26 júní 2026

/

Margrét Jónsdóttir Njarðvík skipuð skólameistari Fjölbrautaskólans í Breiðholti

{image.Description}

Inga Sæland, mennta- og barnamálaráðherra, hefur skipað Margréti Jónsdóttur Njarðvík í embætti skólameistara Fjölbrautaskólans í Breiðholti til fimm ára frá 1. ágúst næstkomandi.

Margrét starfaði áður í tæp sex ár sem rektor Háskólans á Bifröst og átta ár í fjölbreyttum störfum hjá Háskólanum í Reykjavík sem lektor, dósent og forstöðumaður alþjóðasviðs. Áður starfaði hún í tæp 8 ár sem lektor og skorarformaður í Háskóla Íslands auk þess að hafa kennt spænsku við Kvennaskólann í Reykjavík, Menntaskólann í Reykjavík og Verzlunarskóla Íslands.  

Margrét er með MBA-gráðu í stjórnun frá Háskólanum í Reykjavík auk doktorsgráðu í spænsku máli og bókmenntum frá Princeton University. Hún er með kennsluréttindi og lauk grunnnámi í spænsku við Háskóla Íslands.

Alls sóttu sjö um embættið.