30 júní 2026
/
Tvíhliða samráð Íslands og Frakklands um varnar- og öryggismál
Stefna Íslands í varnar- og öryggismálum var kynnt og farið yfir áherslur Frakklands í málaflokknum. Þá var til umræðu tvíhliða varnarsamstarf Íslands og Frakklands, m.a. á grundvelli viljayfirlýsingar sem undirrituð var í tengslum við samráð ríkjanna árið 2025, svo og tækifæri til að efla samstarfið frekar. Öryggisáskoranir og viðbúnaður á Norður-Atlantshafi og norðurslóðum, málefni Atlantshafsbandalagsins og komandi leiðtogafundur bandalagsins í Ankara sem og stuðningur við varnarbaráttu Úkraínu voru einnig meðal umræðuefna.
Samráðið fór fram í París, í varnarmálaráðuneyti Frakklands og var einnig fundað með fulltrúum franska sjóhersins, flughersins og yfirmanni alþjóðadeildar. Auk þess átti sendinefnd Íslands fund með yfirmanni öryggis- og afvopnunarmála í utanríkisráðuneyti Frakklands.
Jónas G. Allansson, skrifstofustjóri varnarmálaskrifstofu utanríkisráðuneytisins, fór fyrir sendinefnd Íslands og Philippine Bentegeat, skrifstofustjóri málefna Evrópu, Norður Ameríku og alþjóðasamstarfs, leiddi samráðið fyrir hönd Frakklands.