25 júní 2026
/
Mál nr. 173/2026-Úrskurður
Úrskurðarnefnd velferðarmála
Mál nr. 173/2026
Fimmtudaginn 25. júní 2026
A
gegn
Vinnumálastofnun
Ú R S K U R Ð U R
Mál þetta úrskurða Hólmfríður Birna Guðmundsdóttir lögfræðingur, Agnar Bragi Bragason lögfræðingur og Arnar Kristinsson lögfræðingur.
Með kæru, dags. 2. mars 2026, kærði A, til úrskurðarnefndar velferðarmála ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 26. febrúar 2026, um að fella niður rétt hennar til atvinnuleysisbóta í þrjá mánuði.
I. Málsatvik og málsmeðferð
Kærandi sótti um atvinnuleysisbætur hjá Vinnumálastofnun 30. nóvember 2024 og var umsóknin samþykkt 17. desember 2024. Með ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 26. febrúar 2026, var kæranda tilkynnt að bótaréttur hennar væri felldur niður í þrjá mánuði á grundvelli 1. mgr. 58. gr., sbr. 1. mgr. 61. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar þar sem hún hefði hafnað þátttöku í vinnumarkaðsúrræði.
Kæra barst úrskurðarnefnd velferðarmála 2. mars 2026. Með bréfi, dags. 5. mars 2026 óskaði úrskurðarnefndin eftir greinargerð Vinnumálastofnunar ásamt gögnum málsins. Greinargerð Vinnumálastofnunar barst 20. apríl 2026 og var hún kynnt kæranda með bréfi úrskurðarnefndar, dagsettu sama dag. Athugasemdir bárust ekki.
II. Sjónarmið kæranda
Í kæru til úrskurðarnefndar kemur fram að kæranda hafi verið gert að sæta þriggja mánaða bið eftir greiðslum atvinnuleysisbóta þar sem hún hafi ekki mætt í boðað viðtal hjá Vinnumálastofnun þann 2. febrúar 2026 og hafi ekki boðað forföll. Á þeim tíma sem viðtalið hafi átt að fara fram og helgina á undan hafi kærandi verið fárveik með X og ekki verið viðræðuhæf. Um leið og hún hafi getað hafi hún farið til læknis og fengið læknisvottorð sem hún hafi sent með skýringum sínum til Vinnumálastofnunar. Eftir það hafi kærandi fengið boðun um nýtt viðtal sem hún hafi mætt í þann 25. febrúar 2026.
Vinnumálastofnun hafi svo tekið ákvörðun í máli hennar. Þá hafi læknisvottorð hennar ekki verið metið gilt og þar sem hún hafi ekki boðað forföll hafi henni verið gert að sæta viðurlögum. Kærandi telji þetta vera mjög ósanngjarna niðurstöðu þar sem hún viti ekki hvað hún hefði getað gert öðruvísi annað en að láta vita fyrir boðaðan tíma en á þeim tíma hafi hún ekki verið viðræðuhæf og því ekki gert það.
Að öllu öðru leyti hafi kærandi verið virk í atvinnuleit og reynt að bæta við sig kunnáttu til að geta átt meiri möguleika á atvinnu. Kærandi óski þess að úrskurðarnefndin endurskoði ákvörðunina og dæmi þetta óréttmæta niðurstöðu þar sem hún hafi lögmæta ástæðu fyrir fjarveru og hafi mætt í endurboðaðan tíma að ósk Vinnumálastofnunar.
III. Sjónarmið Vinnumálastofnunar
Í greinargerð Vinnumálastofnunar kemur fram að kærandi hafi sótt um greiðslur atvinnuleysisbóta með umsókn, dags. 30. nóvember 2024. Með erindi, dags. 17. desember 2024, hafi kæranda verið tilkynnt að umsókn hennar hefði verið samþykkt og að bótaréttur væri 100%.
Þann [30. janúar] 2026 hafi kærandi verið boðuð í viðtal við ráðgjafa sem hafi átt að fara fram á þjónustuskrifstofu Vinnumálastofnunar í Reykjavík þann 2. febrúar 2026, klukkan 10:30. Kærandi hafi verið upplýst að um skyldumætingu væri að ræða og að öll forföll bæri að tilkynna án ástæðulausrar tafar. Sömuleiðis hafi kæranda verið tjáð að ótilkynnt forföll kynnu að leiða til þess að greiðslur atvinnuleysisbóta til hennar yrðu stöðvaðar. Boðun þessi hafi verið birt á „Mínum síðum“ kæranda. Ásamt því hafi verið vakin athygli á nýjum samskiptum með tölvupósti á netfang kæranda og með smáskilaboðum í skráð símanúmer kæranda, X. Samkvæmt skráningu Vinnumálastofnunar hafi smáskilaboðin borist í símtæki kæranda þann 30. janúar 2026, klukkan 12:00. Kærandi hafi hvorki mætt í boðað viðtal né boðað forföll.
Með erindi, dags. 16. febrúar 2026, hafi verið óskað eftir skriflegum skýringum á fjarveru í boðað viðtal þann 2. febrúar 2026. Kæranda hafi verið veittur sjö virkra daga frestur til að skila inn skýringum. Kærandi hafi samdægurs skilað inn læknisvottorði, dags. 16. febrúar 2026, þar sem fram komi að kærandi hafi verið óvinnufær með öllu þann 2. febrúar 2026 vegna sjúkdóms.
Með erindi, dags. 26. febrúar 2026, hafi kæranda verið tilkynnt að greiðslur atvinnuleysisbóta til hennar hefðu verið stöðvaðar í þrjá mánuði sökum þess að innsent læknisvottorð hafi ekki verið metin gild skýring á fjarveru hennar í boðað viðtal. Ákvörðun þessi hafi verið tekin á grundvelli 1. mgr. 58. gr., sbr. 1. mgr. 61. gr. laga um atvinnuleysistryggingar en kærandi hafi áður þurft að sæta viðurlögum á grundvelli laganna í október 2025.
Framangreind ákvörðun Vinnumálastofnunar hafi verið kærð til úrskurðarnefndar velferðarmála þann 2. mars 2026. Í kæru greini kærandi frá því að hún hafi ekki mætt í boðað viðtal á þjónustuskrifstofu Vinnumálastofnunar þann 2. febrúar 2026 sökum veikinda. Þá hafi hún á þeim tíma sem viðtalið hafi farið fram og helgina á undan verið fárveik með hlaupabólu og ekki verið viðræðuhæf. Hún hafi farið til læknis um leið og heilsa hennar hafi leyft og fengið læknisvottorð. Kærandi telji að ákvörðun Vinnumálastofnunar um þriggja mánaða biðtíma vera ósanngjarna sökum þess að hún hafi ekki getað tilkynnt um veikindi sín fyrr.
Lög nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar gildi um atvinnuleysistryggingar launamanna eða sjálfstætt starfandi einstaklinga á innlendum vinnumarkaði þegar þeir verði atvinnulausir, sbr. 1. gr. laganna.
Eitt af almennum skilyrðum greiðslu atvinnuleysisbóta samkvæmt 13. gr. laga um atvinnuleysistryggingar sé að vera í virkri atvinnuleit, sbr. a. lið 1. mgr. 13. gr. Í 14. gr. laganna sé kveðið á um hvað felist í virkri atvinnuleit en samkvæmt [h.] lið 1. mgr. 14. gr. felist virk atvinnuleit meðal annars í því að hafa vilja og getu til að taka þátt í þeim vinnumarkaðsaðgerðum er standi til boða. Í 13. gr. laga nr. 55/2006 um vinnumarkaðsaðgerðir komi einnig fram skylda þess sem teljist tryggður samkvæmt lögum um atvinnuleysistryggingar til að taka þátt í vinnumarkaðsúrræðum sem Vinnumálastofnun ákveði. Ákvæði 13. gr. sé svohljóðandi:
„Atvinnuleitandi skal fylgja eftir áætlun um atvinnuleit og þátttöku í viðeigandi vinnumarkaðsúrræðum skv. 11. gr. og gera það sem í hans valdi stendur til að bæta vinnufærni sína til þess að verða virkur þátttakandi á vinnumarkaði. Þar á meðal skal atvinnuleitandi ávallt mæta í viðtöl til ráðgjafa Vinnumálastofnunar skv. 14. gr. og taka þátt í þeim vinnumarkaðsúrræðum er standa honum til boða. Atvinnuleitandi skal jafnframt tilkynna Vinnumálastofnun um þær breytingar sem kunna að verða á vinnufærni hans eða aðstæðum að öðru leyti án ástæðulausrar tafar.“
Þá sé í 1. mgr. 14. gr. laga um vinnumarkaðsaðgerðir kveðið á um að ráðgjafar Vinnumálastofnunar skuli hafa eftirlit með því að atvinnuleitendur fylgi eftir áætlun um atvinnuleit og þátttöku í viðeigandi vinnumarkaðsúrræðum.
Af framangreindum lagaákvæðum sé ljóst að heimildir Vinnumálastofnunar til að boða til sín atvinnuleitendur, og sömuleiðis skyldur atvinnuleitanda til að verða við slíkri boðun, séu ríkar. Þá sé það fortakslaust skilyrði svo unnt sé að aðstoða atvinnuleitendur við að fá starf við hæfi og gefa þeim kost á þátttöku í viðeigandi vinnumarkaðsaðgerðum að atvinnuleitendur sinni þeim boðunum sem þeim séu send. Í skilmálum sem umsækjendur um atvinnuleysisbætur samþykki þegar þeir sæki um komi fram að viðkomandi sé upplýstur um að honum sé skylt að mæta í þau viðtöl, þá fundi, námskeið og önnur úrræði sem Vinnumálastofnun boði hann til.
Fyrir liggi að kærandi hafi ekki mætt í boðað viðtal hjá Vinnumálastofnun sem hafi átt að fara fram þann 2. febrúar 2026. Áður hafi kærandi fengið sendar tilkynningar í tölvupósti, með smáskilaboðum í farsíma og á „Mínum síðum“, þar sem tilgreind hafi verið tímasetning og staðsetning. Kærandi hafi sömuleiðis verið greint frá því að öll forföll þyrfti að tilkynna til stofnunarinnar án ástæðulausrar tafar. Á grundvelli 1. mgr. 58. gr. laga um atvinnuleysistryggingar hafi kæranda verið gert að sæta viðurlögum vegna þessa. Í 1. mgr. 58. gr. segi:
„Sá sem hafnar þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum, sbr. lög um vinnumarkaðsaðgerðir, samkvæmt ákvörðun Vinnumálastofnunar eftir að hafa verið í atvinnuleit í a.m.k. fjórar vikur frá móttöku Vinnumálastofnunar á umsókn um atvinnuleysisbætur skal ekki eiga rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta skv. VII. kafla fyrr en að tveimur mánuðum liðnum, sem ella hefðu verið greiddar bætur fyrir, frá þeim degi er viðurlagaákvörðun Vinnumálastofnunar er tilkynnt aðila, sbr. þó 4. mgr. Hið sama gildir þegar hinn tryggði mætir ekki til Vinnumálastofnunar á áður boðuðum tíma skv. 6. mgr. 9. gr., 3. mgr. 13. gr. eða 3. mgr. 18. gr.“
Í 1. mgr. 58. gr. laga um atvinnuleysistryggingar komi skýrt fram að hafni einstaklingur þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum skuli hann sæta tveggja mánaða biðtíma eftir atvinnuleysisbótum. Hið sama gildi þegar hinn tryggði mæti ekki til Vinnumálastofnunar á áður boðuðum tíma. Í greinargerð með frumvarpi til laga um atvinnuleysistryggingar sé efni 58. gr. laganna nánar skýrt. Þar segi að Vinnumálastofnun annist skipulag vinnumarkaðsaðgerða og að litið sé svo á að þeim sem tryggðir séu innan atvinnuleysistryggingakerfisins sé skylt að taka þátt í vinnumarkaðsúrræðum. Þá sé jafnframt tekið fram í greinargerðinni að bregðist hinn tryggði þeirri skyldu leiði það til viðurlaga í formi biðtíma eftir atvinnuleysisbótum.
Þær skýringar sem kærandi hafi veitt á ástæðum fjarveru hennar í boðað viðtal hjá ráðgjafa Vinnumálastofnunar lúti einkum að því að hún hafi verið veik. Þá hafi hún ekki getað boðað forföll sín sökum veikinda. Vinnumálastofnun hafi ekki metið læknisvottorð sem kærandi hafi fært fram til gildra skýringa á fjarveru hennar. Samkvæmt fyrirliggjandi gögnum hafi kærandi ekki boðað forföll sín. Í læknisvottorði sem kærandi hafi lagt fram komi fram að kærandi hafi verið óvinnufær vegna sjúkdóms þann 2. febrúar 2026. Af skýringum sem kærandi hafi lagt fram samhliða kæru megi ráða að hún hafi verið að glíma við veikindi í lengri tíma en fyrirliggjandi læknisvottorð beri með sér. Það hafi þó ekki verið fyrr en óskað hafi verið eftir skýringum á fjarveru kæranda í boðað viðtal þann 2. febrúar 2026 sem að læknisvottorð hafi borist frá kæranda. Engin skráning eða tilkynning liggi fyrir af hálfu kæranda um tilfallandi veikindi hvorki fyrir né eftir að umrætt viðtal hafi farið fram í febrúar 2026. Því sé ljóst að kærandi hafi hvorki lagt fram gildar skýringar á ástæðum þess af hverju hún hafi ekki tilkynnt um veikindi sín né á ástæðum fjarveru hennar á boðað vinnumarkaðsúrræði.
Vinnumálastofnun sé samkvæmt 3. mgr. 13. gr. laga um atvinnuleysistryggingar heimilt að boða atvinnuleitendur til stofnunarinnar. Atvinnuleitendur skuli vera reiðubúnir að mæta til stofnunarinnar með mjög skömmum fyrirvara. Ákvæði 3. mgr. 13. gr. hafi komið inn í lög um atvinnuleysistryggingar með 4. gr. laga nr. 134/2009 en í athugasemdum með 4. gr. segi að gert sé ráð fyrir að stofnunin geti boðað atvinnuleitanda með allt að sólarhringsfyrirvara á þá skrifstofu sína sem næst sé lögheimili viðkomandi.
Að mati Vinnumálastofnunar geti framangreindar skýringar kæranda ekki talist gildar í skilningi laga um atvinnuleysistryggingar. Í því samhengi bendi Vinnumálastofnun á að boð um að mæta í viðtal hafi verið sent bæði með tölvupósti á skráð netfang og með smáskilaboðum í skráð símanúmer kæranda meira en 24 tímum fyrir áætlað viðtal. Boðun til umrædds viðtals hafi því borist kæranda með sannanlegum hætti, sbr. lokamálslið 7. mgr. 9. gr. laga um atvinnuleysistryggingar. Í ljósi framangreinds og þeirrar ríku skyldu sem hvíli á atvinnuleitendum til þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum sé það mat Vinnumálastofnunar að kærandi hafi brugðist skyldum sínum samkvæmt 13. gr. laga um vinnumarkaðsúrræði, 7. mgr. 9. gr. laga um atvinnuleysistryggingar og 3. mgr. 13. gr. sömu laga.
Með vísan til alls framangreinds og í ljósi þess að kærandi hafi ekki mætt á boðað vinnumarkaðsúrræði án gildra skýringa í skilningi 1. mgr. 58. gr. beri henni að sæta viðurlögum á grundvelli sama ákvæðis. Þar sem um ítrekunaráhrif sé að ræða sé biðtími kæranda þrír mánuðir frá ákvörðunardegi, sbr. 61. gr. laga um atvinnuleysistryggingar.
IV. Niðurstaða
Kærð er ákvörðun Vinnumálastofnunar um að fella niður rétt kæranda til atvinnuleysisbóta í þrjá mánuði á grundvelli 1. mgr. 58. gr., sbr. 1. mgr. 61. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar.
Í 58. gr. laga nr. 54/2006 er kveðið á um viðurlög við því ef þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum er hafnað. Segir þar í 1. mgr. að sá sem hafni þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum, sbr. lög um vinnumarkaðsaðgerðir, samkvæmt ákvörðun Vinnumálastofnunar eftir að hafa verið í atvinnuleit í að minnsta kosti fjórar vikur frá móttöku Vinnumálastofnunar á umsókn um atvinnuleysisbætur, skuli ekki eiga rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta samkvæmt VII. kafla laganna fyrr en að tveimur mánuðum liðnum, sem ella hefðu verið greiddar bætur fyrir, frá þeim degi er viðurlagaákvörðun Vinnumálastofnunar er tilkynnt aðila. Hið sama gildi þegar hinn tryggði mæti ekki til Vinnumálastofnunar á áður boðuðum tíma samkvæmt 6. mgr. 9. gr., nú 7. mgr. 9. gr., 3. mgr. 13. gr. eða 3. mgr. 18. gr. laganna.
Í athugasemdum greinargerðar við frumvarp það er varð að lögum nr. 134/2009, um breytingu á lögum nr. 54/2006, segir meðal annars um viðurlög við því að virða ekki boðun Vinnumálastofnunar:
„Í ljósi þess að mikilvægt er að Vinnumálastofnun geti haldið reglulegu sambandi við þá sem fá greiddar atvinnuleysisbætur, ekki síst til að geta fylgst með gangi atvinnuleitar og hvort stofnunin þurfi að koma að frekari stuðningi við viðkomandi, er lagt til að það kunni að varða viðurlögum á grundvelli laganna í þeim tilvikum er atvinnuleitendur virða ekki boðun stofnunarinnar skv. 1. gr. frumvarps þessa. Á þetta ekki síst við þegar fá störf eru í boði og auknar líkur eru á að atvinnuleitin dragist á langinn. Jafnframt er lagt til að sama gildi þegar atvinnuleitendur eru boðaðir til stofnunarinnar í því skyni að kanna hvort sá hinn sami uppfylli enn skilyrði laganna, sbr. 4. og 6. gr. frumvarps þessa. Er því gert ráð fyrir að sömu viðurlög komi til og eiga við þegar þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum er hafnað.“
Í 7. mgr. 9. gr. kemur fram að sá sem telst tryggður á grundvelli laganna skuli eftir að umsókn hans hafi verið samþykkt og á þeim tíma sem hann fái greiddar atvinnuleysisbætur eða sæti biðtíma eða viðurlögum samkvæmt lögunum hafa reglulegt samband við Vinnumálastofnun eftir nánara fyrirkomulagi sem stofnunin ákveði. Þegar Vinnumálastofnun upplýsi umsækjanda um að stofnunin hafi samþykkt umsókn um atvinnuleysisbætur skuli hún jafnframt upplýsa hlutaðeigandi um með hvaða hætti stofnunin muni koma upplýsingum eða öðrum boðum til hans meðan á atvinnuleit hans standi. Komi Vinnumálastofnun upplýsingum eða boðum til umsækjanda með þeim hætti sem stofnunin hafi tiltekið við hlutaðeigandi teljast upplýsingarnar eða boðin hafa borist með sannanlegum hætti.
Þá segir í 3. mgr. 13. gr. laga nr. 54/2006 að Vinnumálastofnun sé heimilt að boða þann tryggða til stofnunarinnar með sannanlegum hætti á þeim tíma sem hann fái greiddar atvinnuleysisbætur eða sæti biðtíma eða viðurlögum samkvæmt lögunum, meðal annars til að kanna hvort breytingar hafi orðið á högum hans sem kunni að hafa áhrif á rétt hans samkvæmt lögunum. Hinn tryggði skuli þá vera reiðubúinn að mæta til stofnunarinnar með mjög skömmum fyrirvara.
Samkvæmt gögnum málsins var kærandi þann 30. janúar 2026 boðuð í viðtal á þjónustuskrifstofu Vinnumálastofnunar sem fara átti fram þann 2. febrúar 2026. Kæranda var greint frá því að um skyldumætingu væri að ræða og að forföll bæri að tilkynna án ástæðulausrar tafar. Kærandi var jafnframt upplýst um að ótilkynnt forföll og forföll án gildrar ástæðu gætu valdið stöðvun greiðslna eftir viðeigandi ákvæðum laganna. Að lokum var kærandi hvött til að hafa samband ef eitthvað væri óljóst eða hún óskaði frekari upplýsinga. Fyrir liggur að kærandi hvorki mætti í viðtalið né boðaði forföll. Af hálfu kæranda hefur komið fram að hún hafi verið veik af X á sama tíma og viðtalið átti að fara fram. Hún hafi ekki verið viðræðuhæf og því ekki getað tilkynnt forföll.
Framangreind boðun var send kæranda með sannanlegum hætti, þ.e. með tilkynningu á „Mínar síður“, í skráð tölvupóstfang og farsíma. Í 1. mgr. 58. gr. laga nr. 54/2006 kemur skýrt fram að sá sem hafni þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum skuli sæta viðurlögum á grundvelli ákvæðisins og hið sama gildir þegar hinn tryggði mætir ekki til Vinnumálastofnunar á áður boðuðum tíma. Að mati úrskurðarnefndar velferðarmála hefur kærandi ekki fært fram viðunandi skýringar sem réttlæta að hún hafi ekki mætt í boðað viðtal hjá Vinnumálastofnun.
Í 1. mgr. 61. gr. laga nr. 54/2006 er kveðið á um ítrekunaráhrif fyrri viðurlagaákvarðana. Ákvæðið er svohljóðandi:
„Sá sem hefur sætt viðurlögum skv. 57.–59. gr. eða biðtíma skv. 54. eða 55. gr. og eitthvert þeirra tilvika sem þar greinir á sér stað að nýju á sama tímabili skv. 29. gr. skal ekki eiga rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta skv. VII. kafla fyrr en að þremur mánuðum liðnum frá þeim degi er ákvörðun Vinnumálastofnunar um ítrekunaráhrif liggur fyrir enda hafi hann fengið greiddar atvinnuleysisbætur skemur en samtals 24 mánuði á sama tímabili skv. 29. gr. Hafi hinn tryggði fengið greiddar atvinnuleysisbætur í samtals 24 mánuði eða lengur á sama tímabili skv. 29. gr. þegar atvik sem lýst er í 1. málsl. á sér stað skal hinn tryggði ekki eiga rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta fyrr en hann uppfyllir skilyrði 31. gr.“
Samkvæmt gögnum málsins var bótaréttur kæranda felldur niður í tvo mánuði þann 14. október 2025 á grundvelli 1. mgr. 58. gr. laga nr. 54/2006. Þar sem um sama bótatímabil er að ræða, sbr. 29. gr. laganna, kom til ítrekunaráhrifa samkvæmt 1. mgr. 61. gr. laganna.
Með vísan til framangreinds er ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 26. febrúar 2026, um að fella niður rétt kæranda til atvinnuleysisbóta í þrjá mánuði á grundvelli 1. mgr. 58. gr., sbr. 1. mgr. 61. laga nr. 54/2006, staðfest.
Ú R S K U R Ð A R O R Ð
Ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 26. febrúar 2026, um að fella niður rétt A, til atvinnuleysisbóta í þrjá mánuði, er staðfest.
F.h. úrskurðarnefndar velferðarmála
Hólmfríður Birna Guðmundsdóttir