25 júní 2026
/
Mál nr. 175/2026-Úrskurður
Úrskurðarnefnd velferðarmála
Mál nr. 175/2026
Fimmtudaginn 25. júní 2026
A
gegn
Vinnumálastofnun
Ú R S K U R Ð U R
Mál þetta úrskurða Hólmfríður Birna Guðmundsdóttir lögfræðingur, Agnar Bragi Bragason lögfræðingur og Arnar Kristinsson lögfræðingur.
Með kæru, dags. 2. mars 2026, kærði A, til úrskurðarnefndar velferðarmála ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 8. desember 2025, um að synja beiðni hennar um endurupptöku máls.
I. Málsatvik og málsmeðferð
Kærandi sótti um atvinnuleysisbætur hjá Vinnumálastofnun 4. nóvember 2024 og var umsóknin samþykkt 18. nóvember 2024. Með ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 29. október 2025, var kæranda tilkynnt að greiðslur atvinnuleysisbóta til hennar hefðu verið stöðvaðar á grundvelli 1. mgr. 52. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar þar sem hún hefði stundað nám samhliða greiðslum atvinnuleysisbót. Kæranda var einnig tilkynnt að hún hefði fengið ofgreiddar atvinnuleysisbætur fyrir tímabilið 14. ágúst til 30. september 2025, samtals að fjárhæð 567.669 kr., að meðtöldu 15% álagi. Í kjölfar athugasemda kæranda var mál hennar tekið fyrir að nýju og með ákvörðun, dags. 3. desember 2025, var kæranda tilkynnt að fyrri ákvörðun væri staðfest. Þann 5. desember 2025 skilaði kærandi inn frekari gögnum sem Vinnumálastofnun leit á sem beiðni um endurupptöku málsins. Með ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 8. desember 2025, var beiðni um endurupptöku synjað.
Kæra barst úrskurðarnefnd velferðarmála 2. mars 2026. Með bréfi, dags. 11. mars 2026, óskaði úrskurðarnefndin eftir greinargerð Vinnumálastofnunar ásamt gögnum málsins. Greinargerð Vinnumálastofnunar barst 13. apríl 2026 og var hún kynnt kæranda með bréfi úrskurðarnefndar, dags. 15. apríl 2026. Athugasemdir bárust frá kæranda 27. apríl 2026 og voru þær kynntar Vinnumálastofnun með bréfi úrskurðarnefndar, dags. 5. maí 2026. Frekari athugasemdir bárust ekki.
II. Sjónarmið kæranda
Í kæru til úrskurðarnefndar kemur fram að kærandi óski eftir endurskoðun á ákvörðun Vinnumálastofnunar um meinta ofgreiðslu atvinnuleysisbóta og kröfu um endurgreiðslu. Á því tímabili sem um ræði hafi kærandi verið skráð í nám sem sé sérstaklega ætlað fólki á vinnumarkaði. Námið sé skipulagt með hliðsjón af atvinnuþátttöku og hafi engin áhrif á virkni kæranda í atvinnuleit né möguleika hennar til að taka starfi. Kærandi hafi sinnt öllum sínum skyldum gagnvart Vinnumálastofnun. Hún hafi skilað inn öllum þeim gögnum sem óskað hafi verið eftir innan tilskilinna fresta og staðið við allar þær kröfur sem hafi verið gerðar til hennar.
Kæranda hafi verið synjað um greiðslu bóta í tvo mánuði á þessum grundvelli sem hafi leitt til þess að hún hafi verið tekjulaus á tímabilinu. Það hafi haft veruleg og íþyngjandi áhrif á fjárhag hennar. Nú hafi hún hins vegar fengið starf og sé fastráðin sem staðfesti að námið hafi ekki haft neikvæð áhrif á atvinnuleit hennar heldur þvert á móti stutt hana. Kærandi sé afar ósátt við þá niðurstöðu að sér sé gert að endurgreiða bætur sérstaklega í ljósi þess að hún hafi uppfyllt sínar skyldur og veitt allar nauðsynlegar upplýsingar. Kærandi telji að ákvörðunin byggi á misskilningi á eðli námsins og aðstæðum hennar á þeim tíma. Með vísan til framangreinds óski kærandi eftir því að ákvörðunin verði endurskoðuð og að krafa um endurgreiðslu verði felld niður.
III. Sjónarmið Vinnumálastofnunar
Í greinargerð Vinnumálastofnunar kemur fram að kærandi hafi sótt um greiðslu atvinnuleysisbóta með umsókn, dags. 4. nóvember 2024. Með erindi, dags. 18. nóvember 2024, hafi kæranda verið tilkynnt að umsókn hennar hefði verið samþykkt og að útreiknaður bótaréttur væri 100%.
Við reglulegt eftirlit Vinnumálastofnunar í október 2025 hafi komið fram að kærandi hafi verið skráð í nám á haustönn 2025. Kærandi hafi verið skráð í 24 eininga nám við B. Með erindi, dags. 13. október 2025, hafi verið óskað eftir að kærandi afhenti Vinnumálastofnun skólavottorð og skýringar. Þann 17. október 2025 hafi borist skriflegar skýringar frá kæranda þar sem fram komi að hún væri í fjarnámi sem væri skipulagt samhliða vinnu. Að mati kæranda hafi námið ekki haft nein áhrif á atvinnu eða atvinnuleit. Ekkert skólavottorð hafi borist frá kæranda.
Með erindi Vinnumálastofnunar, dags. 29. október 2025, hafi kæranda verið tilkynnt að greiðslur atvinnuleysisbóta til hennar hefðu verið stöðvaðar sökum þess að hún hefði stundað nám samhliða greiðslum atvinnuleysistrygginga án þess að fyrir lægi námssamningur við stofnunina. Kæranda hafi jafnframt verið tilkynnt að hún hefði fengið ofgreiddar atvinnuleysisbætur á tímabilinu 14. ágúst til 30. september 2025, samtals 562.994 kr. og yrðu þær innheimtar með 15% álagi samkvæmt 2. mgr. 39. gr. laganna. Skuld kæranda við stofnunina næmi því 647.443 kr. Kæranda hafi verið bent á að heildarskuld kæranda við stofnunina væri samtals 980.911 kr.
Þann 3. nóvember 2025 hafi borist frekari skýringar og gögn frá kæranda þar sem fram hafi komið að kærandi hafi stundað fjarnám skipulagt með vinnu á haustönn 2025. Að mati kæranda hindri námið ekki atvinnuleit hennar.
Með erindi, dags. 5. desember 2025, hafi borist skólavottorð frá kæranda, dags. 3. desember 2025, sem staðfesti skipulag náms kæranda á haustönn og að kærandi væri á þeim tímapunkti virk í 18 eininga námi á haustönn 2025. Með erindi, dags. 8. desember 2025, hafi kæranda verið tilkynnt að innsent skólavottorð hafi ekki breytt grundvelli fyrri ákvörðunar, dags. 29. október 2025, þar sem kærandi væri sannarlega skráð í 24 einingar á haustönn 2025.
Framangreind ákvörðun Vinnumálastofnunar hafi verið kærð til úrskurðarnefndar velferðarmála þann 2. mars 2026. Í kæru greini kærandi frá því að nám hennar á haustönn 2025 hafi verið skipulagt sem fjarnám og hafi því ekki haft áhrif á atvinnuleit hennar. Í kæru til nefndarinnar fari kærandi fram á að skuld hennar við Vinnumálastofnun verði felld niður og að henni verði greiddar atvinnuleysisbætur samhliða ástundun náms.
Lög nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar gildi um atvinnuleysistryggingar launamanna eða sjálfstætt starfandi einstaklinga á innlendum vinnumarkaði þegar þeir verði atvinnulausir, sbr. 1. gr. laganna.
Ágreiningur í máli þessu snúi að ofgreiðslu atvinnuleysistrygginga til kæranda á tímabilinu 14. ágúst til 30. september 2025 vegna námsþátttöku samhliða atvinnuleysisbótum og þá hvort kærandi eigi rétt á greiðslum atvinnuleysisbóta samhliða námi á haustönn.
Í c. lið 3. gr. laga um atvinnuleysistryggingar sé að finna eftirfarandi skilgreiningu á námi:
„Samfellt nám, verklegt eða bóklegt, í viðurkenndri menntastofnun innan hins almenna menntakerfis á Íslandi sem stendur yfir í a.m.k. sex mánuði. Enn fremur er átt við nám á háskólastigi og það nám annað sem gerir sambærilegar kröfur til undirbúningsmenntunar og nám á háskólastigi. Einstök námskeið teljast ekki til náms.“
Í 52. gr. laga um atvinnuleysistryggingar sé nánar kveðið á um nám. Í 1. mgr. 52. gr. segi orðrétt:
„Hver sá sem stundar nám, sbr. c. lið 3. gr., telst ekki tryggður samkvæmt lögum þessum á sama tímabili enda er námið ekki hluti vinnumarkaðsaðgerða samkvæmt ákvörðun Vinnumálastofnunar, sbr. þó 2., 3. og 4. mgr.“
Ljóst sé af ákvæði 1. mgr. 52. gr. að það sé ekki tilgangur laga um atvinnuleysistryggingar að tryggja námsmönnum framfærslu á meðan þeir stundi nám. Í athugasemdum með 52. gr. í greinargerð með frumvarpi er hafi orðið að lögum um atvinnuleysistryggingar sé tiltekið að það sé meginregla að námsfólk eigi ekki rétt á atvinnuleysisbótum, hvort sem um sé að ræða fjarnám, dag- eða kvöldskóla.
Í 2.-5. mgr. 52. gr. laganna sé þó að finna undantekningar frá þeirri meginreglu. Í 2. mgr. komi fram að þrátt fyrir 1. mgr. sé hinum tryggða heimilt að stunda nám á framhaldsskólastigi sem nemi að hámarki 12 einingum eða á háskólastigi sem nemi að hámarki 12 ECTS-einingum á námsönn. Í 3. mgr. komi fram að þrátt fyrir 1. og 2. mgr. sé Vinnumálastofnun heimilt að greiða hinum tryggða skertar atvinnuleysisbætur í samræmi við umfang náms sem nemi allt að 20 einingum á námsönn.
Í 4. mgr. segi:
„Þrátt fyrir 1.–3. mgr. er hinum tryggða heimilt að stunda nám sem er skipulagt samhliða vinnu af viðkomandi menntastofnun og er ekki lánshæft til framfærslu hjá Menntasjóði námsmanna án þess að komi til skerðingar á rétti hans til atvinnuleysistrygginga, enda hindri námið hvorki virka atvinnuleit viðkomandi né möguleika hans til þátttöku á vinnumarkaði. Hinn tryggði skal leggja fram staðfestingu frá viðkomandi menntastofnun um skipulag námsins.
Þrátt fyrir 1.–4. mgr. skal hinum tryggða ávallt heimilt að ljúka þeirri önn sem er yfirstandandi við starfslok hans eða þegar hann missir starf sitt að hluta, sbr. 17. gr., án þess að komi til skerðingar á rétti hans til atvinnuleysistrygginga.“
Samkvæmt fyrirliggjandi gögnum hafi kærandi verið skráð í 24 eininga nám á framhaldsskólastigi við B á haustönn 2025 á sama tíma og hún hafi þegið greiðslur atvinnuleysistrygginga. Þar sem nám kæranda á haustönn hafi ekki fallið að heimildum 2. til 5. mgr. 52. gr. hafi hún ekki átt rétt á greiðslum atvinnuleysisbóta á því tímabili.
Kærandi hafi í skýringum sínum vísað til þess að nám hennar sé skipulagt sem fjarnám og að hennar mati falli námið ekki undir heimildir til náms sem skipulagt sé samhliða vinnu. Í 4. mgr. 52. gr. sé heimild til að stunda nám samhliða greiðslum atvinnuleysisbóta sem sé skipulagt samhliða vinnu sé námið ekki lánshæft til framfærslu hjá Menntasjóði námsmanna og hindri ekki virka atvinnuleit viðkomandi né möguleika hans til þátttöku á vinnumarkaði. Samkvæmt fyrirliggjandi gögnum og úthlutunarreglum Menntasjóðsins hafi nám kæranda verið lánshæft og falli því ekki að skilyrðum ákvæðisins.
Það hafi verið ákvörðun Vinnumálastofnunar að 24 eininga nám kæranda á haustönn 2025 hafi ekki rúmast innan ákvæða laganna og því ætti hún ekki rétt á greiðslum atvinnuleysisbóta á haustönn 2025. Þá hafi hún fengið ofgreiddar atvinnuleysisbætur á tímabilinu 14. ágúst til 30. september 2025. Vinnumálastofnun hafi því borið að stöðva greiðslur atvinnuleysisbóta til kæranda og innheimta ofgreiddar atvinnuleysisbætur. Skuld kæranda hafi þess vegna verið að fjárhæð 647.443 kr., að meðtöldu álagi. Heildarskuld kæranda, að viðbættu 15% álagi við stofnunina og að teknu tilliti til eldri skuldar, sé 980.911 kr.
Samkvæmt skýru orðalagi 2. mgr. 39. gr. beri að endurgreiða ofgreiddar atvinnuleysisbætur fyrir það tímabil sem atvinnuleitandi uppfylli ekki skilyrði laganna. Í athugasemdum með 39. gr. í greinargerð með frumvarpi því er hafi orðið að lögum um atvinnuleysistryggingar sé sérstaklega áréttað að leiðrétting eigi við í öllum tilvikum sem kunni að valda því að atvinnuleitandi hafi fengið ofgreiddar atvinnuleysisbætur. Ástæða þess að atvinnuleitandi hafi fengið ofgreiddar atvinnuleysisbætur hafi m.ö.o. ekki áhrif á skyldu viðkomandi til að endurgreiða þá fjárhæð sem ofgreidd hafi verið. Ákvæði 2. mgr. 39. gr. sé fortakslaust að því er varði skyldu til þess að endurgreiða ofgreiddar atvinnuleysisbætur.
Í 2.mgr. 39. gr. laganna sé kveðið á um heimild Vinnumálastofnunar til að innheimta ofgreiddar atvinnuleysisbætur. Ákvæðið sé svohljóðandi:
„Hafi hinn tryggði fengið hærri atvinnuleysisbætur skv. 32. eða 33. gr. en hann átti rétt á samkvæmt álagningu skattyfirvalda eða öðrum ástæðum ber honum að endurgreiða þá fjárhæð sem ofgreidd var að viðbættu 15% álagi. Hið sama gildir um atvinnuleysisbætur sem hinn tryggði hefur fengið greiddar fyrir tímabil er hann uppfyllti ekki skilyrði laganna. Fella skal niður álagið samkvæmt þessari málsgrein færi hinn tryggði rök fyrir því að honum verði ekki kennt um þá annmarka er leiddu til ákvörðunar Vinnumálastofnunar.“
Í framangreindu ákvæði sé mælt fyrir um heimild Vinnumálastofnunar til að innheimta ofgreiddar atvinnuleysisbætur. Í athugasemdum með 39. gr. í frumvarpi til laga um atvinnuleysistryggingar hafi sérstaklega verið áréttað að leiðrétting eigi við í öllum tilvikum sem kunni að valda því að atvinnuleitandi hafi fengið ofgreiddar atvinnuleysisbætur. Hver sé ástæða þess að atvinnuleitandi hafi fengið ofgreiddar atvinnuleysisbætur hafi m.ö.o. ekki áhrif á skyldu viðkomandi til að endurgreiða þá fjárhæð sem ofgreidd hafi verið. Ákvæði 2. mgr. 39. gr. sé því fortakslaust að því er varði skyldu til þess að endurgreiða ofgreiddar bætur. Vinnumálastofnun telji ekki tilefni til að fella niður álag á kröfuna.
Með vísan til framangreinds sé það mat Vinnumálastofnunar að kæranda beri að endurgreiða þær atvinnuleysisbætur sem hún hafi fengið ofgreiddar, samtals að fjárhæð 852.966 kr., auk 15% álags. Heildarskuld kæranda með álagi nemi 980.911 kr. Þá eigi kærandi ekki rétt á greiðslum atvinnuleysisbóta samhliða námi á haustönn 2025, sbr. 1. mgr. 52. gr. laga um atvinnuleysistryggingar.
IV. Niðurstaða
Ágreiningur máls þessa lýtur að ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 29. október 2025, þar sem greiðslur atvinnuleysisbóta til kæranda voru stöðvaðar með vísan til þess að hún stundaði nám samhliða því að þiggja atvinnuleysisbætur. Kæranda var einnig tilkynnt að hún hefði fengið ofgreiddar atvinnuleysisbætur fyrir tímabilið 14. ágúst til 30. september 2025, samtals að fjárhæð 567.669 kr., að meðtöldu 15% álagi. Með ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 3. desember 2025, var sú ákvörðun staðfest með vísan til þess að hún hefði að geyma efnislega rétta niðurstöðu þrátt fyrir ný gögn.
Í IX. kafla laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar er fjallað um tilvik er leiða til takmörkunar á atvinnuleysistryggingum. Í 52. gr. laganna er fjallað um nám en þar segir:
„Hver sá sem stundar nám, sbr. c-lið 3. gr., telst ekki tryggður samkvæmt lögum þessum á sama tímabili enda er námið ekki hluti vinnumarkaðsaðgerða samkvæmt ákvörðun Vinnumálastofnunar, sbr. þó 2., 3. og 4. mgr.
Þrátt fyrir 1. mgr. er hinum tryggða heimilt að stunda nám á framhaldsskólastigi sem nemur að hámarki 12 einingum eða á háskólastigi sem nemur að hámarki 12 ECTS-einingum á námsönn enda sé um svo lágt námshlutfall að ræða að námið telst ekki lánshæft hjá Menntasjóði námsmanna. Hinn tryggði skal leggja fram staðfestingu frá viðkomandi menntastofnun um námshlutfallið.
Þrátt fyrir 1. og 2. mgr. er Vinnumálastofnun heimilt að meta þegar sérstaklega stendur á hvort sá er stundar nám á framhaldsskólastigi sem nemur allt að 20 einingum eða á háskólastigi sem nemur allt að 20 ECTS-einingum á námsönn uppfylli skilyrði laganna enda sé um svo lágt námshlutfall að ræða að námið telst ekki lánshæft hjá Menntasjóði námsmanna. Skilyrði er að námið kunni að nýtast hinum tryggða beint við atvinnuleit að mati ráðgjafa Vinnumálastofnunar og skal hinn tryggði leggja fram staðfestingu frá viðkomandi menntastofnun um námshlutfallið. Hinn tryggði á þá rétt til skertra atvinnuleysisbóta fyrir sama tímabil og skal Vinnumálastofnun meta skerðinguna á tryggingahlutfalli sem hann á rétt til skv. 15. eða 19. gr. í samræmi við umfang námsins.
Þrátt fyrir 1.–3. mgr. er hinum tryggða heimilt að stunda nám sem er skipulagt samhliða vinnu af viðkomandi menntastofnun og er ekki lánshæft til framfærslu hjá Menntasjóði námsmanna án þess að komi til skerðingar á rétti hans til atvinnuleysistrygginga, enda hindri námið hvorki virka atvinnuleit viðkomandi né möguleika hans til þátttöku á vinnumarkaði. Hinn tryggði skal leggja fram staðfestingu frá viðkomandi menntastofnun um skipulag námsins.
Þrátt fyrir 1.–4. mgr. skal hinum tryggða ávallt heimilt að ljúka þeirri önn sem er yfirstandandi við starfslok hans eða þegar hann missir starf sitt að hluta, sbr. 17. gr., án þess að komi til skerðingar á rétti hans til atvinnuleysistrygginga.“
Í c. lið 3. gr. laganna er að finna skilgreiningu á námi samkvæmt lögunum en þar segir:
„Nám: Samfellt nám, verklegt eða bóklegt, í viðurkenndri menntastofnun innan hins almenna menntakerfis á Íslandi sem stendur yfir í a.m.k. sex mánuði. Enn fremur er átt við nám á háskólastigi og það nám annað sem gerir sambærilegar kröfur til undirbúningsmenntunar og nám á háskólastigi. Einstök námskeið teljast ekki til náms.“
Í athugasemdum við ákvæði 52. gr. í frumvarpi því er varð að lögum um atvinnuleysistryggingar kemur fram að ekki séu lagðar til breytingar á þeirri meginreglu að námsmenn eigi ekki rétt á atvinnuleysisbótum. Miðað sé við að það skipti ekki máli hvort um sé að ræða dag- eða kvöldskóla eða fjarnám. Þá kemur fram að það kunni að vera að nám sé nauðsynlegur hluti af starfshæfingu atvinnuleitanda að mati ráðgjafa Vinnumálastofnunar, en í slíkum tilvikum geti atvinnuleitandi talist tryggður samhliða námi.
Kærandi hefur einkum byggt á því að nám hennar hafi sérstaklega verið ætlað fólki á vinnumarkaði og hafi því ekki haft áhrif á atvinnuleit hennar. Fyrir liggur hins vegar að nám kæranda var ekki hluti af vinnumarkaðsaðgerð samkvæmt ákvörðun Vinnumálastofnunar og að undanþáguheimildir 2., 3. og 4 mgr. 52. gr. laga nr. 54/2006 eiga ekki við í máli kæranda.
Þar sem Vinnumálastofnun hafði ekki vitneskju um nám kæranda fékk hún greiddar atvinnuleysisbætur á tímabilinu 14. ágúst 30. september 2025 án þess að eiga rétt til þeirra, sbr. framangreinda meginreglu um að námsmenn séu ekki tryggðir samkvæmt lögum nr. 54/2006.
Í 39. gr. laga nr. 54/2006 er kveðið á um leiðréttingu á atvinnuleysisbótum. Þar segir í 2. mgr. að hafi hinn tryggði fengið hærri atvinnuleysisbætur samkvæmt 32. eða 33. gr. laganna en hann hafi átt rétt á samkvæmt álagningu skattyfirvalda eða af öðrum ástæðum beri honum að endurgreiða þá fjárhæð sem ofgreidd hafi verið, að viðbættu 15% álagi. Hið sama gildi um atvinnuleysisbætur sem hinn tryggði hafi fengið greiddar fyrir tímabil er hann uppfyllti ekki skilyrði laganna. Í sömu málsgrein segir einnig að fella skuli niður álagið samkvæmt málsgreininni færi hinn tryggði rök fyrir því að honum verði ekki kennt um þá annmarka er leitt hafi til ákvörðunar Vinnumálastofnunar.
Samkvæmt framangreindu er ljóst að endurkröfuheimild Vinnumálastofnunar er meðal annars bundin við það að einstaklingur hafi fengið greiddar atvinnuleysisbætur fyrir tímabil er hann uppfyllti ekki skilyrði laganna. Ákvæði 2. mgr. 39. gr. laganna er fortakslaust að því er varðar skyldu til þess að endurgreiða ofgreiddar bætur. Aftur á móti skal fella niður 15% álag færi hinn tryggði rök fyrir því að honum verði ekki kennt um þá annmarka er leitt hafi til ákvörðunar Vinnumálastofnunar. Þar sem kærandi tilkynnti Vinnumálastofnun ekki um nám sitt er það mat úrskurðarnefndarinnar að ekki sé tilefni til að fella niður álagið sem lagt var á endurgreiðslukröfuna. Með vísan til framangreinds er hin kærða ákvörðun staðfest.
Ú R S K U R Ð A R O R Ð
Ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 3. desember 2025, um að staðfesta ákvörðun stofnunarinnar frá 29. október 2025 þar sem greiðslur atvinnuleysisbóta til A, voru stöðvaðar og ofgreiddar bætur innheimtar, er staðfest.
F.h. úrskurðarnefndar velferðarmála
Hólmfríður Birna Guðmundsdóttir