Segir mörg mikilvæg mál hafa komist í höfn
21 frumvarp fjármála- og efnahagsráðherra varð að lögum á liðnum þingvetri. Málin voru fjölbreytt, má þar nefna kílómetragjald á ökutæki, ráðstöfun viðbótargjalds til séreignasparnaðar inn á höfuðstól húsnæðislána, lög um innviðafélag og auðvitað fjárlög 2026. Að auki var þingsályktunartillaga um fjármálaáætlun áranna 2027-2031 samþykkt. Þá lagði ráðherra fram þrjár skýrslur.
Daði Már Kristófersson, fjármála- og efnahagráðherra, er ánægður með árangur þessa þings og segir mörg mikilvæg mál hafa komist í höfn. Hér má sjá yfirlit yfir öll samþykkt þingmál. Hægt er að smella á hvert mál til að skoða lögin.