26 júní 2026
/
Úthlutun úr Grænlandssjóði 2026
Stjórn Grænlandssjóðs hefur gert tillögu til menningar-, nýsköpunar- og háskólaráðherra um úthlutun úr Grænlandssjóði fyrir árið 2026. Grænlandssjóður starfar samkvæmt lögum nr. 108/2016.
Hlutverk hans er að efla samskipti Grænlands og Íslands. Sjóðurinn veitir styrki til kynnisferða, námsdvalar, listsýninga, íþróttaviðburða og annarra málefna á sviði menningar, menntunar og vísinda sem geta stuðlað að auknum samskiptum Grænlendinga og Íslendinga.
Höfuðstóll sjóðsins, sem ríkissjóður lagði til á árunum 1981 og 1982, er í vörslu Seðlabanka Íslands.
Stjórn Grænlandssjóðs lagði mat á umsóknir og gerði að tillögu sinni til ráðherra að eftirfarandi verkefni hlytu styrk á árinu 2026 og á það hefur ráðherra fallist. Heildarfjárhæð styrkjanna er 4.790.000 kr.
- Kalak – vinafélag Íslands og Grænlands. Heimsókn grænlenskra skólabarna til Íslands: 1.500.000 kr.
- Nuuk Shotokan Karate-Do. Æfingaferð til Íslands fyrir börn: 1.000.000 kr.
- GSS Meeqqat Arsartartut. Fótboltaæfingabúðir fyrir börn: 1.000.000 kr
- Ester Jónsdóttir. Rannsókn á upplifun sjómanna á Grænlandi af umhverfis- og loftslagsbreytingum: 500.000 kr.
- Hinsegin dagar í Reykjavík og Nuuk Pride – samstarfsverkefni: 790.000 kr.
Auglýst var eftir umsóknum um styrki úr Grænlandssjóði 27. mars síðastliðinn. Umsóknarfrestur var til 22. apríl. Alls bárust 30 umsóknir - sem er 50% aukning milli ára.