjendur um embættið eru fimm. Þriggja manna hæfnisnefnd skipuð á grundvelli laga um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins mun meta hæfni umsækjenda og skila ráðgefandi álitsgerð til heilbrigðisráðherra sem skipar í stöðuna til 5 ára.
Umsækjendur um embættið eru eftirtaldir:
- Arna Rut Ottesen Gunnarsdóttir, framkvæmdarstjóri
- Gunnar Kristinn Þórðarson, stuðningsfulltrúi
- Jón Magnús Eyþórsson , tölvunarfræðingur
- Jórunn Ósk Frímannsdóttir Jensen, hjúkrunarfræðingur
- Þórarna Gró Friðjónsdóttir, settur forstjóri