30 júní 2026
/
Áform um frumvarp til laga um Stafræna heilsu í Samráðsgátt
Heilbrigðisráðuneytið hefur birt til umsagnar áform um frumvarp til laga um Stafræna heilsu í Samráðsgátt stjórnvalda, ásamt frummati á áhrifum lagasetningar. Frumvarpinu er ætlað að skapa heildstæða lagaumgjörð um starfsemi Stafrænnar heilsu og sameiginlega stafræna innviði heilbrigðiskerfisins. Frestur til að skila umsögnum er til 13. júlí.
Markmið fyrirhugaðrar lagasetningar er að skapa skýran, lagalegan grundvöll fyrir þróun og rekstur sameiginlegra stafrænna innviða heilbrigðiskerfisins. Lagt er til að sett verði ný heildarlöggjöf um starfsemi og verkefni Stafrænnar heilsu sem sett var á fót sem starfseining innan heilbrigðisráðuneytisins í byrjun þessa árs. Með frumvarpinu verður kveðið á um hlutverk, ábyrgð og heimildir Stafrænnar heilsu til að annast samhæfingu, þróun og eftir atvikum rekstur sameiginlegra innviða heilbrigðiskerfisins. Þannig er unnt að tryggja öruggari og samhæfðari uppbygging innviða, betri vernd heilbrigðisupplýsinga, bætt upplýsingaflæði og samfelldari þjónustu við sjúklinga, ásamt sterkari forsendum fyrir nýsköpun og stefnumótun.