25 júní 2026
/
Mál nr. 150/2026-Úrskurður
Úrskurðarnefnd velferðarmála
Mál nr. 150/2026
Fimmtudaginn 25. júní 2026
A
gegn
Vinnumálastofnun
Ú R S K U R Ð U R
Mál þetta úrskurða Hólmfríður Birna Guðmundsdóttir lögfræðingur, Agnar Bragi Bragason lögfræðingur og Arnar Kristinsson lögfræðingur.
Með kæru, dags. 24. febrúar 2026, kærði A, til úrskurðarnefndar velferðarmála ákvörðun Vinnumálastofnunar, dagsett sama dag, um að fella niður rétt hans til atvinnuleysisbóta í tvo mánuði.
I. Málsatvik og málsmeðferð
Kærandi sótti um atvinnuleysisbætur hjá Vinnumálastofnun 3. janúar 2025 og var umsóknin samþykkt 6. febrúar 2025. Með ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 24. febrúar 2026, var kæranda tilkynnt að réttur hans til atvinnuleysisbóta hefði verið felldur niður í tvo mánuði á grundvelli 1. mgr. 58. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar með vísan til þess að hann hefði hafnað þátttöku í vinnumarkaðsúrræði.
Kæra barst úrskurðarnefnd velferðarmála 24. febrúar 2026. Með bréfi, dags. 25. febrúar 2026, óskaði úrskurðarnefndin eftir greinargerð Vinnumálastofnunar ásamt gögnum málsins. Greinargerð Vinnumálastofnunar barst 20. mars 2026 og var hún kynnt kæranda með bréfi úrskurðarnefndar, dags. 23. mars 2026. Athugasemdir bárust frá kæranda 23. og 24. mars 2026 og voru þær kynntar Vinnumálastofnun með bréfi úrskurðarnefndar, dags. 25. mars 2026. Frekari athugasemdir bárust ekki.
II. Sjónarmið kæranda
Í kæru til úrskurðarnefndar kemur fram að kærandi hafi ekki hafnað þátttöku í vinnumarkaðsúrræði. Kærandi hafi mætt á skrifstofu Vinnumálastofnunar sama dag, klukkan 11:00, eða tveimur klukkustundum eftir boðaðan fundartíma. Mál kæranda snúist því um seinkun en ekki um synjun eða viljandi fjarveru. Seinkunin hafi ekki verið af ásetningi heldur hafi verið um að ræða mistök varðandi tímasetningu fundarins. Kærandi hafi daginn áður mætt í viðtal hjá sálfræðingi klukkan 11:00 og ruglast á tímasetningum. Enginn ásetningur hafi verið til að hafna þátttöku eða sniðganga skyldur kæranda. Kærandi telji að skilyrði 58. gr. laga nr. 54/2006 séu ekki uppfyllt þar sem hann hafi mætt á staðinn sama dag og hafi sýnt vilja til samstarfs. Tveggja mánaða greiðslustöðvun sé í þessu samhengi ósanngjörn og íþyngjandi miðað við atvik málsins. Kærandi óski eftir því að ákvörðun Vinnumálastofnunar verði felld úr gildi.
Í athugasemdum frá kæranda vegna greinargerðar Vinnumálastofnunar greinir kærandi frá því að þann 21. janúar 2026 hafi hann mætt á boðaðan fund hjá Vinnumálastofnun en seinkað vegna misskilnings á tíma. Á þessu tímabili hafi kærandi glímt við heilsufarsvandamál af sálrænum toga sem hafi getað haft áhrif á getu hans til að takast á við aðstæður og stuðlað að þessum mistökum. Kærandi hafi ekki forðast skyldur sýnar né samskipti við stofnunina. Þetta hafi verið einstakt atvik sem hafi stafað af misskilningi en ekki af virðingarleysi gagnvart reglum. Viðurlög í formi stöðvunar greiðslna í tvo mánuði séu að mati kæranda óhófleg miðað við aðstæður. Seinkun hafi ekki átt að jafngilda fjarveru frá fundi. Slík íþyngjandi viðurlög leiði í raun til alvarlegra fjárhagslegra afleiðinga sem séu ekki í samræmi við eðli málsins. Kærandi telji að í slíkum tilvikum sé rétt að beita einstaklingsbundnu mati þar sem tekið sé mið af raunverulegum aðstæðum en ekki eingöngu sjálfvirkri beitingu reglna. Kærandi óski eftir því að mál hans verði tekið til endurskoðunar og ákvörðun endurskoðuð með hliðsjón af raunverulegum atvikum.
Í viðbótarskýringum frá kæranda tekur hann fram að upplýsingar um tíma fundarins hafi verið sendar honum með smáskilaboðum þann 20. janúar 2026 um morguninn. Sama dag hafi kærandi átt tíma hjá sálfræðingi sem hafi getað haft áhrif á hvernig hann hafi tekið á móti og munað þessar upplýsingar og hafi leitt til misskilnings um tíma fundarins. Þessi atvik staðfesti enn fremur að umrædd staða hafi ekki stafað af vanrækslu af hálfu kæranda heldur samspili aðstæðna. Lykilatriði í þessu máli sé að greina á milli þess að hafna þátttöku á fundi og þess að um hafi verið að ræða mistök varðandi fundartíma. Af þeim aðstæðum sem liggi fyrir hafi ekki verið um að ræða synjun á þátttöku, heldur óviljandi mistök sem megi rekja til samspils aðstæðna þar á meðal tíma hjá sálfræðingi og þess hvernig upplýsingar um fundinn hafi verið veittar. Kærandi hafi mætt í húsnæði stofnunarinnar sama dag sem staðfesti að hann hafi ekki forðast skyldur sínar heldur verið í góðri trú. Með hliðsjón af framangreindu telji kærandi að beiting viðurlaga sem séu ætluð tilvikum þar sem þátttöku sé hafnað sé hvorki málefnalegt né í samræmi við meðalhófsreglu miðað við aðstæður málsins.
III. Sjónarmið Vinnumálastofnunar
Í greinargerð Vinnumálastofnunar kemur fram að kærandi hafi síðast sótt um greiðslur atvinnuleysisbóta með umsókn, dags. 3. janúar 2025. Með erindi, dags. 6. febrúar 2025, hafi kæranda verið tilkynnt að umsókn hans hefði verið samþykkt og að útreiknaður bótaréttur væri 100%.
Þann 20. janúar 2026 hafi kærandi verið boðaður á upplýsingafund á þjónustuskrifstofu Vinnumálastofnunar, Grensásvegi 9, þann 21. janúar 2026, klukkan 09:00. Athygli hafi verið vakin á að ótilkynnt forföll og forföll án gildrar ástæðu gætu valdið stöðvun á greiðslum atvinnuleysistrygginga. Umrædd boðun hafi verið send þann 20. janúar 2026 á „Mínar síður“ kæranda með tilkynningu á uppgefið netfang X og með smáskilaboðum í farsímanúmerið X. Samkvæmt skráningu Vinnumálastofnunar hafi smáskilaboðin borist í símtæki kæranda þann 20. janúar 2026, klukkan 08:48.
Fyrir liggi að kærandi hafi ekki mætt á boðaðan fund. Kærandi hafi mætt á þjónustuskrifstofu Vinnumálastofnunar, klukkan 11:00, tæplega tveimur klukkustundum eftir að upplýsingafundurinn hafi farið fram. Kærandi hafi tjáð starfsmanni Vinnumálastofnunar að hann hafi talið að boðaður fundur myndi fara fram klukkan 11:00 en ekki 09:00. Kæranda hafi verið leiðbeint um að senda inn á „Mínar síður“ á vef Vinnumálastofnunar skriflegar skýringar á ástæðum þess að hann hafi mætt of seint.
Skriflegar skýringar á ástæðum fjarveru kæranda hafi borist frá honum þann 21. janúar. Samkvæmt þeim hafi kærandi átt pantaðan tíma hjá sálfræðingi deginum áður, klukkan 11:00, sem hafi gert það að verkum að hann hafi ruglað tímunum saman. Kærandi hafi því fyrir mannlegum mistökum mætt klukkan 11:00 en ekki klukkan 09:00 eins og tilgreint hafi verið í boðun. Þá hafi kærandi tekið fram að hann hafi verið að ganga í gegnum erfiða tíma vegna þunglyndis sem hafi þau áhrif að hann eigi erfitt með að halda einbeitingu. Kærandi hafi óskað eftir að Vinnumálastofnun myndi boða hann aftur á upplýsingafund.
Vinnumálastofnun hafi óskað eftir frekari skýringum frá kæranda á fjarveru á boðaðan upplýsingafund með erindi, dags. 3. febrúar 2026, og þann 4. [febrúar] hafi fleiri upplýsingar borist frá kæranda. Þar komi fram að kærandi hafi átt pantaðan rafrænan tíma hjá sálfræðingi degi áður en upplýsingafundurinn hafi farið fram, klukkan 12:00 á pólskum tíma sem samsvari klukkan 11:00 á íslenskum tíma. Kærandi hafi einnig sent inn staðfestingu á pólsku sem staðfesti að kærandi hafi átt pantaðan tíma hjá sálfræðingi klukkan 12:00 þann 20. janúar 2026.
Með erindi stofnunarinnar, dags. 24. febrúar 2026, hafi kæranda verið birt ákvörðun um tveggja mánaða biðtíma eftir greiðslum atvinnuleysisbóta til hans á grundvelli 1. mgr. 58. gr. laga um atvinnuleysistryggingar.
Framangreind ákvörðun Vinnumálastofnunar hafi verið kærð til úrskurðarnefndar velferðarmála 24. febrúar 2026. Þær skýringar sem kærandi hafi áður veitt stofnuninni á fjarveru sinni á boðað vinnumarkaðsúrræði samhliða kæru séu efnislega þær sömu og hafi legið fyrir við vinnslu hinnar kærðu ákvörðun.
Lög nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar gildi um atvinnuleysistryggingar launamanna eða sjálfstætt starfandi einstaklinga á innlendum vinnumarkaði þegar þeir verði atvinnulausir, sbr. 1. gr. laganna.
Á meðal skilyrða greiðslu atvinnuleysisbóta sé að viðkomandi sé í virkri atvinnuleit, sbr. a. lið 1. mgr. 13. gr. laga um atvinnuleysistryggingar. Samkvæmt [h. lið] 1. mgr. 14. gr. felist virk atvinnuleit meðal annars í því að hafa vilja og getu til að taka þátt í þeim vinnumarkaðsaðgerðum er standi til boða. Í 13. gr. laga um vinnumarkaðsúrræði nr. 55/2006 komi einnig fram skylda þess sem teljist tryggður samkvæmt lögum um atvinnuleysistryggingar til að taka þátt í þeim vinnumarkaðsúrræðum sem Vinnumálastofnun ákveði. Ákvæði 13. gr. sé svohljóðandi:
„Atvinnuleitandi skal fylgja eftir áætlun um atvinnuleit og þátttöku í viðeigandi vinnumarkaðsúrræðum skv. 11. gr. og gera það sem í hans valdi stendur til að bæta vinnufærni sína til þess að verða virkur þátttakandi á vinnumarkaði. Þar á meðal skal atvinnuleitandi ávallt mæta í viðtöl til ráðgjafa Vinnumálastofnunar skv. 14. gr. og taka þátt í þeim vinnumarkaðsúrræðum er standa honum til boða. Atvinnuleitandi skal jafnframt tilkynna Vinnumálastofnun um þær breytingar sem kunna að verða á vinnufærni hans eða aðstæðum að öðru leyti án ástæðulausrar tafar.“
Þá sé í 1. mgr. 14. gr. laga um vinnumarkaðsaðgerðir kveðið á um að ráðgjafar Vinnumálastofnunar skuli hafa eftirlit með því að atvinnuleitendur fylgi eftir áætlun um atvinnuleit og þátttöku í viðeigandi vinnumarkaðsúrræðum. Ráðgjafar stofnunarinnar skulu boða atvinnuleitendur reglulega í viðtöl eftir þörfum hvers og eins atvinnuleitanda.
Á grundvelli 7. mgr. 9. gr. laga um atvinnuleysistryggingar beri atvinnuleitendum að hafa reglulegt samband við Vinnumálastofnun eftir nánara fyrirkomulagi sem stofnunin ákveði. Í tilfelli kæranda hafi hann verið boðaður til fundar hjá stofnuninni en samkvæmt 3. mgr. 13. gr. laganna sé Vinnumálastofnun heimilt að boða atvinnuleitendur til stofnunarinnar með sannanlegum hætti meðal annars til að kanna hvort breytingar hafi orðið á högum þeirra sem kunni að hafa áhrif á rétt þeirra til greiðslu atvinnuleysisbóta. Atvinnuleitendur skulu þá vera reiðubúnir að mæta til stofnunarinnar með mjög skömmum fyrirvara. Ákvæði 3. mgr. 13. gr. hafi verið bætt við lög um atvinnuleysistryggingar með 4. gr. laga nr. 134/2009, en í athugasemdum með 4. gr. segi að gert sé ráð fyrir að stofnunin geti boðað atvinnuleitanda með allt að sólarhringsfyrirvara á þá skrifstofu sína sem næst sé lögheimili viðkomandi.
Fyrir liggi að kærandi hafi ekki mætt á fund Vinnumálastofnunar þann 21. janúar 2026, klukkan 09:00. Kærandi hafi fengið senda tilkynningu í tölvupósti, farsíma og á „Mínum síðum“ um boðun á umræddan upplýsingafund. Á grundvelli 1. mgr. 58. gr. laga um atvinnuleysistryggingar hafi kæranda því verið gert að sæta viðurlögum vegna þessa. Ákvæðið sé svohljóðandi:
„Sá sem hafnar þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum, sbr. lög um vinnumarkaðsaðgerðir, samkvæmt ákvörðun Vinnumálastofnunar eftir að hafa verið í atvinnuleit í a.m.k. fjórar vikur frá móttöku Vinnumálastofnunar á umsókn um atvinnuleysisbætur skal ekki eiga rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta skv. VII. kafla fyrr en að tveimur mánuðum liðnum, sem ella hefðu verið greiddar bætur fyrir, frá þeim degi er viðurlagaákvörðun Vinnumálastofnunar er tilkynnt aðila, sbr. þó 4. mgr. Hið sama gildir þegar hinn tryggði mætir ekki til Vinnumálastofnunar á áður boðuðum tíma skv. 6. mgr. 9. gr., 3. mgr. 13. gr. eða 3. mgr. 18. gr.“
Í 58. gr. laga um atvinnuleysistryggingar komi skýrt fram að hafni einstaklingur þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum skuli hann sæta tveggja mánaða biðtíma eftir atvinnuleysisbótum. Hið sama gildi þegar hinn tryggði mæti ekki til Vinnumálastofnunar á áður boðuðum tíma. Í greinargerð með frumvarpi til laga um atvinnuleysistryggingar sé efni 58. gr. laganna nánar skýrt. Þar segi að Vinnumálastofnun annist skipulag vinnumarkaðsaðgerða og að litið sé svo á að þeim sem tryggðir séu innan atvinnuleysistryggingakerfisins sé skylt að taka þátt í vinnumarkaðsúrræðum. Þá sé jafnframt tekið fram í greinargerðinni að bregðist hinn tryggði þeirri skyldu leiði það til viðurlaga í formi biðtíma eftir atvinnuleysisbótum.
Af framangreindum lagaákvæðum sé ljóst að heimildir Vinnumálastofnunar til að boða til sín atvinnuleitendur, og sömuleiðis skyldur atvinnuleitenda til að verða við slíkri boðun, séu ríkar. Þá sé það fortakslaust skilyrði svo unnt sé að aðstoða atvinnuleitendur við að fá starf við hæfi og gefa þeim kost á þátttöku í viðeigandi vinnumarkaðsaðgerðum að atvinnuleitendur sinni þeim boðunum sem þeim séu send. Í skilmálum sem umsækjendur samþykki þegar þeir sæki um greiðslur atvinnuleysistrygginga komi fram að umsækjendum sé skylt að mæta í viðtöl, fundi, námskeið og önnur úrræði sem Vinnumálastofnun boði til.
Skýringar kæranda á ástæðum þess að hann hafi ekki mætt á boðaðan upplýsingafund hafi verið þær að hann hafi ruglast á tímasetningum. Kærandi hafi verið að glíma við þunglyndi og átt erfitt með að halda einbeitingu. Að mati Vinnumálastofnunar geti skýringar kæranda á fjarveru hans ekki talist gildar í skilningi laga um atvinnuleysistryggingar. Líkt og fyrr segi hafi kærandi verið boðaður á umræddan fund með skilaboðum á „Mínum síðum“ atvinnuleitanda, með tölvupósti á netfang kæranda og með smáskilaboðum í skráð símanúmer kæranda. Það sé á ábyrgð atvinnuleitenda að kynna sér þau skilaboð sem stofnunin sendi þeim, enda séu allir umsækjendur um atvinnuleysisbætur upplýstir um mikilvægi þess. Ekki verði fallist á að skýringar er lúti að því að atvinnuleitandi hafi misskilið tímasetningar eða dagsetningar teljist gildar í skilningi laganna eða að tímapantanir viðkomandi atvinnuleitanda, hjá öðrum ótengdum aðilum, hafi áhrif á skyldu þeirra til að sinna vinnumarkaðsúrræðum.
Í ljósi framangreinds og þeirrar ríku skyldu sem hvíli á atvinnuleitendum til þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum sé það mat Vinnumálastofnunar að kærandi hafi brugðist skyldum sínum samkvæmt 13. gr. laga um vinnumarkaðsúrræði, 7. mgr. 9. gr. laga um atvinnuleysistryggingar og 3. mgr. 13. gr. sömu laga. Með því að hafa ekki mætt til umrædds upplýsingafundar hafi kærandi hafnað þátttöku í vinnumarkaðsúrræði og honum beri því að sæta viðurlögum á grundvelli 1. mgr. 58. gr.
Með vísan til alls framangreinds sé það niðurstaða Vinnumálastofnunar að kærandi skuli sæta viðurlögum í tvo mánuði á grundvelli 1. mgr. 58. gr. laga um atvinnuleysistryggingar.
IV. Niðurstaða
Kærð er ákvörðun Vinnumálastofnunar um að fella niður rétt kæranda til atvinnuleysisbóta í tvo mánuði á grundvelli 1. mgr. 58. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar.
Í 58. gr. laga nr. 54/2006 er kveðið á um viðurlög við því ef þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum er hafnað. Segir þar í 1. mgr. að sá sem hafni þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum, sbr. lög um vinnumarkaðsaðgerðir, samkvæmt ákvörðun Vinnumálastofnunar eftir að hafa verið í atvinnuleit í að minnsta kosti fjórar vikur frá móttöku Vinnumálastofnunar á umsókn um atvinnuleysisbætur, skuli ekki eiga rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta samkvæmt VII. kafla laganna fyrr en að tveimur mánuðum liðnum, sem ella hefðu verið greiddar bætur fyrir, frá þeim degi er viðurlagaákvörðun Vinnumálastofnunar er tilkynnt aðila. Hið sama gildi þegar hinn tryggði mæti ekki til Vinnumálastofnunar á áður boðuðum tíma samkvæmt 6. mgr. 9. gr., nú 7. mgr. 9. gr., 3. mgr. 13. gr. eða 3. mgr. 18. gr. laganna.
Í athugasemdum greinargerðar við frumvarp það er varð að lögum nr. 134/2009, um breytingu á lögum nr. 54/2006, segir meðal annars um viðurlög við því að virða ekki boðun Vinnumálastofnunar:
„Í ljósi þess að mikilvægt er að Vinnumálastofnun geti haldið reglulegu sambandi við þá sem fá greiddar atvinnuleysisbætur, ekki síst til að geta fylgst með gangi atvinnuleitar og hvort stofnunin þurfi að koma að frekari stuðningi við viðkomandi, er lagt til að það kunni að varða viðurlögum á grundvelli laganna í þeim tilvikum er atvinnuleitendur virða ekki boðun stofnunarinnar skv. 1. gr. frumvarps þessa. Á þetta ekki síst við þegar fá störf eru í boði og auknar líkur eru á að atvinnuleitin dragist á langinn. Jafnframt er lagt til að sama gildi þegar atvinnuleitendur eru boðaðir til stofnunarinnar í því skyni að kanna hvort sá hinn sami uppfylli enn skilyrði laganna, sbr. 4. og 6. gr. frumvarps þessa. Er því gert ráð fyrir að sömu viðurlög komi til og eiga við þegar þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum er hafnað.“
Í 7. mgr. 9. gr. kemur fram að sá sem telst tryggður á grundvelli laganna skuli eftir að umsókn hans hafi verið samþykkt og á þeim tíma sem hann fái greiddar atvinnuleysisbætur eða sæti biðtíma eða viðurlögum samkvæmt lögunum hafa reglulegt samband við Vinnumálastofnun eftir nánara fyrirkomulagi sem stofnunin ákveði. Þegar Vinnumálastofnun upplýsi umsækjanda um að stofnunin hafi samþykkt umsókn um atvinnuleysisbætur skuli hún jafnframt upplýsa hlutaðeigandi um með hvaða hætti stofnunin muni koma upplýsingum eða öðrum boðum til hans meðan á atvinnuleit hans standi. Komi Vinnumálastofnun upplýsingum eða boðum til umsækjanda með þeim hætti sem stofnunin hafi tiltekið við hlutaðeigandi teljast upplýsingarnar eða boðin hafa borist með sannanlegum hætti.
Þá segir í 3. mgr. 13. gr. laga nr. 54/2006 að Vinnumálastofnun sé heimilt að boða þann tryggða til stofnunarinnar með sannanlegum hætti á þeim tíma sem hann fái greiddar atvinnuleysisbætur eða sæti biðtíma eða viðurlögum samkvæmt lögunum, meðal annars til að kanna hvort breytingar hafi orðið á högum hans sem kunni að hafa áhrif á rétt hans samkvæmt lögunum. Hinn tryggði skuli þá vera reiðubúinn að mæta til stofnunarinnar með mjög skömmum fyrirvara.
Samkvæmt gögnum málsins var kærandi þann 20. janúar 2026 boðaður á upplýsingafund á þjónustuskrifstofu Vinnumálastofnunar sem haldinn var þann 21. janúar 2026, klukkan 09:00. Kæranda var greint frá því að um skyldumætingu væri að ræða og að forföll bæri að tilkynna án ástæðulausrar tafar á „Mínum síðum“ Vinnumálastofnunar. Kæranda var jafnframt greint frá því að fundurinn hæfist stundvíslega klukkan 09:00. Athygli kæranda var vakin á því að ótilkynnt forföll og forföll án gildrar ástæðu gætu valdið stöðvun greiðslna eftir viðeigandi ákvæðum laganna.
Fyrir liggur að kærandi mætti á þjónustuskrifstofu Vinnumálastofnunar tveimur klukkustundum of seint. Af hálfu kæranda hefur meðal annars komið fram að hann hafi ruglast á tímasetningu fundarins og því mætt of seint.
Framangreind boðun var send kæranda með sannanlegum hætti, þ.e. með tilkynningu á „Mínar síður“, í skráð tölvupóstfang og farsíma. Í 1. mgr. 58. gr. laga nr. 54/2006 kemur skýrt fram að sá sem hafni þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum skuli sæta viðurlögum á grundvelli ákvæðisins og hið sama gildir þegar hinn tryggði mætir ekki til Vinnumálastofnunar á áður boðuðum tíma. Í framangreindri boðun Vinnumálastofnunar kom skýrt fram og með nægum fyrirvara tímasetning sem kæranda bar að mæta á upplýsingafund hjá stofnuninni. Að mati úrskurðarnefndar velferðarmála hefur kærandi ekki fært fram viðunandi skýringar sem réttlæta að hann hafi ekki mætt á boðaðan fund hjá Vinnumálastofnun. Er það á ábyrgð kæranda að fullvissa sig um efni mikilvægra tilkynninga frá Vinnumálastofnun þannig að misskilningur hans takmarki ekki að hann geti uppfyllt skyldur sínar samkvæmt lögunum.
Ákvörðun Vinnumálastofnunar um að fella niður rétt kæranda til atvinnuleysisbóta í tvo mánuði á grundvelli 1. mgr. 58. gr. laga nr. 54/2006 er því staðfest.
Ú R S K U R Ð A R O R Ð
Ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 24. febrúar 2026, um að fella niður rétt A, til atvinnuleysisbóta í tvo mánuði, er staðfest.
F.h. úrskurðarnefndar velferðarmála
Hólmfríður Birna Guðmundsdóttir