26 júní 2026

/

Auglýst eftir umsóknum um styrki til listdanskennslu á framhaldsskólastigi

{image.Description}

Mennta- og barnamálaráðuneytið auglýsir eftir umsóknum um styrki til listdanskennslu á staðfestri námsbraut í listdansi á framhaldsskólastigi samkvæmt lögum um framhaldsskóla nr. 92/2008.

Markmið styrkjanna er að styrkja stoðir listdans á Íslandi og veita nemendum á framhaldsskólaaldri sem hyggjast leggja stund á háskólanám í listdansi kost á sérhæfðu undirbúningsnámi.

Heildarstyrkfjárhæð samkvæmt auglýsingu þessari er allt að 163 m.kr. á ári.

Hæfisskilyrði

Forsenda þess að geta sótt um styrk er að umsækjandi hafi að lágmarki fimm ára reynslu af kennslu nemenda í grunn- og framhaldsnámi í listdansi.

Jafnframt er skilyrði að umsækjandi standi að kennslu fyrir hið minnsta 20 ársnemendur á framhaldsskólastigi.

Tveir eða fleiri aðilar geta sótt sameiginlega um styrk. Sé umsókn lögð fram sameiginlega skal miðað við samanlagðan ársnemendafjölda umsækjenda við mat á því hvort framangreint lágmarksskilyrði um fjölda ársnemenda sé uppfyllt.

Umsókn

Umsókn skal senda á netfang ráðuneytisins, [email protected].

Með umsókn skal fylgja greinargerð og eftir atvikum fylgigögn um

  • skólastefnu, skólanámskrá, námsskipulag og námsframboð á framhaldsstigi,
  • faglegt hæfi stjórnenda og kennara,
  • starfsaðstöðu og aðbúnað kennara og nemenda,
  • fjölda nemenda á framhaldsstigi síðustu þrjú ár,
  • rekstrarhæfi,
  • staðfestingu á skilum opinberra gjalda og lífeyrissjóðsiðgjalda,
  • samþykktir félags eða félagasamtaka þar sem staðfest er að starfsemin sé ekki rekin í hagnaðarskyni heldur á grundvelli samfélagslegra markmiða,
  • ársreikninga umsækjanda síðustu þrjú ár og
  • yfirlit yfir hvernig unnið verður með framhaldsskólum.

Mat á umsóknum

Við úthlutun styrkja verður tekið mið af áætluðum ársnemendafjölda, faglegu mati á umsóknum og því markmiði að stuðla að öflugum og sjálfbærum rekstri listdanskennslu á framhaldsskólastigi.

Sérstaklega verður litið til umfangs starfseminnar, fjölda nemenda og samstarfs eða sameiginlegs rekstrar milli aðila.

Við mat á umsóknum verður meðal annars litið til

  • skólastefnu, námskrár og skipulags náms,
  • faglegrar reynslu og hæfni stjórnenda og kennara,
  • starfsaðstöðu og aðbúnaðar nemenda,
  • reynslu af kennslu á framhaldsskólastigi,
  • fjölda nemenda á framhaldsskólastigi síðustu þrjú skólaár,
  • rekstrarhæfis og fjárhagslegrar stöðu, og
  • samstarfs við framhaldsskóla og aðra faglega samstarfsaðila.

Ráðuneytið getur ákveðið að úthluta styrkjum til eins eða fleiri umsækjenda. Samningar um styrkveitingu verða gerðir til eins árs. Fyrir lok samningstímabils skulu styrkhafar skila upplýsingum til uppgjörs á grundvelli lokinna eininga á skólaárinu. Reynist umfang kennslunnar eða fjöldi lokinna eininga minni en samningur gerir ráð fyrir getur uppgjörið leitt til lækkunar styrks eða endurgreiðslu samkvæmt ákvæðum samnings.

Gert er ráð fyrir að umsækjandi hljóti viðurkenningu sem einkaskóli á framhaldsskólastigi samkvæmt 12. gr. laga um framhaldsskóla nr. 92/2008 á samningstímanum. Nánari upplýsingar um viðurkenningu einkaskóla má finna á vef Stjórnarráðs Íslands. Umsóknarfrestur er til og með 7. ágúst 2026.