30 júní 2026

/

Íslensk þýðing á samantekt skýrslu um valkosti Íslands í gjaldmiðlamálum

{image.Description}
frá ráðstefnu um gjaldmiðlaskýrsluna sem haldin var í byrjun júní.

Samantektarkafli skýrslu um valkosti Íslands í gjaldmiðlamálum hefur verið birtur í íslenskri þýðingu. Í skýrslunni, sem kom út í maí, er fjallað um kosti og galla sjálfstæðs gjaldmiðils samanborið við aðild að stærra gjaldmiðlasvæði, svo sem evrusvæðinu.

Skýrslan var unnin af fjórum erlendum sérfræðingum undir forystu Catherine L. Mann. Markmið hennar er að leggja grunn að upplýstri umræðu um framtíðarfyrirkomulag gjaldmiðlamála á Íslandi.

Með íslenskri þýðingu samantektarinnar er efni skýrslunnar gert aðgengilegra íslenskum lesendum. Fjórir kaflar skýrslunnar verða einnig birtir í íslenskri þýðingu síðar í sumar.

  • Samantekt skýrslu um valkosti Íslands í gjaldmiðlamálum á íslensku 

    Hér má nálgast skýrsluna í heild sinni á íslensku