26 júní 2026
/
Leitað að húsnæði undir brottfararstöð
Leitað er að bæði tímabundnu húsnæði og langtímahúsnæði. Tímabundna húsnæðið þarf að vera tilbúið fyrir 1. desember þegar lögin taka gildi. Kostur er ef langtímahúsnæðið verður tilbúið til afhendingar fyrir 30. september á næsta ári. Ekki er útilokað að tímabundna húsnæðið nýtist síðar sem framtíðarhúsnæði. Með tímabundnu húsnæði fæst ákveðin reynsla af því hvers konar húsnæði nýtist best og hversu mikil þörfin verður.
Húsnæðið þarf að geta hýst allt að þrjátíu og vera með aðstöðu fyrir starfsfólk og gott, afgirt útisvæði eða möguleika á að útbúa slíkt svæði. Gert er ráð fyrir fimmtán til þrjátíu svefnherbergjum með snyrtingu og sturtu eða aðgengi að sameiginlegum snyrtingum og sturtum, þvottahúsi og matsal. Nokkrar eignir eru þegar til skoðunar, bæði til skamms tíma og lengri.
Rétt er að taka fram að fjölskyldur verða vistaðar á öðrum stað og stendur leit yfir að hentugu húsnæði.
Lög um brottfararstöð voru samþykkt á nýafstöðnu þingi. Í langflestum tilvikum verða þau sem vistuð verða í brottfararstöðinni fólk sem hefur verið synjað um dvöl hér á landi, önnur og vægari úrræði hafa ekki dugað til og það neitað samstarfi við stjórnvöld um að hlíta ákvörðun um að yfirgefa landið.