25 júní 2026

/

Mál nr. 179/2026-Úrskurður

Úrskurðarnefnd velferðarmála

Mál nr. 179/2026

Fimmtudaginn 25. júní 2026

A

gegn

Vinnumálastofnun

Ú R S K U R Ð U R

Mál þetta úrskurða Hólmfríður Birna Guðmundsdóttir lögfræðingur, Agnar Bragi Bragason lögfræðingur og Arnar Kristinsson lögfræðingur.

Með kæru, dags. 3. mars 2026, kærði A, til úrskurðarnefndar velferðarmála ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 26. febrúar 2026, um að fella niður rétt hans til atvinnuleysisbóta í tvo mánuði.

I.  Málsatvik og málsmeðferð

Kærandi sótti um atvinnuleysisbætur hjá Vinnumálastofnun 18. júlí 2025 og var umsóknin samþykkt 28. ágúst 2025. Með ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 26. febrúar 2026, var kæranda tilkynnt að réttur hans til atvinnuleysisbóta hefði verið felldur niður í tvo mánuði á grundvelli 1. mgr. 58. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar með vísan til þess að hann hefði hafnað þátttöku í vinnumarkaðsúrræði.

Kæra barst úrskurðarnefnd velferðarmála 3. mars 2026. Með bréfi, dags. 5. mars 2026, óskaði úrskurðarnefndin eftir greinargerð Vinnumálastofnunar ásamt gögnum málsins. Greinargerð Vinnumálastofnunar barst 20. apríl 2026 og var hún kynnt kæranda með bréfi úrskurðarnefndar, dags. 15. maí 2026. Athugasemdir bárust ekki.

II.  Sjónarmið kæranda

Í kæru til úrskurðarnefndar kemur fram að kæranda óski eftir að tekið verði tillit til þess að hann hafi tilkynnt Vinnumálastofnun um vandamál sitt strax þann 23. janúar 2026. Á þeim tíma hafi kærandi týnt töskunni sinni sem hafi innihaldið vegabréf, skilríki, síma og önnur mikilvæg gögn kæranda. Vegna þessa hafi kærandi ekki getað skrá sig inn með rafrænum skilríkjum og ekki getað staðfest atvinnuleit sína á „Mínum síðum“ á tilskildum tíma.

Þann 23. janúar 2026 hafi kærandi sent Vinnumálastofnun tölvupóst þar sem hann hafi útskýrt að hann hefði misst símann sinn og ætti í vandræðum með rafræn skilríki. Kærandi hafi einnig komið á skrifstofu Vinnumálastofnunar til að leita aðstoðar. Í kjölfarið hafi hann farið á lögreglustöð og tilkynnt um týndu skjölin.

Síðar hafi kærandi fengið þær upplýsingar frá lögreglunni að vegabréf hans og skilríki hefðu fundist á B. Eftir að kærandi hafi fengið skjölin aftur hafi hann getað endurvirkjað rafrænu skilríki sín og endurnýjað/staðfest atvinnuleit. Kærandi hafi verið með skilaboð á „Mínum síðum“ sem hann hafi ekki getað séð og að hann hafi ætlað að koma á þjónustuskrifstofu Vinnumálastofnunar um leið og hann væri búinn að laga þetta.

III.  Sjónarmið Vinnumálastofnunar

Í greinargerð Vinnumálastofnunar kemur fram að kærandi hafi sótt um greiðslur atvinnuleysisbóta með umsókn, dags. 18. júlí 2025. Með erindi, dags. 28. ágúst 2025, hafi kæranda verið tilkynnt að umsókn hans hefði verið samþykkt og að útreiknaður bótaréttur væri 100%.

Með erindi, dags. 27. janúar 2026, hafi kærandi verið boðaður á upplýsingafund sem hafi átt að fara fram á þjónustuskrifstofu Vinnumálastofnunar þann 28. janúar 2026, klukkan 10:00. Athygli kæranda hafi verið vakin á því að um skyldumætingu væri að ræða og að ótilkynnt forföll og forföll án gildra ástæðna gætu valdið stöðvun greiðslna atvinnuleysisbóta. Umrædd boðun hafi verið send þann 20. janúar 2026 á „Mínar síður“ kæranda, með tilkynningu á uppgefið netfang X og með smáskilaboðum í farsímanúmerið X. Samkvæmt skráningu Vinnumálastofnunar hafi smáskilaboðin borist í símtæki kæranda þann 27. janúar 2026, klukkan 09:36.

Þann 28. janúar 2026 klukkan 09:18, hafi borist tölvupóstur frá kæranda þar sem fram komi að kærandi hafi týnt bakpoka sem hafi innihaldið vegabréf hans ásamt farsíma. Af þeim sökum hafi hann ekki haft aðgang að rafrænum skilríkjum sínum og því ekki getað kynnt sér boð Vinnumálastofnunar. Kærandi hefði sent tölvupóst til Vinnumálastofnunar þann 23. janúar 2026 þar sem hann hafi sagst ekki geta staðfest atvinnuleit hans þar sem hann hefði týnt símanum sínum með rafrænu skilríkjunum.

Þann 28. janúar 2026 klukkan 09:30 hafi borist símtal frá kæranda þar sem hann hafi tjáð starfsmanni Vinnumálastofnunar að hann myndi koma á þjónustuskrifstofu Vinnumálastofnunar þegar hann myndi fá bakpoka sinn aftur. Kærandi hafi ekki mætt á boðaðan upplýsingafund þann 28. janúar 2026.

Þann 2. febrúar 2026 hafi kærandi komið á þjónustuskrifstofu Vinnumálastofnunar og sýnt skilríki sem hann hafi verið nýkominn með. Jafnframt hafi hann staðfest atvinnuleit sína þann sama dag með rafrænum hætti á „Mínum síðum“ á vef Vinnumálastofnunar.

Með erindi, dags. 16. febrúar 2026, hafi verið óskað eftir skriflegum skýringum kæranda á ástæðum þess að hann hafi ekki mætt til boðaðs upplýsingafundar. Áréttað hafi verið að ef kærandi hefði hafnað þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum án gildra ástæðna gæti hann þurft að sæta biðtíma eftir greiðslu atvinnuleysisbóta. Kæranda hafi verið veittur sjö virkra daga frestur til að koma að skýringum sínum. Skriflegar skýringar hafi borist samdægurs frá kæranda þar sem fram komi að hann hafi ekki getað kynnt sér efni boðunar Vinnumálastofnunar þar sem hann hafi ekki haft aðgang að rafrænum skilríkjum. Hann hafi af þeim sökum ekki mætt á fundinn.

Með erindi, dags. 23. febrúar 2026, hafi kæranda verið tilkynnt um ákvörðun Vinnumálastofnunar að stöðva greiðslur atvinnuleysisbóta til hans í tvo mánuði sökum þess að hann hefði ekki sinnt boðun á upplýsingafund. Ákvörðun þessi hafi verið tekin á grundvelli 1. mgr. 58. gr. laga um atvinnuleysistryggingar.

Ákvörðun Vinnumálastofnunar hafi verið kærð til úrskurðarnefndar velferðarmála þann 3. mars 2026. Þær skýringar sem kærandi hafi áður veitt stofnunni á fjarveru sinni á boðað vinnumarkaðsúrræði samhliða kæru séu efnislega þær sömu og hafi legið fyrir við vinnslu hinnar kærðu ákvörðunar.

Lög nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar gildi um atvinnuleysistryggingar launamanna eða sjálfstætt starfandi einstaklinga á innlendum vinnumarkaði þegar þeir verði atvinnulausir, sbr. 1. gr. laganna.

Eitt af almennum skilyrðum fyrir greiðslu atvinnuleysisbóta samkvæmt 13. gr. laga um atvinnuleysistryggingar sé að vera í virkri atvinnuleit, sbr. a. lið 1. mgr. 13. gr. Í 14. gr. laganna sé kveðið á um hvað felist í virkri atvinnuleit, en samkvæmt [h. lið] 1. mgr. 14. gr. felist virk atvinnuleit meðal annars í því að hafa vilja og getu til að taka þátt í þeim vinnumarkaðsaðgerðum er standi til boða. Í 13. gr. laga nr. 55/2006 um vinnumarkaðsaðgerðir komi einnig fram skylda þess sem teljist tryggður samkvæmt lögum um atvinnuleysistryggingar til að taka þátt í vinnumarkaðsúrræðum sem Vinnumálastofnun ákveði. Ákvæði 13. gr. sé svohljóðandi:

„Atvinnuleitandi skal fylgja eftir áætlun um atvinnuleit og þátttöku í viðeigandi vinnumarkaðsúrræðum skv. 11. gr. og gera það sem í hans valdi stendur til að bæta vinnufærni sína til þess að verða virkur þátttakandi á vinnumarkaði. Þar á meðal skal atvinnuleitandi ávallt mæta í viðtöl til ráðgjafa Vinnumálastofnunar skv. 14. gr. og taka þátt í þeim vinnumarkaðsúrræðum er standa honum til boða. Atvinnuleitandi skal jafnframt tilkynna Vinnumálastofnun um þær breytingar sem kunna að verða á vinnufærni hans eða aðstæðum að öðru leyti án ástæðulausrar tafar.“

Þá sé í 1. mgr. 14. gr. laga um vinnumarkaðsaðgerðir kveðið á um að ráðgjafar Vinnumálastofnunar skuli hafa eftirlit með því að atvinnuleitendur fylgi eftir áætlun um atvinnuleit og þátttöku í viðeigandi vinnumarkaðsúrræðum.

Af framangreindum lagaákvæðum sé ljóst að heimildir Vinnumálastofnunar til að boða til sín atvinnuleitendur, og sömuleiðis skyldur atvinnuleitenda til að verða við slíkri boðun, séu ríkar. Þá sé það fortakslaust skilyrði svo unnt sé að aðstoða atvinnuleitendur við að fá starf við hæfi og gefa þeim kost á þátttöku í viðeigandi vinnumarkaðsaðgerðum að atvinnuleitendur sinni þeim boðunum sem þeim séu send. Í skilmálum sem umsækjendur samþykki þegar þeir sæki um greiðslur atvinnuleysistrygginga komi fram að umsækjendum sé skylt að mæta í viðtöl, fundi, námskeið og önnur úrræði sem Vinnumálastofnun boði til.

Í 1. mgr. 58. gr. segi:

„Sá sem hafnar þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum, sbr. lög um vinnumarkaðsaðgerðir, samkvæmt ákvörðun Vinnumálastofnunar eftir að hafa verið í atvinnuleit í a.m.k. fjórar vikur frá móttöku Vinnumálastofnunar á umsókn um atvinnuleysisbætur skal ekki eiga rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta skv. VII. kafla fyrr en að tveimur mánuðum liðnum, sem ella hefðu verið greiddar bætur fyrir, frá þeim degi er viðurlagaákvörðun Vinnumálastofnunar er tilkynnt aðila, sbr. þó 4. mgr. Hið sama gildir þegar hinn tryggði mætir ekki til Vinnumálastofnunar á áður boðuðum tíma skv. 6. mgr. 9. gr., 3. mgr. 13. gr. eða 3. mgr. 18. gr.“

Í 58. gr. laga um atvinnuleysistryggingar komi skýrt fram að hafni einstaklingur þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum skuli hann sæta tveggja mánaða biðtíma eftir atvinnuleysisbótum. Hið sama gildi þegar hinn tryggði mæti ekki til Vinnumálastofnunar á áður boðuðum tíma. Í greinargerð með frumvarpi til laga um atvinnuleysistryggingar sé efni 58. gr. laganna nánar skýrt. Þar segi að Vinnumálastofnun annist skipulag vinnumarkaðsaðgerða og að litið sé svo á að þeim sem tryggðir séu innan atvinnuleysistryggingakerfisins sé skylt að taka þátt í vinnumarkaðsúrræðum. Þá sé jafnframt tekið fram í greinargerðinni að bregðist hinn tryggði þeirri skyldu leiði það til viðurlaga í formi biðtíma eftir atvinnuleysisbótum.

Kærandi hafi verið boðaður á upplýsingafund 28. janúar 2026. Kærandi hafi hvorki mætt né boðað forföll. Þrátt fyrir að í boðun til hans þann 27. janúar 2026 hafi sérstaklega verið tekið fram að um skyldumætingu væri að ræða og að öll forföll skyldu tilkynnast á uppgefið netfang Vinnumálastofnunar. Þær skýringar sem kærandi hafi veitt lúti að því að hann hafi týnt bakpoka sínum ásamt farsíma og af þeim sökum hafi hann ekki verið með aðgang að rafrænum skilríkjum og ekki getað nálgast skilaboð stofnunarinnar.

Vinnumálastofnun hafni skýringum kæranda sem gildum. Boðun stofnunarinnar hafi verið send í tölvupósti og með smáskilaboðum. Slík skilaboð séu ekki háð því að atvinnuleitandi sé með virk rafræn skilríki í síma símum. Líkt og fyrr segi hafi kærandi verið boðaður á umræddan fund með skilaboðum á „Mínum síðum“ atvinnuleitanda, með tölvupósti á netfang kæranda og með smáskilaboðum í skráð símanúmer kæranda. Áður en fundurinn hafi átt að hefjast hafi borist tölvupóstur frá kæranda þar sem hann hafi sagst hafa týnt síma sínum og skilríkjum. Áður hafi kærandi tilkynnt stofnuninni að hann hefði týnt lykilorðinu sínu hjá Vinnumálastofnun og að hann ætti í vandræðum með rafrænu skilríkin sín. Það sé á ábyrgð atvinnuleitenda að verða við boðunum um að mæta á vinnumarkaðsúrræði á vegum stofnunarinnar. Ljóst sé að kæranda hafi verið kunnugt um boð stofnunarinnar áður en fundurinn hafi átt að fara fram. Í tölvupósti hans um 40 mínútum áður en fundurinn hafi verið haldinn hafi kærandi sagst vera á leiðinni til B að ná í eigur sínar eftir að hafa fengið símtal frá lögreglunni á C um glötuð verðmæti hans sem hafi fundist þar. Ekki sé fyllilega ljóst hvers vegna það hafi reynst nauðsynlegt fyrir kæranda að ferðast til B til að nálgast eigur sínar. Þá liggi ekki fyrir gögn í málinu um að kærandi hafi leitað til lögreglu. Þar sem kærandi hafi verið ljóst að stofnunin hafi boðað hann á fund sé heldur ekki ljóst af skýringum kæranda hvers vegna hann hafi ekki séð sér fært að mæta á fund stofnunarinnar.

Í ljósi þeirrar ríku skyldu sem hvíli á atvinnuleitendum til þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum, sé það mat Vinnumálastofnunar að kærandi hafi brugðist skyldum sínum samkvæmt 13. gr. laga um vinnumarkaðsúrræði, 7. mgr. 9. gr. laga um atvinnuleysistryggingar og 3. mgr. 13. gr. sömu laga. Það sé því mat Vinnumálastofnunar að kærandi hafi ekki í skýringum sínum fært fram gildar ástæður fyrir fjarveru í boðað vinnumarkaðsúrræði í skilningi 1. mgr. 58. gr. laga um atvinnuleysistryggingar.

Í ljós þess að kærandi hafi ekki mætt á boðað vinnumarkaðsúrræði án gildra skýringa í skilningi 1. mgr. 58. gr., beri honum að sæta viðurlögum á grundvelli sama ákvæðis.

Með vísan til alls framangreinds sé það niðurstaða Vinnumálastofnunar að kærandi skuli sæta viðurlögum í tvo mánuði á grundvelli 1. mgr. 58. gr. laga um atvinnuleysistryggingar.

IV.  Niðurstaða

Kærð er ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 26. febrúar 2026, um að fella niður rétt kæranda til atvinnuleysisbóta í tvo mánuði á grundvelli 1. mgr. 58. gr. laga nr. 54/2006 um atvinnuleysistryggingar.

Í 58. gr. laga nr. 54/2006 er kveðið á um viðurlög við því ef þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum er hafnað. Segir þar í 1. mgr. að sá sem hafni þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum, sbr. lög um vinnumarkaðsaðgerðir, samkvæmt ákvörðun Vinnumálastofnunar eftir að hafa verið í atvinnuleit í að minnsta kosti fjórar vikur frá móttöku Vinnumálastofnunar á umsókn um atvinnuleysisbætur, skuli ekki eiga rétt á greiðslu atvinnuleysisbóta samkvæmt VII. kafla laganna fyrr en að tveimur mánuðum liðnum, sem ella hefðu verið greiddar bætur fyrir, frá þeim degi er viðurlagaákvörðun Vinnumálastofnunar er tilkynnt aðila. Hið sama gildi þegar hinn tryggði mæti ekki til Vinnumálastofnunar á áður boðuðum tíma samkvæmt 6. mgr. 9. gr., nú 7. mgr. 9. gr., 3. mgr. 13. gr. eða 3. mgr. 18. gr. laganna.

Í athugasemdum greinargerðar með frumvarpi til laga nr. 134/2009, um breytingu á lögum nr. 54/2006, segir meðal annars um viðurlög við því að virða ekki boðun Vinnumálastofnunar:

„Í ljósi þess að mikilvægt er að Vinnumálastofnun geti haldið reglulegu sambandi við þá sem fá greiddar atvinnuleysisbætur, ekki síst til að geta fylgst með gangi atvinnuleitar og hvort stofnunin þurfi að koma að frekari stuðningi við viðkomandi, er lagt til að það kunni að varða viðurlögum á grundvelli laganna í þeim tilvikum er atvinnuleitendur virða ekki boðun stofnunarinnar skv. 1. gr. frumvarps þessa. Á þetta ekki síst við þegar fá störf eru í boði og auknar líkur eru á að atvinnuleitin dragist á langinn. Jafnframt er lagt til að sama gildi þegar atvinnuleitendur eru boðaðir til stofnunarinnar í því skyni að kanna hvort sá hinn sami uppfylli enn skilyrði laganna, sbr. 4. og 6. gr. frumvarps þessa. Er því gert ráð fyrir að sömu viðurlög komi til og eiga við þegar þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum er hafnað.“

Í 7. mgr. 9. gr. kemur fram að sá sem telst tryggður á grundvelli laganna skuli eftir að umsókn hans hafi verið samþykkt og á þeim tíma sem hann fái greiddar atvinnuleysisbætur eða sæti biðtíma eða viðurlögum samkvæmt lögunum hafa reglulegt samband við Vinnumálastofnun eftir nánara fyrirkomulagi sem stofnunin ákveði. Þegar Vinnumálastofnun upplýsi umsækjanda um að stofnunin hafi samþykkt umsókn um atvinnuleysisbætur skuli hún jafnframt upplýsa hlutaðeigandi um með hvaða hætti stofnunin muni koma upplýsingum eða öðrum boðum til hans meðan á atvinnuleit hans standi. Komi Vinnumálastofnun upplýsingum eða boðum til umsækjanda með þeim hætti sem stofnunin hafi tiltekið við hlutaðeigandi teljast upplýsingarnar eða boðin hafa borist með sannanlegum hætti.

Þá segir í 3. mgr. 13. gr. laga nr. 54/2006 að Vinnumálastofnun sé heimilt að boða þann tryggða til stofnunarinnar með sannanlegum hætti á þeim tíma sem hann fái greiddar atvinnuleysisbætur eða sæti biðtíma eða viðurlögum samkvæmt lögunum, meðal annars til að kanna hvort breytingar hafi orðið á högum hans sem kunni að hafa áhrif á rétt hans samkvæmt lögunum. Hinn tryggði skuli þá vera reiðubúinn að mæta til stofnunarinnar með mjög skömmum fyrirvara.

Samkvæmt gögnum málsins var kærandi þann 27. janúar 2026 boðaður á upplýsingafund hjá Vinnumálastofnun sem haldinn var þann 28. janúar 2026. Kærandi hvorki mætti á fundinn né boðaði forföll. Kæranda var greint frá því að um skyldumætingu væri að ræða og ef upp kæmu forföll bæri að tilkynna þau á „Mínum síðum“. Jafnframt var athygli kæranda vakin á því að ekki yrði hægt að fá nýja boðun en ástæður forfalla yrðu sendar Greiðslustofu til skoðunar þar sem tekin yrði afstaða til mögulegra viðurlaga í formi tímabundinnar eða varanlegrar greiðslustöðvunar. Þá var kærandi hvattur til að hafa samband ef eitthvað væri óljóst eða hann óskaði frekari upplýsinga. Af hálfu kæranda hefur komið fram að hann hafi týnt bakpoka sínum sem hafi innihaldið síma hans og skilríki. Af þeim sökum hafi hann ekki verið með aðgang að rafrænum skilríkjunum sínum og því ekki getað nálgast skilaboð frá stofnuninni.

Framangreind boðun var send kæranda með sannanlegum hætti, þ.e. með tilkynningu á „Mínar síður“, í skráð tölvupóstfang og farsíma. Það er á ábyrgð hins tryggða að kynna sér þau skilaboð sem Vinnumálastofnun sendir, enda eru allir umsækjendur um atvinnuleysisbætur upplýstir um mikilvægi þess. Í 1. mgr. 58. gr. laga nr. 54/2006 kemur skýrt fram að sá sem hafni þátttöku í vinnumarkaðsaðgerðum skuli sæta viðurlögum á grundvelli ákvæðisins og hið sama gildi þegar hinn tryggði mætir ekki til Vinnumálastofnunar á áður boðuðum tíma. Að mati úrskurðarnefndar velferðarmála hefur kærandi ekki fært fram viðunandi skýringar sem réttlæta að hann hafi ekki mætt á boðaðan fund hjá Vinnumálastofnun. 

Ákvörðun Vinnumálastofnunar um að fella niður rétt kæranda til atvinnuleysisbóta í tvo mánuði á grundvelli 1. mgr. 58. gr. laga nr. 54/2006 er því staðfest.


 

Ú R S K U R Ð A R O R Ð

Ákvörðun Vinnumálastofnunar, dags. 26. febrúar 2026, um að fella niður rétt A, til atvinnuleysisbóta í tvo mánuði, er staðfest.

F.h. úrskurðarnefndar velferðarmála

Hólmfríður Birna Guðmundsdóttir